01.05.2011
Svæðinu hefur verið lokað þetta vorið, sjáumst hress í haust, opnunar dagar í vetur voru 109 og gestir inn á svæðið voru 13.
þúsund.- og er þetta aukning um 30% á milli ára í gesta fjölda og er ljóst að Héðinsfjarðargöngu eru að sanna sig
í fjölda gesta til Fjallabyggðar í vetur og er hægt að gera enn betur með ölfugri markaðsetningu ferðaþjónustuaðili í
Fjallabyggð, sjáumst hress í nóvember eða um leið og það hvíta kemur í haust, takk fyrir komuna gestir góðir.
Starfsfólk
30.04.2011
Svæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:30 vestan gola, hiti 6 stig og léttskýjað, færið er vorfæri á
öllu svæðinu, farið varlega.
Neðstasvæði: Lyftuspor er inn en brekkan meðfram lyftu er lokuð, það þarf að fara eftir vegi og niður Rjúpnabrekku að
Skíðaskála.
T-lyftusvæði: Nokkuð breið brekka í efsta hlutanum en mjókkar eftir því sem neðar kemur, skíðaleið frá
þessu svæði er eftir vegi og niður að Skálanum.
Búngusvæði: Brekkur eru breiðar og góðar en vorfæri.
Þvergilið: Bobbraut, Hólabraut og Pallar
Velkomin í fjallið
Starfsfólk
29.04.2011
Svæðið er opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 11:30 vestan gola, hiti 6 stig og heiðskírt, færið er vorfæri mjög lint og
blaut.
Svæðið verður opið á morgun laugardaginn 30. apríl og sunnudaginn 1. maí kl 10-16 báða daga.
Neðstasvæði: Lyftuspor er inn en brekkan meðfram lyftu er úti, það þarf að fara eftir vegi og niður Rjúpnabrekku að
Skíðaskála.
T-lyftusvæði: Nokkuð breið brekka í efsta hlutanum en mjókar eftir því sem neðar kemur, skíðaleið frá
þessu svæði er eftir vegi og niður að Skálanum.
Búngusvæði: Brekkur eru breiðar og góðar en vorfæri.
Þvergilið: Bobbraut, Hólabraut og Pallar
Velkomin í fjallið
Starfsfólk
26.04.2011
Skíðasvæðið verður lokað í dag og næstu daga, opnum aftur föstudaginn 29. apríl og síðasti opnunardagur vetrarins
er sunnudaginn 1. maí, nýjar upplýsingar kl 12:00 29. apríl.
Takk fyrir komuna á skíðasvæðið yfir páskavikuna, sjáumst hress.
Starfsfólk
25.04.2011
Svæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 07:30 VSV gola, frost 1 stig og heiðskírt, en einn dagurinn gengur í garð
með blíðu veður, færið er unnið harðfenni í bland við blautan snjó, nú er um að gera að drífa sig í fjallið
því nú fer hver að verða síðastur að skíða þennan veturinn, síðasti opnunardagurinn er 1. maí.
Frískíðun niður Þvergilið og fleiri stöðum. Göngubraut í Skarðsdalsbotni og gott að ganga upp á Súlur utanbrautar.
Hólabraut, Bobbbraut, Pallar í Þvergili.
Flott að fara upp á Búngutopp og frískíða niður í Hraunadal eða Hrólfsvallardal og enda niður á Þjóðvegi
í Fljótum fyrir góða skíðara.
