21.11.2008
Opið verður í dag frá kl 14:00-20:00
Veður NV gola, -4c°, Hálfskýjað, troðinn nýr snjór, gott færi fyrir alla
Lyftur opnar Neðsta-lyfta og T-lyfta
Velkomin í fjallið.
20.11.2008
Lokað verður í dag, erum að fá snjó núna og stefnum á opnun á morgun kl 14:00
Erum að vinna í fjallinu og veður útlit er gott um helgina.
19.11.2008
Lokað verður í dag , það hefur tekið upp töluvert að snjó í neðstu-lyftu.
Veður SV 7-13m/s, -1c°, éljagangur.
Nánari upplýsingar á morgun bæði á heimasíðu og í 878-3399
18.11.2008
Lokað í dag þriðjudaginn 18 nóvember
Núna rétt fyrir kl 12:00 er komin SV 8-15 m/s og meira í hviðum, +4c° og töluverð rigning.
Nýjar upplýsingar verða á netinu og í upplýsingasíma 878-3399 á morgun um kl 12:00.
18.11.2008
Opið verður í dag frá kl 13:00-18:00, veður hér núna er logn, -1c°, hálfskýjað.
Nýr troðinn snjór og gott færi fyrir alla.
Lyftur opnar Neðst-lyfta og T-lyfta.
Ég vil hvetja grunnskólabörn í Fjallabyggð til að koma á skíði og hafa góðan dag, það kostar aðeins 300,- kr en
árskort gilda, þið getið fengið allan skíðaútbúnað lánaðan frítt.
17.11.2008
Það verður opið á morgun frá kl 13:00-18:00 ef veður leifir, nánari upplýsingar verða á netinu og í upplýsingasíma
878-3399 á morgun
Verð í lyftur á morgun fyrir grunnskólabörn kr. 300.- árskort 2008 gilda í lyftur.
Fjölmennum í fjallið með nesti, en búnað getið þið fengið lánaðan frítt.
Starfsmenn
17.11.2008
Opið verður í dag 17 nóvember frá kl 13:00-16:00
Veður SV 5-10 -1c°, éljagangur
Lyftur opnar Neðsta-lyfta
Verð í lyftur er 300,- fyrir þá sem ekki eru með árskort.
17.11.2008
Það var meiningin að opna kl 13-16 í dag, en eins og staðan er núna kl 10:45
er ekki hægt að opna, en það koma nýjar upplýsingar um kl 12:00
Veður SV 8-12 m/s og fer í hviðum upp í 18 m/s -1° éljagengur.
16.11.2008
Opið verður í dag frá kl 11:00-17:00
Veður SV 6-9m en 9-15m í hviðum, -1°, hálfskýjað, troðinn nýr snjór, gott færi fyrir alla.
Lyftur opnar Neðsta-lyfta. Því miður er of hvasst í T-lyftusvæði eins og er, við munum skoða það hvort við getum opnað T-lyftu eftir
kl 12:00
Verið velkomin á svæðið