20.02.2016
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris veðrið kl 08:45 NA 15-19m/sek og hviður 23-26m/sek og þá er bara eitt í stöðunni að fara í sund, síðan í bakaríið og enda daginn á því að slaka á fyrir átökin í fjallinu á morgun.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Svæðisstjóri
19.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott SSA gola, um frostmark við skíðaskálan (200m) en 3. stiga frost við sleppingu á Búngulyftu (650m) og það er léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór og eru troðnar 5 skíðaleiðir.
Veðurspá dagsins er sunna átt 2-7m/sek og lítilsháttar éljagangur af og til, þannig að það verður gott veður í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
18.02.2016
Opið í dag frá kl 13-20, veðrið kl 13:00 er mjög gott sunnan gola, frost 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór og er púðursnjór í dalnum ca 10-25cm.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
17.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 10:00 SSW 2-6m/sek og heiðskírt. Það verður hægviðri framan af degi og svo snýst í norðanátt í kvöld. Færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað ca 10-20 sm.
Opið á morgun fimmtudaginn 18. feb frá kl 13-20.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
16.02.2016
Í dag verður lokað en opnum á morgun kl 13:00-19:00 og það verður opið á fimmtudaginn 18. feb kl 13-20
Nýjar upplýsingar kl 10:00
Svæðisstjóri
15.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 15:00 ASA gola, 4. hiti í við skíðaskálan (200m) en 1. stiga hiti við sleppingu á Búngulyftu (650m) og léttskýjað. Færið er troðunn þurr snjór.
Það verður SA átt í dag en útlit með morgundaginn er ekki gott SV rok en frá miðvikudegi til föstudags lítur veðrið betur út.
Göngubraut tilbúin í Hólsdalnum.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
14.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:00 er mjög gott norðan gola, frost 4-7 stig og er að birta til í dalnum. Færið er troðinn þurr snjór. Búið að troða 7 skíðaleiðir.
Flott veður og færi í dag
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði ca 3 km hringur.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
13.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er ASA 2-6m/sek, frost 3-6 stig og léttskýjað. Það verður flott veður í dag. Færið er troðinn þurr snjór en það snjóaði aðeins í nótt og er færið mjög gott.
Göngubraut tilbúin í Hólsdalnum kl 12:00
Ath. vindmælir er bilaður.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
12.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið er mjög gott kl 09:30 SSW gola, frost 5-7 stig og heiðskírt en það mun snúast ti NA áttar þegar líður á daginn og mun fylgja því éljagangur. Færið er troðinn þurr snjór og það vantar ekki að færið er frábært.
Á svæðinu erum við með Hólabraut, Bobbbraut og Æfintýraleið.
Byrjendakennsla er um helgina og byrjar kl 13:00 báða dag, kennari er Salóme Rut og er kent í 30 mín lotum og er verð per lota kr 2.000.- skráning í síma 467-1806 og skard@simnet.is
Veðurútlit um helgina er mjög gott.
Göngubraut er klár í Hólsdalnum
Velkomin á Sigló
Starfsmenn
11.02.2016
Opið í dag frá kl 13-20, veðrið er mjög gott SSA gola, frost 1-3 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór, nú er flott skíðafæri utan við troðnar bautir.
Göngubraut tilbúin kl 14:00 á Hólssvæði ca 3 km hringur
Flottar aðstæður eru í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn