01.03.2016
Lokað í dag en opnum á morgun miðvikudaginn 2. mars kl 15-19
29.02.2016
Opið verður í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:30 er SSW 4-9m/sek og verður svo í dag, hiti um frostmark og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 3 km hringur.
Velkomin á skíði
Starfsmenn
28.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er mjög gott SW gola, frost 5 stig og heiðskírt og verður veðrið svo hér fyrir norðan í dag. Færið er troðinn þurr snjór. 7 skíðaleiðir troðnar.
Á svæðinu eru ýmsar leikjabrautur fyrir börnin Hólabraut, Bobbbraut og Æfintýraleið við Neðstasvæðið. Pallur og Hólabraut einnig á T-lyftusvæði
Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur, létt og góður fyrir alla.
Velkomin á skíði
Starfsmenn
27.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er bara gott logn, 4-6 stiga frost og léttskýjað. Færið er troðinn harðpakkaður snjór. Troðnar 7 skíðaleiðir.
Veður og færi eins og það gerist bezt.
Hólabraut, Bobbbraut og æfintýraleið við Neðstu-lyftuna og Pallar og Hólabraut við T-lyftuna.
Göngubraut á Hólssvæðinu 3 km hringur
Velkomin á skíði
Starfsmenn
26.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið er mjög gott WSW gola, frost 5 stig og léttskýjkað. Færið er troðinn harðpakkaður snjór, s s flott veður og færi í dag. 7 skíðaleiðir troðnar.
Skíðaleið liggur niður með skíðaveginum, gott að enda daginn með því að renna sér niður að sjávarmáli, þetta er ekki víða hægt.
Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur léttur og góður fyrir alla.
Velkomin á skíði
Starfsmenn
25.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið er bara gott SA gola, frost 6 stig og heiðskírt. Færið er troðinn harðpakkaður snjór frábært færi.
Göngubraut á Hólssvæði 3 km hringur.
Velkomin á skíði
Starfsmenn
24.02.2016
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er mjög gott logn, frost 4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og eru 6 skíðaleiðir troðnar. Veðurútlit næstu 4 daga er mjög gott.
Hólabraut, Bobbbraut og Æfintýraleið við Neðstu-lyftu og Hólar og Pallar við T-lyftusvæði.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæðinu ca 3 km hringur
Velkomin á Sigló
Starfsmenn
23.02.2016
Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 15:30 NNW gola, frost 2 stig en alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Opnum ekki Búngulyftu í dag, það er mjög mikil troðaravinna framundan en hún verður tilbúin á morgun.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
22.02.2016
Kl 13:30 Það verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið er mjög gott WNW gola, frost 3 stig og það er að létta til. Færið er troðinn þurr snjór en það hefur snjóað í brekkurnar ca 30-60 cm um helgina þannig að færið er mjög mjúkt. Hálslyfta opnar á milli 16-17.
Ath. það verður lögð göngubraut frá og með miðvikudeginum 24. febrúar á Hólssvæðinu ca 3 km hringur.
Það gengur hægt að troða í dag, það þarf mikið að moka til á svæðinu og mokstur á veginum er töluverð vinna. Nánari upplýsingar koma inn kl 14:00. Veðrið kl 12:00 vestan gola, frost 4 stig en alskýjað.
Það góða við stöðuna er að veðurútlit er bara gott út vikunna.
Svæðisstjóri
21.02.2016
Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 08:30 N 10-20 m/sek og töluverður skafrenningur. Miðað við veðurspá gengur veðrið ekki niður fyrr en seinnipartinn og er veðurútlit mjög gott næstu daga.
Skíðakennsla fyrir byrjendur verður næstu helgi frá kl 13-16 báða daga og er kent í 1/2 tíma lotum og er verð per lotu kr 2.000.-
Panta tíma með því að senda tp á skard@simnet.is
Sjáumst hress
Svæðisstjóri