08.12.2013
Tilboð á vetrarkortum til 18. desember Fullorðinskort kr 21.000.- Barnakort kr 8.000.- Framhalds/háskólanemar kr 8.000.-
Í dag verður opið frá kl 11-15. Veðrið kl 09:30 ASA 1-4m/sek, frost 2 stig og lítilsháttar éljagangur.
Færið er troðinn nýr snjór.
Velkomin í fjallið.
Starfsmen
07.12.2013
Tilboð á vetrarkortum til 18. desember
Fullorpinskort kr 21.000.-
Barnakort kr 8.000.-
Framhalds/háskólanemar kr 8.000.-
Í dag er opið frá kl 11-16. Veðrið kl 09:00 austan 2-6m/sek, frost 8 stig og heiðskírt.
Færið er mjög gott harðpakkaður nýr snjór í troðnum brekkum og mikið púður utan brautar.
Ath. það er nokkuð kalt hjá okkur eða um 8-14 stiga frost og vindkæling um 14-18 stiga frost. Klæðið ykkur mjög vel.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
06.12.2013
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 14:00 SW gola, frost 13 sig og heiðskírt.
Færið er troðinn nýr harðpakkaður snjór.
Mjög gott færi fyrir alla og töluvert af púðri, flott fyrir utanbrautaskíðun.
Velkomin í Skarðsdalinn já velkomin.
Starfsmenn
05.12.2013
Það verður lokað í dag vegna veðurs.
Veðrið kl 14:00 ANA 4-15m/sek, frost 12 stig og er töluverður skafrenningur. Vindkæling er um -23 sem er töluvert mikið á þessum tíma.
Snóalög eru að verða með ágætum á svæðinu svo nú vantar okkur bara góða veðrið.
Sjáumst hress á morgun en þá lofum við betra veðri.
Nýjar upplýsingar um kl 12:00
Starfsmenn
04.12.2013
Í dag verður lokað, erum að nota daginn til að vinna brekkurnar. Það hefur snjóað töluvert hjá okkur.
Nú klukkan 13:00 er töluverð snjókoma og skafrenningur, frostið er 11 stig.
Það lítur mjög vel út með morgundaginn, opnum kl 15 á morgun.
Nýjar upplýsingar kl 10:00 í fyrramáli
Starfsmenn
03.12.2013
Kl 15:00 Það verður lokað í dag vegna veðurs.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 13:00 Opnum á morgun kl 15-19
Starfsmenn
Erum með opnun í skoðun kl 16:00. Veðrið kl 12:30 SW 3-10m/sek og hviður 15-20m/sek, frost 4 stig og töluverður skafrenningur.
Nýjar upplýsingar kl 15:00
Starfsmenn
02.12.2013
Kl 15:00 SW 4-14m/sek og hviður 20-28m/sek, frost 3 stig og töluverðru skafrenningur.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 13:00
Starsfmenn
Veðrið kl 11:35 SW 4-14m/sek og hviður uppí 18-23m/sek, frost 3 stig, töluverður skafrenningur.
Nýjar upplýsingar kl 15:00
Starfsmenn
01.12.2013
Kl 10:00 SSW 4-15m/sek, hiti 7 stig og rigning.
S s rok og rigning.
Nýjar upplýsingar á morgun mánudaginn 2. desember kl 13:00
Starfsmenn
Kl 09:00 SW 2-3m/sek, frostmark og alskýjað.
kL. 08:00 Erum með opnun í skoðun. Veðurspá er okkur ekki í hag.
Veðurspá dagsins vaxandi sunnan- og síðar suðvestanátt og rigning, 15-23 m/s undir hádegi. Suðvestan 10-18
í kvöld og á morgun og él. Hiti 3 til 8 stig, en vægt frost á morgun. Spá gerð: 01.12.2013 06:31. Gildir til: 02.12.2013 18:00.
Nýjar uplýsingar kl 10:00
Starsfmenn
30.11.2013
Kl 10:00 lokað vegna hvassviðris SSV 4-10m/sek og 25-35m/sek í hviðum.
Nýjar upplýsingar kl 08:00 á morgun.
Starfsmenn
Kl 08:00 er mjög hvasst hjá okkur SSV 8-24m/sek og eru hviður um 30-35m/sek, hiti 4 stig.
Tökum stöðunna kl 10:00
Starfsmenn
29.11.2013
Þetta lítur ágætlega út hjá okkur, stefnum á að opna á morgun laugardaginn 30. nóvember og í framhaldinu verður opið
alla dag nema þriðjudaga.
Á svæðinu í dag er 3-5 stiga frost og smá éljagangur.
Forsala vetrarkorta er í fullum gangi.
Fullorðnir kr 21.000.- (18 ára og eldri)
Barnakort kr 8.000.- (9-17 ára)
Framhalds og háskólakort kr 8.000.-
Nú fylgir svokallað Norðurlandskort með hverju vetrakorti sem keypt er í Skarðsdalnum og veitir það handhöfum tveggja daga lyftumiða á
skíðasvæðunum á norðurlandi þ.e. Dalvík, Ólafsfirði, Hlíðarfjalli og Sauðárkrók
Sendið tölvupóst á skard@simnet.is með upplýsingum er varðar vetrarkort. Nú eða komið í heimsókn í
fjallið.
Starfsmenn