Fróðleiksmoli dagsins: Skarðsdalur heimild snokur.is
Sá bær er framan við mynni dals þess er vestur gengur í hálendið yst úr Siglufjarðardal; skilur hann Siglufjarðar- og
Úlfsdalafjöll er þó ná saman fyrir botni hans með hrygg mjóum. Yfir hann er hin helsta þjóðleið til Siglufjarðar (úr
Fljótum) um skarð það er því nefnist Siglufjarðarskarð (1), dalurinn Skarðsdalur (2) og
bærinn eftir honum. Stóð hann suður við á þá er nefnst mun hafa Skarðsdalsá (3) þó Leyningsá (4) kallist nú. Er hún aðalá dalsins og fellur syðst fram úr mynni hans, en önnur utar. Ganga hæðir nokkrar fram
úr dalnum milli þeirra er nefnast Skarðsdalshryggir (5). Var byggðin suðaustan hæðanna og stóð ekki hátt; mun
hún frá elstu tíð og sér þar nokkuð til fornra garða um tún meðalstórt, gott og grösugt. Lönd hefir býli þetta
átt utan hinnar syðri ár, þar með mestan hlut Skarðsdals og nokkuð út fyrir mynni hans. Eru haglönd góð á dalnum og engi nokkur
hið neðra í norðurhlíð hans. Kemur þaðan ytri áin, nefnd Grísará (6), en allt út frá henni
neðan við dalmynnið eru samfelld engi, slétt og fögur. Nefnist þar út til merkja Skarðsdalsengi (7). Engi eru og niður
frá bæ, nefnast þar innst Skarðsdalseyrar (8) en utar Skarðsdalsmýrar (9). Garður mikill og forn hefir
verið þvert yfir mynni dalsins nokkurn spöl upp frá bæ er nefnst hefir Skarðsdalsgarður (10). Hefir búfénaður
verið hafður ofan hans og friðuð engi Skarðsdals og Ness. Er glöggt á honum hlið vegarins.
Velkomin í Skarðsdalinn starfsfólk
24.04.2011
Gleðilega páska gott skíðafólk.
Svæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 SSV 2-4m/sek, hiti 5 stig, heiðskírt og glaða sól s s frábært
veður, færið er troðið harður og blautur snjór í bland, vorfæri á Neðstasvæðinu en mun betra eftir því sem ofar kemur,
hvet ég nú alla að taka daginn snemma. Í fjallið í gær komu um 700 manns í mjög góður veðri.
Flott að fara upp á Búngutopp og frískíða niður Þvergilið og niður Hraunadal eða Hrólfsvallardal og enda niður á
Þjóðvegi í Fljótum fyrir góða skíðara.
Við starfsfólkið hvetjum alla Vetrarkortshafa að bera kortin á sér yfir páskavikuna, það auðveldar okkur störfin og auðveldar
ykkur gestir góðir allt aðgengi og allir verð glaðir.
Fróðleiksmoli dagsins: Siglufjarðarháls (bygging Búngu-lyftu) Heimild mbl.is
FRAMKVÆMDIR við nýja skíðalyftu á skíðasvæðinu í Skarðsdal á Siglufirði eru komnar á lokastig. Lyftan sem
verður rúmir 500 metrar að lengd er viðbót við tvær aðrar lyftur á svæðinu og neðsta mastur hennar er í um 520 metra hæð.
Hún verður staðsett á svokölluðum Siglufjarðarhálsi eða á "Bungunni" eins og svæðið er stundum kallað.
Með þessari viðbót aukast möguleikar til keppnishalds til mikilla muna, auk þess sem öll aðstaða fyrir hinn almenna skíðamann batnar
verulega. Eftir að lyftan verður tekin í notkun verður um að ræða samfellda skíðabrekku sem er um 2 kílómetrar að lengd. Það
hefur vantað tilfinnanlega lyftu á efra skíðasvæðið til þess að nýta þær skíðabrekkur sem möguleiki er á
þar. Þetta gefur líka aukið svigrúm til meiri nýtingar á skíðasvæðinu á snjóléttum vetrum, þar sem
snjósöfnun á efra svæðinu er mun tryggari en á því neðra, enda nær nýja lyftan í allt að 700 metra hæð.
Velkomin í fjallið við tökum vel á móti þér
Starfsfólk
23.04.2011
Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið er mjög gott SA gola, hiti 2 stig, heiðskírt og sólin gleður í
dag, færið er mun berta en í gær það frysti í nótt og halda brekkur nokkuð vel í dag, ég hvet fólk til að taka daginn
snemma, allar brekkur eru klárar. Í fjallið í gær komu um 700 manns takk fyrir skíðamenn góðir.
Frískíðun niður Þvergilið og fleiri stöðum. Göngubraut í Skarðsdalsbotni og gott að ganga upp á Súlur utanbrautar.
Flott að fara upp á Búngutopp og frískíða niður í Hraunadal eða Hrólfsvallardal og enda niður á Þjóðvegi
í Fljótum fyrir góða skíðara.
Við starfsfólkið hvetjum alla Vetrarkortshafa að bera kortin á sér yfir páskavikuna, það auðveldar okkur störfin og auðveldar
ykkur gestir góðir allt aðgengi og allir verð glaðir.
Fróðleiksmoli dagsins: Súlur og Súlnabrúnir sunnan og ofan við Skíðaskálan í Skarðsdal. Heimild snokur.is
Sunnan Skarðsdals er fjall allhátt með tindum nokkrum og hvössum hryggjum; er það yst Siglufjarðarfjalla að vestan og nefnist Súlur (20) austan í þvi er breiður stallur mikið lægri og jafnlend nær lárétt brún vestan Siglufjarðardals, inn
að Selskál, nefnist hún Súlnabrún (21) en norðurendi hennar Súlnahaus (22) og niður af honum
upp frá Leyningi Súlnaröðull (23). Utarlega á hæðarstalli þessum er Súlnatjörn (24)
úr henni fellur lækur norður í Skarðsdalsá um Leyningskinn, nefndur Rjómalækur (25) þar upp af kinninni er
klettabelti er nefnist Kinnarklettar (26). Þó ótrúlegt sé nefnast hér nú Súlur aðeins hin lága
brún þó auðskilið sé að af tindum háfjallsins er nafn fjallsins komið. Vestur frá þeim eru fjallshryggir háir sem nefnast
mættu Háukambar (27) en svo nefna Siglfirðingar háfjallið allt.
Velkomin í Skarðsdalinn, við tökum vel á móti þér
Starfsfólk
22.04.2011
Svæðið er opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 SSA gola, hiti 7 stig og heiðskírt, færið er vorfæri í neðrihluta
svæðisins en er harðar eftir því sem ofar kemur, öll svæði opin í daga og allar brekkur eru inni.
Hólabraut, Bobbbraut, Pallar í Þvergili, Leikjabraut og Leikvöllur á Neðstasvæði.
Frískíðun niður Þvergilið og fleiri stöðum. Göngubraut í Skarðsdalsbotni og gott að ganga upp á Súlur utanbrautar.
Flott að fara upp á Búngutopp og frískíða niður í Hraunadal eða Hrólfsvallardalur og enda niður á Þjóðvegi
í Fljótum fyrir góða skíðara.
Við starfsfólkið hvetjum alla Vetrarkortshafa að bera kortin á sér yfir páskavikuna, það auðveldar okkur störfin og auðveldar ykkur
gestir góðir allt aðgengi og allir verð glaðir.
Fróðleiksmoli dagsins: Atburður á Klettahnjúki (fransmaður úti) Klettahnjúkur er vestan og ofan við sleppingu á T-lyftu.
Hrafnaþing varð til að líkið fannst
Örlygur segir að það hafi síðan líklega verið í október um veturinn sem að bóndi nokkur að Hraunum á Fljótum veitti
því athygli að hrafnar krunkuðu hátt upp í fjalli yfir Siglufjarðarfjöllum sunnanverðum. „Og sem reyndur bóndi vissi hann það
náttúrulega að eitthvað táknaði þetta nú.
Hann hringdi í lögregluna á Siglufirði og sagði frá þessu, og það varð til þess að út var gerður leiðangur nokkurra
manna. Gengu þeir á Selfjall og vestur fyrir það. Þar er lítill klettahnjúkur þar sem leitarhópurinn gekk fram að líki hins franska
ferðalangs.
