01.01.2017
Lokað eins og er vegna snjóleysis
Sjáumst hress
Fjallamenn
31.12.2016
Opið í dag frá kl 12-15, veðrið er norðan 4-8m/sek, frost 3 stig, lítilsháttar éljagangur en það hefur snjóað ca 20 sm á svæðinu s s nýfallinn snjór og flott færi. Það mun hætta að snjóa og birta til kl 12:00.
Opnum eingöngu Neðstu-lyftu.
Velkomin í fjallið
30.12.2016
Opið í dag frá kl 13-17.
Opnum eingöngu neðstu-lyftu, veðrið kl 11:30 SW 8-12m/sek og aðeins meira í hviðum en það á að snúast í norðanátt eftir hádegi, frost 4 stig, vindkæling er -11. það er lítill snjór á svæðinu og harðfenni. Farið varlega.
Velkomin í fjallið
Fjallamenn
29.12.2016
Það er lokað eins og er, fengum aðeins snjó í gær og í nótt, eigum von á snjókomu í nótt (4 tíma) og mögulega getum við opnað neðstalyftu á morgun.
Það er verið að moka til snjó á T-lyftusvæðið og ef við fáum snjó næstu daga getum við mögulega opna það svæði á Gamlársdag og Nýársdag, já það verður opið á Nýársdag ef veður leyfir og hvítagullið kemur.
Area is closed.
We open as soon as possible.
Fylgist með okkur hér og á facebook
27.12.2016
Það er lokað svæðið vegna snjóleysis, en vonandi fer þetta að gerast.
Opnum um leið og hægt er.
Fylgist með okkur hér og á facebook
There is no snow on the ski area, area is closed.
We open as soon as possible.
Fjallamenn
26.12.2016
Við verðum að hafa lokað í dag vegna of lítils snjós, það er mjög mikið af grjótum sem koma upp úr brekknni þegar búið er að troða.
Við reynum næst.
26.12.2016
Gleðileg jól.
Loksins, loksins er opið og verður opið í dag frá kl 12-16 og verður eingöngu opin neðstalyfta, það er ekki mikill snjór á svæðinu farið varlega.
Veðrið kl 09:30 NW gola, frost 2 stig en alskýjað, fæerið er troðinn þurr snjór.
Verð fyrir þennan dag er eingöngu kr 500.-
Það vantar enn mikinn snjó á svæðið og stefnum að því að reyna að koma inn T-lyftusvæði inn sem fyrst, það þarf að færa til mikið af snjó svo það komist inn.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
24.12.2016
Gleðileg jól sjáumst á annan í jólum.
Fjallamenn
23.12.2016
Verið tilbúin á annan í jólum þá setjum við í gang, það mun snjóa töluvert á svæðinu næstu daga. Allt á kaf það er svo gaman 40mm úrkoma á dag. Nú líður okkur Fjallamönnum mjög vel.
Opnun næstu daga:
Annan í jólum kl 11-16
27-30 des kl 11-17
Gamlársdag kl 11-15
Nýársdag Lokað
2. janúar kl 11-17
Fjallamenn
21.12.2016
Mögulega getum við opnað svæðið á þorláksmessudag og það lítur mjög vel út með að opið verði frá 26-31 des, það mun snjóa hjá okkur yfir jólin miðað við veðurkortin.
Fylgist með okkur hér og á facebook