01.01.2018
Gleðilegt nýtt skíðár með von um að það snjói heilu sköflunum.
Sjáumst hress í Skarðsdalnum á morgun kl 13:00
31.12.2017
Lokað á morgun nýársdag en opnum aftur 2. janúar kl 13-18
Gleðilegt skíða ár
Opið í dag frá kl 11-15, en einn topp dagurinn runnin upp, WNW gola, frost 5-6 stig og alskýjað, færið er draumur, troðinn þurr snjór, það hefur snjóað örlítið í dalnum góða.
1500 metra lögn brekka klár og Æfintýraleið og Þvergilsleið klárar.
Gönguspor tilbúið á Hólssvæði 1,5 km hringur.
Velkomin á skíði í dag.
30.12.2017
Ath. það verður opið á morgun gamlársdag frá kl 11-15
Og svo opið 2 . janúar frá kl 13-18
Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er N-gola, frost 5-6stig og er heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór.
Það er framundan frábær dagur, flott færi og flott veður.
Neðstabrekka og T-lyftubrekka troðnar og einnig er Æfintýraleið og Þvergilsleið klárar.
Það er tilbúið gönguspor á Hólssvæði ca 1,5 km hringur.
Velkomin í Skarðsdalinn
29.12.2017
Opið í dag frá kl 12-17, veðrið WSW gola, frost 9-10 stig og heiðskírt, færið er troðinn þurr snjór.
S s !!dásamlegur dagur framundan!! Flott færi og flott veður.
Æfintýraleið við Neðstasvæðið og skíðaleið út í Þvergil á T-lyftusvæði til að púðra.
Velkomin í Skarðsdalinn
Opið næstu daga
30. des opið kl 11-16
31. des opið kl 11-15
2. jan opið kl 13-18
28.12.2017
Opið í dag frá kl 12-17, veðrið er SA gola, frost 9 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór, það hefur snjóað um 20 cm í nótt. !!Púðursnjór dásamlegt!!
Frábært veður og færi í dag. Veðurútlit næstu daga er mjög gott.
Velkomin í Skarðsdalinn
Opið næstu daga
29. des opið kl 12-17
30. des opið kl 11-16
31. des opið kl 11-15
2. jan opið kl 13-18
27.12.2017
Opið í dag frá kl 12-17, veðrið kl 14:00 logn, frost 6 stig og léttskýjað Færið er troðinn þurr snjór. Flott færi og veður í dag.
Æfintýraleið og Þvergilsleið klárar.
Velkomin í fjallið
26.12.2017
Gleðilega hátíð
Kl 15:00 er lokað
Opið í dag frá kl 12-16. veðrið kl 10:45 ANA 8-15m/sek, frost 4 stig og er lítilsháttar éljagangur og skafrenningur. Færið er troðinn þurr snjór, það bætir á snjóinn hægt og býtandi þannig að það er orðið silkifæri.
Byrjum á að opna Neðstu-lyftuna en erum með það í skoðun að opna T-lyftu en þar er töluvert blint.
Velkomin í fjallið
25.12.2017
Gleðileg jól
Opið í dag frá kl 12-16, veðrið er NA 2-6m/sek, 7 stiga frost og lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn þurr snjór.
ATH. skíðið í troðnum brautum.
Mögulega verður T-lyftan opnuð aðeins síðar en kl 12:00
Opið næstu daga
26. des opið kl 12-16
27-30. des opið kl 12-17
31. des opið kl 11-16
2. jan opið kl 12-18
24.12.2017
Gleðileg skíðajól og hafið það gott um jólin.
Jólagjöfin til ykkar er að við opnum skíðasvæðið á morgun jóladag kl 12-16
Sjáumst hress um jólin
22.12.2017
Það verður lokað í dag vegna aðstæðna, kl 14:00 er 3 stiga hiti og brekkur á nokkrum stöðum farnar að láta á sjá eftir SW rokið, mjög stutt niður á grjót.
Það jákvæða er að nú mun snjóa hjá okkur næstu daga heilu sköflunum miðað við veðurspá.
Opnum næst þriðjudaginn 26. des á annan í jólum
Sjáumst hress í Skarðsdalnum