Fréttir

Miðvikudaginn 27. opið kl 13-19

Í dag verður opið frá kl 13-19. Veðrið kl 13:00 sama veður blíðan vestan gola, frost 4 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór, allar berkkur troðnar í gærkveldi. Silki færi. Frábært veður og frébært færi. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði 4 km hringur léttur og góður fyrir alla. Ath. skráning í skíðakennslu er í fullum gangi. Símar 467-1806/893-5059 Fjórði hver fær kennsluna fría í boði TM trygginga. Veðruspá næstu dag er bar flott svo nú er um að gera að drífa sig á Sigló. Velkomin á skíði í dag Starfsfólk

Þriðjudaginn 26. mars opið kl 13-19

Í dag þriðjudaginn verður opið frá kl 13-19. Veðrið kl 08:45 WSW gola, frost 4 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór. Sama blíðan og sama góða færið í dag. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði 4 km hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn

Mánudaginn 25. mars opið kl 13-19

KL 15:45 eru komnir í fjallið um 350 manns Ath. !!setjum öryggið á oddinn!! Notum hjálma og notum festiólar á brettin. Í dag mánudaginn 25. mars verður opið frá kl 13-19. Veðrið kl 09:30 VSV gola, frost 1 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór þannig að færið er  harðpakkað enda nýlegur snjór á svæðinu. Frábært veður og frábært færi. Göngubraut á Hólssvæði tilbúinn 4 km hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn Ath. skíðakennsla verður á svæðinu um páskana.

Sunnudaginn 24. opið kl 10-16

Í dag sunnudaginn 24. mars verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 logn, frost 1 stig, heiðskírt og glaða sól. Færið er troðinn harðpakkaður snjór. Frábært veður og frábært færi. Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði 4 km hringur. Velkomin á skíði í dag. Starfsmenn

Laugardaginn 23. mars opið kl 10-16

Nú er klukkan að verða tvö og eru skíðagestir komnir í 400. Veðrið er frábært og færið í heimsklassa. Í dag laugardaginn 23. mars verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:00 austan gola, frost 1 stig, heiðskírt og sólin að koma upp.  Færið er troðinn þurr snjór. Flott veður og frábært færi. Göngubraut á Hólssvæði tilbúinn kl 13:00 4 km hringur. Velkomin á skíði í dag. Egill, Óðinn, Kári, Björn og Birgir

Föstudaginn 22. mars opið kl 14-19

Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 13:00 austan 4-10m/sek, hiti 2 stig en alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Fimmtudaginn 21. mars opið kl 15-19

Ja Norðmennirnir spá því að veðrið í Skarðsdalnum verði mjög gott næstu 9 daga, svo að nú eiga skíðamenn að taka stefnuna í Fjallabyggð. Það verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 16:30 A 5-10m/sek, frost 1 stig og það er að birta mikið til á svæðinu, þetta gula er að koma upp.. Færið er troðinn nýr þurr snjór.  Skarðsdalurinn er frábær í dag, nýr snjór, logn og blíða. Ath. komandi helgi fellur niður skíðakennsla. Hér til hægri eru veður upplýsingar í rauntíma. Skoðið hér til hægri nýlegt myndband. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Miðvikudaginn 20. mars lokað vegna vinnu í fjallinu.

kl 13:00 Það verður lokað í dag vegna vinnu á svæðinu. Opnum á morgun kl 14:00. Starfsmenn. Jæja nú er veðrið gengið niður og komin veður-blíða, erum að skoða aðstæður og vinna í fjallinu og vonandi getum við opnað í dag kl 15:00. Veðurútlit næstu dag er mjög gott svo nú er um að gera að taka á því í fjallinu. Snjóalög eru mjög góð í öllum brekkum. Páskafjör Opnunartími í dymbilviku 25/3-27/3 kl 13-19 og 28/3-1/4 kl 10-16 Skíðakennsla, leikjabraut, giljabraut, pallar, hólar og fl. fl. Og að sjálfsögðu frábærar brekkur. 4 lyftur, 10 brekkur, langar og stuttar. Nýjar fréttir kl 13:00 í dag Starfsmenn

Þriðjudaginn 19. mars er lokað

Það er lokað í dag þriðjudaginn 19. mars en við opnum aftur á morgun miðvikudaginn 20. mars kl 15-19 Nýjar upplýsingar kl 12:00 Starfsmenn

Mánudaginn 18.mars opið kl 15-19

Opnum aftur á miðvikudaginn 20. mars !!Páskafjör!! hér í Skarðsdalnum. Það kemur dagskrá og auglýsing mjög fljótt í þessari viku. Opið verður Páskavikunni 24/3-27/3 kl 13-19 og 28/3-1/4 kl 10-16. Ath. það er nægt gistinrými í Fjallabyggð Hótel, Gistiheimili, sumarhús og íbúðir, sennilega er hægt að hýsa um 400-500 manns á öllum þessum stöðum.   Ath. skíðagestir góðir það eru 2 íbúðir lausa hjá Leigumiðlun Valló um Páska og endilega að skoða inn á siglo.is og síðan inn á ferðafólk þar er möguleiki á að finna gistingu og svo eru fleiri staðir  bæði á Siglufirði og Ólafsfirði.  Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:00 NA gola, frost 5 stig og sú gula er komin.. Færið er troðinn þurr snjór. Snjódýpt í brekkum er mjög góð. Neðstasvæðið er 70-150cm T-lyftusvæði er 70-250cm Búngusvæði 350-500cm Göngubraut á Hólssvæði ca 4 km hringur. Velkomin á skíði í dag Starfsmenn