16.04.2013
Í dag verður lokað vegna aðstæðna. Það þarf að taka út svæðið með tilliti til snjóflóðahættu,
töluverður snjómokstur er upp á svæðið og mikil troðaravinna er framundan á öllu svæðinu. Veðrið kl 10:30 ANA 10-14m/sek, frost
3 stig og alskýjað.
Stefnum á að opna á morgun þegar allt verður vonandi klárt.
Starfsmenn
15.04.2013
Í dag verður lokað vegna veðurs og aðstæðna.
Veðrið kl 11:30 ANA 8-15m/sek, frost 3 stig og töluverður éljagangur, einnig hefur snjóað mikið á svæðinu og þarf að
skoða snjóalög vel áður en opnað er. Veðurspá er mjög góð næstu daga.
Nýjar upplýsingar á morgun um kl 10:00
Starfsmenn
14.04.2013
Í dag verður lokað vegna veðurs. Veðrið kl 11:00 ANA 15-20m/sek, frost 3 stig og töluverð ofankoma.
Starfsmenn
13.04.2013
KL 09:30 það verður lokað í dag vegna hvassviðris WSW 6-14m/sek á neðra-svæðinu en WSW 8-18m/sek í efri-hlutanum. Það eru
mjög veik snjóalög á svæðinu, það hefur snjóða ca 30-40 cm í nótt og í morgun.
Opnun er í skoðun. Veðrið kl 08:00 SW 4-14m/sek, frost 6 stig og töluverð snjókoma.
Nýjar upplýsingar kl 09:30
Starfsmenn
12.04.2013
Í dag verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 12:30 logn, frost 5 stig, það gengur á með smá éljagangi og svo er heiðskírt
á milli. Færið er troðinn nýr snjór og hefur snjóað ca 20-30 cm á síðasta sólahring. Færið er töluvert
mjúkt. Flott utanbrautar færi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
11.04.2013
kl 15:40 Eingöngu verður opin neðsta-lyftan í dag. Færi og skyggni er ekki gott á T-lyftusvæði, gengur á með dimmum
éljum.
Í dag verður opið frá kl 16-19. veðrið kl 15:00 NA 3-7m/sek, frost 8 stig, smá éljagangur af og til. Færið er troðinn nýr
snjór, það er töluvert mjúkt færi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
10.04.2013
Í dag verður lokað vegna hvassviðris. Veðrið kl 13:00 ANA 8-16m/sek, frost 6 stig og töluverður skafrenningur.
Staðan verður tekin kl 10:00 í fyrramálið.
Starfsmenn
09.04.2013
Í dag verður lokað, opnum aftur á morgun.
Nýjar upplýsingar um kl 13:00
Starfsmenn
08.04.2013
í dag verður opið frá kl 16-19. Veðrið kl 13:30 logn, frost 1 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór.
Það er ljómandi veður í dag og færið er mjög gott.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
07.04.2013
Kl 14:30 höfum við lokað vegna veðurs SV 4-15m/sek. Opnum á morgunn kl 16-19
Í dag verður opið frá kl 11-16. Veðrið kl 12:00 SV 2-8m/sek, frost 2 stig, smá éljagangur og er skyggnið erfitt.. Færið er unnið
harðfenni. Allar brekkur troðnar í gær.
Skíðakennsla hefst í dag kl 11:00.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði 4 km.
Velkomin á skíði
Starfsmenn