26.03.2018
Opið í dag frá kl 11-18, veðrið er ASA 2-6m/sek og hviður 8-12m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór mjög gott færi og góður snjór í troðnum brekkum.
Það hefur lægt mikið þannig að allar lyftur eru í gangi núna.
10 skíðaleiðir klárar.
Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur.
Velkomin á skíði í dag.
25.03.2018
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Veður hér í dag verður mjög gott og færið er einnig mjög gott.
10 skíðaleiðir klárar og er Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur.
Fylgist með veðrinu hér á svæðinu heimasíðunni með því að smella á veðurstöð hér efst.
Velkomin á skíði
24.03.2018
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er logn, frost 3 stig og léttskýjað og mun sú gula sýna sig í dag. Færið er troðinn þurr snjór.
8 skíðaleiðir klárar.
Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur, flatur og góður hringur fyrir alla.
Velkomin í Skarðsdalinn
23.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 08:30 logn, lítilsháttar éljagangur og frost 1 stig en það mun létta til eftir hádegið. Veðrið næstu daga eða til 1. apríl er mjög gott hér á Sigló
Færið er troðinn þurr snjór í bland við blautan, en hefur snjóað aðeins á svæðinu.
7 skíðaleiðir klárar og verður Hólsgöngubraut tilbúin kl 14:00
Ath. fylgist með veðrinu hér á svæðinu með því að smella á veðurstöð hér efst á síðunni.
Velkomin á skíði
22.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 12:30 logn, hiti 4 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn blautur snjór en er þurrar eftir því sem ofar kemur, það hefur snjóað aðeins í efrihlutanum.
5 skíðaleiði og 4 lyftur opnar í dag.
Það er gönguspor eftir snjósleða í Hólsgöngubraut.
Velkomin á skíði
21.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið logn, hiti 1 stig og er heiðskírt.
Færið er troðinn vorsnjór. Það er mjög gott færi fyrir bretti og breið skíði.
5 skíðaleiðir klárar og gönguspor eftir snjósleða á Hólssvæði
Velkomin í Skarðsdalinn
20.03.2018
Lokað í dag/closed today
Opnum á morgun kl 13:00/open tomorrow at 13:00
19.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er SSW 4-8m/sek, hiti 6 stig og léttskýjað.
Færið er vorfæri, það er mjög erfitt að troða í þessu færi en það sem er troðið er Neðstsvæðið og T-lyftusvæðið efri-svæðin Hálslyftusvæði og Búngulyftusvæði halda betur og eru ótroðin.
Utanbrautarfæri er hér mjög gott í dalnum
Hólsgöngubraut er tilbúin
Velkomin á skíði í dag.
18.03.2018
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er SSW 3-7m/sek, hiti 6 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór, allar brekkur troðnar á milli kl 20:00-02:00. Hitastig í snjónum er +0,4
10 skíðaleiðir klárar og Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur
Velkomin á skíði
17.03.2018
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:40 logn, 1 stigs hiti og það er að létta til. Færið er troðinn rakur snjór en frostið í snjónum er um 1. stig.
10 skíðaleiðir klárar og Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 11:00
Velkomin í Skarðsdalinn