Og vakti það athygli manna að hann var nakinn.“Örlygur segir manninn hafa legið nakinn uppi á
hnjúknum í sérstakri stellingu. „Það var engu líkara en að þarna hefði farið fram einhver athöfn.
Hvort það var nú sjálfsfórn eða hvað það nú var. En menn lögðu hann til á börum og hófst mikil ganga niður
með hinn látna við afar slæm skilyrði.
“Veður hafði versnað mjög, enda var komið fram í október, og segir Örlygur að
slagveðursrigningu hafi gert á meðan leitarhópurinn var á leið niður. Rigningin hafi breyst í hríð og voru menn í miklum erfiðleikum
með að koma sér niður af fjallinu til byggða.
Velkomin í Skarðsdalinn starfsfólk
21.04.2011
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið k 08:00 vestan 2-10m/sek, frost 1 stig og heiðskírt, færið er troðinn nýr snjór í bland
við harðfenni frábært færi í öllum brekkum.
Hólabraut, Bobbbraut, Pallar í Þvergili, Leikjabraut á Neðstasvæði og Leikvöllur.
Göngubraut í Skarðsdalsbotni og hægt er að ganga upp á Súlur.
Við starfsfólkið hvetjum alla Vetrarkortshafa að bera kortin á sér yfir páskavikuna, það auðveldar okkur störfin og auðveldar ykkur
gestir góðir allt aðgengi og allir verð glaðir.
Fróðleiksmoli dagsins:
Siglufjarðarskarð, Afglapaskarð sunnan við Siglufjarðarskarð
Tímasetningar
1724-1748
Efnisorð
Galdramenn, prestar, andatrú
Efni
Þorleifur Skaftason var prestur að Múla. Hann var mikill vexti, raddmaður mikill og andheitur. Hann var kjörinn af Steini biskupi til að vígja
Siglufjarðarskarð. Yfir þessu skarði hafði legið illur andi allt síðan úr heiðni sem birtist í stokkmynduðum skýstólpa sem kom
niður úr loftinu og ofan á hvað sem fyrir var og lá það dautt á eftir. Þorleifur hlóð altari úr grjóti og hélt
þar messu og stefndi þaðan vondum öndum í skarð er heitir Afglapaskarð. Hafa menn gengið þar í villu og beðið bana. Þorleifur
mælti fyrir að hver sem yfir skarðið færi skyldi gera bæn við altarið
Velkomin í Skarðsdalinn starfsfólk
20.04.2011
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 12:15 logn, hiti 1 stig, éljagangur og það er er töluverð
þoka á T-lyftusvæði, Neðstasvæði og T-lyftusvæði opna kl 13:00 og erum við með það í skoðun að opna
Búngusvæðið.
Fróðleiksmoli dagsins: Siglufjarðarskarð er í 624 metra hæð.
Upphaflega var fjallseggin í skarðinu svo mjó að þar mátti sitja klofvega með annan fótinn í Skagafjarðarsýslu en hinn í Eyjafjarðarsýslu. Í þessa egg hafði þó til forna verið
höggvið skarð, nægilega breitt til að unnt væri að koma klyfjahesti þar í gegn. Skarðið var svo sprengt
niður um fjórtán metra árið 1940 og í framhaldi af því var
lagður akfær vegur um skarðið árið 1946. Hann var yfirleitt aðeins fær
fjóra til fimm mánuði á ári vegna snjóþyngsla en þó var mikil samgöngubót að honum.
Veðurspá dagsins: Gengur í suðvestan 8-13 síðdegis með dálitlum slydduéljum eða éljum. Hiti um og yfir frostmarki. Hægari
í fyrramálið, en suðaustan 5-13 síðdegis á morgun og svolítil rigning. Hiti 2 til 7 stig.
Starfsfólk skíðasvæðisins