19.03.2008
Það er opið í dag frá 14-18. Sv. 8-10 m/s og frekar blautur snjór. Verið velkomin á skíði.
17.03.2008
Það er opið frá 14 til 18 í dag. Það er frekar mikil blinda eins og er. Vonumst til að skyggnið lagist þegar lýður
á daginn, að öðru leyti er gott færi og veður. Verið velkomin á skíði.
17.03.2008
Þórir Kr. Þórisson bæjarstjóri tók tæplega 500 myndir um helgina, stór hluti af þeim er af skíðasvæðinu.
sjá hér: http://picasaweb.google.com/siglufjordur01/SkAsvISiglufirIOFl
16.03.2008
Opnað verður kl 11. allar lyftur eru klárar frábært færi og veður komið og njótið útiverunar í góða veðrinu.
Einnig er komin gönguhringur við Hól nú geta allir sprett úr spori,allir á skíði.
15.03.2008
Í gær bættist heldur betur við vélakost skíðasvæðisins í Skarðsdal á Siglufirði. Troðari að
gerðinni PistenBully 300W var tekinn í notkun. Troðarinn kemur á mjög heppilegum tíma þar sem mikið hefur snjóað síðustu
daga og páskarnir framundan.
15.03.2008
Þá er komið veðrið til að vera á skíðum. Frábært færi gott og veður, hvað er hægt að hafa það
betra. Við opnum kl 11 til 17. Neðsta og T eru klárar. Það er þónokkuð ísing á búnguni en hún verður vonandi klár um
hádegið, verið velkominn á skíði.
14.03.2008
Jæja þá er lokksins farið að byrta komið gott veður, það hefur bætt mikið á snjóinn en það er búið að
troða neðstu og T lyftu og verða þær lyftur opnaðar kl 4. Hvetjum alla til að láta sjá sig á skíðum þar sem veðurspá
er mjög góðfyrir helgina
13.03.2008
Hér uppfrá er norðaustan hríð það hefur bætt á um 30cm snjólag og verður þar af leiðandi lokað í dag. Vonum
að spáin standist fyrir morgundaginn og helgina ,en þar segir að það eigi að létta til á morgun og gott um helgina.
11.03.2008
Við tókum nokkrar myndir í dag upp í Skarði. Sjá undir myndir hér að ofan.
11.03.2008
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl. 16-19. Gönguhringur við Hól er klár. Veðrið hérna er mjög gott,
sól, logn og 4 stiga frost. Færi er mjög gott. Allir velkomnir á skíði.