18.05.2013
Nú höfum við lokað skíðasvæðinu þennan veturinn. Opnunardagar voru 100 og gestir inn á svæðið voru 16500 manns. Innilegar
þakkir fyrir komuna skíðagestir góðir. Sjáumst hress næsta vetur.
Starfsfólk skíðasvæðisins
18.05.2013
Opið er hjá okkur í dag frá 11:00-15:00
og er um 10 stiga hiti og glampandi sól flott verður um að gera að mæta og fá sér smá lit ;)
08.05.2013
Takið frá hvítasunnuna því þá verður opið í Skarðsdalnum. Snjórinn telst í metrum og brekkurnar eru flottar. Gerum
þetta að hvítasunnufjöri eins og páskafjörið var. Þá brostu allir hringinn yfir fegurð dalsins.
Strákarnir munu taka vel á móti ykkur. Björn, Sigurjón, Birgir og Kári mun sjá um að brekkurnar verði klárar.
04.05.2013
Þessi helgi var loka tilraun til að hafa opið nú í maí en nú höfum við lokað svæðinu þennan
veturinn.
Við starfsmenn skíðasvæðisins viljum þakka ykkur skíðagestir kærlega fyrir veturinn, hann var mjög góður. 98 daga opnun og
gestir 16500.
Sjáumst hress næsta vetur.
Starfsmenn
03.05.2013
Við munum taka stöðuna í fyrramálið kl 10:00 hvort opnað verður á morgun.
Gestir inn á svæðið í vetur voru 16500 manns sem er met aðsókn og opnunardagar voru 98. Innlit inn á heimasíðu skard.fjallabyggð.is hvern einasta dag frá 1. des til 1. maí var 205 og innhringingar í síma 878-3399
upplýsingasíman voru 114 á dag á þessum sama tíma.
Allar tölur eru upp á við.
Starfsmenn
01.05.2013
Flottur dagur að baki en rúmlega 200 manns eru búnir að koma í fjallið í dag.
Tökum stöðunna á föstudaginn hvort við getum opnað á laugardaginn 4. maí.
Það stefnir í að þessi dagur verði sá síðasti sem opið verður í Skarðsdalnum svo nú er um að gera að
mæta í dag.
Í dag verður opið frá kl 11-15. Veðrið kl 08:40 ANA 2-5m/sek, frost 5 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór og var
troðið í gær og er kominn smá nýr snjór ofaná.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn