01.12.2008
Lokað verður í dag en við opnum á morgun 2. desember kl 16:00
Sjáumst hress í fjallinu.
30.11.2008
Skíðasvæðið í Skarðsdal á Siglufirði er að verða mjög gott við stefnum á að opna allar þrjár lyfturnar
í komandi viku, það er kominn góður snjór og er veðurútlit fyrir næstu dag ágætt frost og smá éljagangur og við
starfsmenn tökum vel á móti ykkur.
Dagurinn í daga var mjög góður gott veður og mjög gott færi fyrir alla og þakka ég þeim öllum sem hafa heimsótt
svæðið nú í nóvember, við höfum verið með opið í 14 daga í neðstu-lyftu og 6 daga í T-lyftu nú
í nóvember
Kveðja frá starfsmönnum
30.11.2008
Opið verður í dag frá kl 11:00-17:00 færið er mjög gott fyrir alla nýr troðinn snjór.
Lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta
Veðrið SV-3-5m/s, -5c°, hálfskýjað.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
29.11.2008
Opið verður í dag frá kl 11:00-17:00
Veðrið í fjallinu er N-6, -5c°, smá éljagangur og færi nýr troðinn snjór, gott færi fyrir alla.
Lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta
Verið velkomin í fjallið.
Starfsmenn
28.11.2008
Opið verður í dag frá kl 16-:00-19:00
Við opnum neðstu-lyftu, það er of hvasst í T-lyftu
Veður á neðsta svæðinu er N 5-7, -5c°, alskýjað, snjókoma.
Verið er að vinna við að koma Búngu-lyftu í stand, lyftuspori og búngubrekku
Velkomin í fjallið.
27.11.2008
Lokað í dag vegna veðurs, það hefur snjóað aðeins hjá okkur og er von á að snjói meira næsta sólahringinn og
vonandi getum við opnað á morgun kl 16:00
Nánari upplýsingar á morgun á netinu og í 878-3399 um kl 11:00
Starfsmenn
26.11.2008
Lokað verður í dag, verið er að vinna á svæðinu núna og verður opnað um leið og hægt verður vegna veðurs.
Starfsmenn
25.11.2008
Lokað verður í dag. það er mikill SV vindur núna.
Starfsmenn skíðasvæðsins vilja þakka öllum sem hafa komið á skíðasvæðið undanfarið og notið
útiverunar, við höfum verið með opið í 12 daga nú í nóvember.
Það stefnir í góða sórhríð næstu dag sem er gott og við verðum klárir þegar til þarf.
Sjáumst hress í fjallinu.
Kv. frá starfsmönnum
23.11.2008
Opið verður í dag frá kl 11:00-17:00
Veður SV 5-7 m/s -1c° Heiðskýrt, troðið harðfenni
Lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta
Aðstæður í fjallinu eru góðar fyrir alla og verið þið velkomin í fjallið.
22.11.2008
Opið verður í dag frá kl 11:00-17:00
Veður hér er S-gola, -2c° og skýjað, færi er mjög gott nýr troðinn snjór og gott færi fyrir alla. Við verðum með opnar
tvær lyftur Neðstu-lyftu og T-lyftu.
Verði velkomin í fjallið.