06.04.2013
Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 11-16. Veðrið kl 08:00 austan gola, frost 6 stig og heiðskírt. Færið er unnið
harðfenni á Neðstasvæðinu, T-lyftusvæði , Háls-lyftusvæði og innrileið á Búngusvæði en búngubakki er með ca
5-10 cm snólag.
Göngubraut verður tilbúinn kl 13:00 á Hólssvæði
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
05.04.2013
Ath. Skíðasvæðið verður opið frá kl 11-16 um helginna.
Takið fimmtudaginn 11. apríl frá, skíðadagur í Skarðsdalnum í boði Sparisjóðs Siglufjarðar sem á 140 ára
afmæli á þessu ári. Frítt í lyftur og allur skíðabúnaður til staðar í boði Sparisjóðsins. Músík,
pylsugrill og bara gleði. Nánari upplýsingar í næstu viku.
Í dag verður opið frá kl 14-19. Veðrið kl 09:30 austan 2-5m/sek, frost 3 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og
heldur snjórinn mjög vel.
Flott veður og flott færi.
Veðurútlit næstu 3 dag er mjög gott svo nú er um að gera að nýta þessa helgi í góða veðrinu.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
04.04.2013
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:00 austan gola, hiti 1 stig og alskýjað. Færið er troðinn blautur snjór. Miðað við
veðurspá á að létta til þegar líður á daginn og kólna og er útlitið um helginna mjög gott frost og stilla.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
03.04.2013
Opið í dag miðvikudaginn 3. apríl frá kl 15-19. Veðrið kl 10:40 vestan gola, hiti 2 stig og léttskýjað. Færið er troðinn
þurr snjór, það er troðinn hluti af T-lyftu brekku og öll neðsta brekkan. Hluti af Búngusvæðið og hluti af
Hálslyftusvæði.
Göngubraut er á Hólssvæði 4 km hringur.
Velkomin á skíði í dag.
Starfsmenn
02.04.2013
Frábærir páskar að baki. Lokað í dag þriðjudaginn 2.apríl, en svæðið verður opnað aftur á miðvikudaginn 3.
apríl kl 14-19. Frábær páskahátíð að baki en gestir inn á svæðið voru 5 þúsund sem er algjört met í
aðsókn yfir páska.
Vil ég koma miklu þakklæti til ykkar skíðagestir góðir, þið voru frábær.
Opnunar dagar eru komnir í 90 og heildar gesta fjöldi er komin í 16. þúsund.
Góðar kveðjur frá okkur öllum. Egill, Óðinn, Kári, Björn, Birgir og Sigurjón lyftudrengir og miðasöludömurnar
Kristín Júlí og Sjöfn Ylfa.
Sjáumsr hress í Skarðsdalnum en síðasti opnunar dagur verður sunnudaginn 28. apríl.
01.04.2013
Frábærir páskar að baki.
Klukkan er orðin 16:00 og höfum við lokað í dag og verður lokað á morgun þriðjudaginn 2.apríl en svæðið verður
opnað aftur á miðvikudaginn 3. apríl kl 15-19. Frábær páskahátíð að baki en gestir inn á svæðið voru 5
þúsund sem er algjört met í aðsókn yfir páska. Vil ég koma miklu þakklæti til ykkar skíðagestir góðir,
þið voru frábær.
Góðar kveðjur frá okkur öllum. Egill, Óðinn, Kári, Björn, Birgir og Sigurjón lyftudrengir og miðasöludömurnar
Kristínu Júlí og Sjöfn Ylfu.
1. apríl skemmtilegur dagur framundan vegna þess að það verður opið í dag frá kl 10-16 og veðrið er það sama og undanfarna 9 daga
logn, frost 1 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór Búngusvæði og Hálslyftusvæði troðið í nótt
en neðri svæðin tvö troðin undir morgun.
Það er sama sagan frábært veður og frábært færi.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði 4 km hringur.
Velkomin að kveðja páskana í Skarðsdalnum í dag.
Egill, Óðinn, Kári, Björn, Birgir, Sigurjón og miðasöludömurnar Kristín Júlía og Sjöfn Ylfa.
31.03.2013
Gleðilega páska.
Í dag páskadag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:00 bara gott SA gola, frost 2 stig og léttskýjað. Færið er troðinn
þurr snjór. Allar brekkur troðnar í nótt.
S s frábært veður og enn betra færi, það er ekki hægt að fá betri aðstæður.
Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur léttur og góður.
Páskaeggjarennsli við neðstu-lyftu fyrir 10 ára og yngri fer fram kl 13:00, allir sem taka þátt fá lítið páskaegg þegar
rennsli er lokið.
Velkomin á skíði í dag.
Starfsmenn
30.03.2013
KL 16:00 frábær dagur að baki, um 1000 manns komu í fjallið í dag og allt gékk mjög vel. Takk kærlega fyrir daginn skíðagestir
góðir, sama veðurblíða á morgun, sjáumst hress á morgun. Strákarnir í fjallinu Egill, Óðinn, Kári, Björn, Birgir og
Sigurjón og miðasölu-daman hún Kristín Júlía taka vel á móti ykkur á morgun.
Ath. það er orðið lítið eftir af skíðabúnaði til leigu. Örfá skíði og brettir.
Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:20 austan gola, frost 5 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór,
það hefur snjóað ca 10-20 cm í brekkur.
S s frábært veður og frábært færi.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði kl 12:00
Lifandi tónlist við Skíðaskálan !! Gómar!!
Í gær komu um 1200 manns inn á svæðið.
Velkomin á skíð í dag
Starfsmenn
29.03.2013
Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:00 sama veður blíðan áfram WSW 2-6m/sek, hiti 2 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór, allar brekkur troðnar í nótt.
Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur.
Barnagæsla í frá kl 12:00-14:00 í boði TM-trygginga. Í umsjón Smástráka.
Þessir styrkja skíðasvæðið TM-tryggingar, Réttingaverkstæði Jóa, Skeljungur, Sparisjóðurinn, Bás verktakar og
Bifreiðaverkstæði Jónasar.
Leikjabraut við Neðstu-lyftu fyrir þau yngstu.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
28.03.2013
Tökum tillit til til hvors annars, mig langar að koma á framfæri til snjósleðamann að keyra ekki yfir göngubraut og meðfram
göngufólki á Hólssvæði, það er pláss fyrir alla og enginn er að banna neinum að njóta útivistar, verum öll vinir
næstu daga.
Frábær skíðadagur að baki en dagurinn í dag var met dagur síðan Valló tók við rekstri skíðasvæðisins fyrir
5 árum en inn á svæðið í dag komu um 1100 manns og er sennilega stærsti dagur á skíðasvæði á Siglufirði fyrr og
síðar og enn eru eftir nokkrir góðir dagar.
Gómar mæta á svæðið á morgun kl 13:00 með létta sveiflu.
Veðurspá næstu 4 daga er bara blíða svo nú er um að gera að mæta á svæðið, við strákarnir tökum vel
á móti ykkur. Egill, Óðinn, Kári, Björn, Sigurjón og Birgir og svo má ekki gleyma stúlkunum í miðasölunni Sjöfn Ylfu og
Kristínu Júlíu.
Í dag skírdag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:00 sama veður blíða og hefur verið síðustu 7 daga, logn, frost 1 stig og
léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.
S s frábært veður og frábært færi.
Göngubraut á Hólssvæði 4 km hringur.
TM tryggingar bjóða upp á barnagæslu í dag á milli 12:00-14:00.
Skíðakennsla er í fullum gangi, fjórði hver fær fría kennslu í boði TM trygginga.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn