Fréttir

Sunnudagurinn 30 mars.

 Lokað í dag vegna veðurs, þaðer norðaustan og skafrenningur og því ekkert skíðaveður.

Föstudagurinn 28. mars.

Lokað verður í dag vegna veðurs, hér er kaldi  að n.a. og skafrenningur.

Fimmtudagur 27. mars.

Opið í dag frá 16 til 19. neðsta og T lyftur eru opnar, það er 5 stiga frost bjart og aðeins norðaustan kaldi, frábært færi er í fjallinu, gönguhringur er við Hól njótið útiveru meðan veður leyfir.

Miðvikudagurinn 26 mars.

Opnað verður kl 16 til 19 neðsta og T lyftur verða opnaðar, það er mjög gott færi frekar bjart yfir aðeins austan kaldi en aðeins  2 stiga frost. Verið velkomin á skíði.

Þriðjudagurinn 25. mars.

Lokað verður í dag, opnað verður kl 4. miðvikudag.

Mánudagurnn 24 mars.

Búið er að opna allar lyftur, það er frekar blint eins og er, en að öðruleyti gott færi, Við viljum þakka öllum þeim er heimsóttu okkur um páskana fyrir komuna og vonum að þeir hafi notið dvalarinnar á skíðasvæðinu um helgina. Um leið og við bjóðum alla velkomna á skíðasvæðið í framtíðinni.                                                               k.v. starfsmenn skíðasvæðis.

Sunnudagur 23 mars.

Gleðilega páska, hér uppfrá er frost um 5 stig logn og gott veður, frábært skíða færi, allar lyftur verða opnaðar kl. 10 til 17. Bjóðum alla velkomna á skíði,gönguhringur er við Hól.

Laugardagurinn 22 ,agúst.

Búið er að opna allar lyftur, það er gott veður og gott veður frábært færi,gönguhringur við Hól .

Föstudagurinn 21 mars.

Hér uppfrá er hiti rétt um frostmark hægur vindur gott færi neðsta lyftan og T lyftan opna kl 10, en búngulyftan verður aðeins seinna til eða um kl 12, gönguhringur verður vonandi til um kl 1. komið og njótið útiveru á skíðum.

Fimmtudagurinn .20 mars.

Því miður verður lokað í dag vegna veðurs, sem er skollið á hér, það á að ligna og birta í nótt og vonumst við því til að sjá sem flesta á skíðum á morgun.