Skíðasvæðið Skarðsdal á Siglufirði
08.05.2010
Skíðasvæðið á Siglufirði er að verða mjög góður kostur fyrir alla skíðamennsku fjallaskíðun,
brettaskíðun og að sjálfsögðu alpagreinar, nú er ný lokið fundi Samtaka Skíðasvæða sem var haldinn á
Húsavík þar sem vetratímabilið er gert upp, skíðasvæðið á Siglufirði er á mjög góðri siglingu, fjöldi
gesta var yfir 10 þúsund og opnunardagar voru 97 og heimsóknir á heimasíðu í vetur voru um 19 þúsund og það liggur fyrir að
þegar Héðinsfjarðargöng opna mun gesta fjöldinn margfaldast og vil ég nota þetta tækifæri til að þakka öllum þeim
góðu gestum sem heimsótu okkur nú í vetur og sjáumst hress í haust eða 1. nóvember.
Starfsfólk skíðasvæðisins á Siglufirði