01.04.2009
Við verum að hafa lokað í dag við erum að vinna brekkurnar og það mun taka allan daginn og fram á kvöld, við opnum á morgun kl 14:00,
nánari upplýsingar um kl 12 á morgun.
Starfsmenn.
31.03.2009
Lokað í dag vegna veðurs.
Við opnun á morgun miðvikudaginn 1. apríl, nánari upplýsingar á morgun kl 12:00
Starfsmenn.
29.03.2009
Við höfum lokað í dag vegna veðurs, opnum á þriðjudaginn 31. mars kl 14:00 nánari upplýsingar um það á
þriðjudaginn um kl 12:00.
Starfsmenn
29.03.2009
Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er N-gola, -5c° og smá éljagangur, færið er nýr troðinn snjór.
Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu, göngubraut er tilbúinn við Hól og nú er um að gera drífa sig á skíði sem fyrst
veðrið gæti versnað þegar líður á daginn.
Velkomin á skíði starfsmenn.
28.03.2009
Opið verður frá kl 10-16, veðrið er eins og það gerist best logn, heiðskírt(sól) og -8c°, færið er líka eins og
það gerist best troðinn harðpakkaður nýr snjór. Nú er um að gera að drífa sig út í góða verðrið og
njóta dagsins "frábær dagur framundan í norðlensku ölpunum"
Við keyrum allar lyftur og göngubraut er við Hól
Velkomin á skíði starfsmenn
27.03.2009
Opið verður í dag frá kl 14-19, veðrið er ágætt það er logn, -4c° en töluverður éljagangur þannig að skyggni er
ekki mjög gott í efrihlutanum, færið er troðinn nýr snjór, við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 14:00, en stefnum á að opna
Búngu-lyftu kl 16:00, göngubraut er við Hól.
Velkomin á skíði starfsmenn
26.03.2009
Lokað í dag vegna veðurs, það er NA 8-12m/sek og meira í hviðum, töluverður skafrenningur er á öllu svæðinu.
Við opnum á morgun föstudaginn 27. mars kl 14-19, nánari upplýsingar um kl 12 á morgun. Veðurútlit er ágætt um helginna.
Starfsmenn
25.03.2009
Opið í dag frá kl.14:00 til 19:00
Í dag er ágætis veður sunnan gola bjart hiti -2°c opnar verða Neðsta-lyfta og
T-lyfta. Færið mjög gott allir velkomnir á svæðið
Starfsmenn
24.03.2009
Opið verður í dag frá kl 16-19, það er NA-6-10m/sek og aðeins meira í hviðum, -1c° og smá éljagangur. við stefnum
á að opna kl 16:00 og við opnum eingöngu Neðstu-lyftu.
Velkomin skíði starfsmenn.
22.03.2009
Opið verður í dag frá kl 10-16, veðrið er Sv-5-10m/sek, 0c°, éljagangur og alskýjað, færið er unnið harðfenni
ágætt færi fyrir alla.
Við keyrum allar 3 lyfturnar og göngubraut við Hól tilbúinn um kl 13:00
Nú er um að gera að drífa sig á skíði og njóta dagsins.
Velkomin á skíði starfsmenn