06.03.2013
Lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 15:00 ENE 17-25m/sek og meira í hviðum en mesta hviða á þessum sólahring er 42,5m/sek, frostið er
7 stig og er mikill skafrenningur.
En þetta stendur allt til bóta, veðrið á að ganga niður næsta sólahringinn og lítur ágætlega út með
veðrið um helginna.
Nýjar upplýsingar um kl 12:00 á morgun
Starfsmenn
05.03.2013
Það verður lokað í dag. Veðrið kl 13:00 NA 7-14m/sek, og hviður upp í 20m/sek, frost 10 stig en veðurspá er ekki ekki góð fyrir
daginn í dag og á morgun en það lítur miklu betur út með veður eftir miðvikudaginn þá gengur hann í hæga austan
átt.
Það hefur ekki mikið snjóða í Skarðsdalinn enda hefur verið mjög hvasst með þessu og sennilega er allur snjórinn fokinn upp
á hálendið, en það er nægur snjór í öllu brekkum á skíðasvæðinu, frá 1 meter og upp í 5-6 metra á
Búngusvæði.
Skíðasvæðið opnar aftur á fimmtudaginn 7. febrúar
Nýjar upplýsingar um hádegið á morgun.
Starfsmenn
04.03.2013
Lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 15:00 ENE 15-25m/sek og hviður upp í 38m/sek, frost 9 stig og töluverður éljagangur og þessu fylgir
mikill skafrenningur.
Veðurspá er okkur ekki í hagstæð til fimmtudags 7. mars en þá á veðrið að lagast.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 13:00
Starfsmenn
03.03.2013
Kl 12:00 höfum við lokað vegna veðurs og mikils skafrennings.
Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 11:00 V 2-8m/sek, frost 6 stig, töluverð snjókoma og ekki gott skyggni. Færði er troðinn
nýr snjór. Takið daginn snemma veðurspá er ekki góð þegar líður á daginn, við gætum þurft að loka svæðinu
með stuttum fyrirvara.
Það verður ekki skíðakennsla í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
02.03.2013
Það verður opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 09.00 VSV 2-6m/sek, frost 3 stig og léttskýjað. Færið er unnið
haðfenni og er nýr snjór yfir, það hefur snjóað aðeins.
Vetrarhátíð ÚÍF fer fram um helginna og verður leikjabraut við Neðstu-lyftu og kynning á gönguskíðum á
Hólssvæði.
Göngubraut á Hólssvæði ca 3-4 km hringur.
Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er
bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er
Salóme Rut Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.
Velkomin á skíði í dag.
Starfsmenn
01.03.2013
Í dag verður lokað vegna aðstæðna. Á svæðinu kl 10:00 er rok og rigning, hiti 7 stig. Það er ekki hægt að vinna brekkur
við þessar aðstæður.
Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut
Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.
Morgundagurinn lítu mjög vel út en á morgun verður komið frost og bjart veður.
Sjáumst á morgun laugardaginn 2. mars kl 10:00
Starfsmenn
28.02.2013
Ath. það verður opið í dag fimmtudaginn 28.febrúar og föstudaginn 1. mars kl 13-19.
Í dag verður opið frá kl 13-19. Veðrið kl 17:00 SA gola, hiti 2 stig og alskýjað. Færið er unnið harðfenni en það hefur
aðeins snjóað ofan-á og er færið ágætlega mjúkt fyrir alla.
Skíðakennsla verður í fjallinu um helgar í vetur og byrjar kennslan kl 11:00 bæðið laugardaga og sunnudaga, þessi kennsla er bæði
fyrir byrjendur og lengra komna. Gjaldið er 1.500.- per mann í 1/2 tíma en kennarinn getur tekið 2 nemendur á hverjum 1/2 tíma. Kennari er Salóme Rut
Kjartansdóttir og er hún með kennsluréttindi.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
27.02.2013
Í dag verður lokað vegan hvassviðris. Veðrið kl 12:30 VSa 5-12m/sek og hviður upp í 20m/sek, hiti 4 stig en léttskýjað. Veðrið
á morgun fimmtudaginn 28. febrúar lítur ágætlega út.
Nýjar upplýsingar kl 12.00 á morgun 28. febrúar
Starfsmenn
26.02.2013
Lokað í dag þriðjudaginn 26. febrúar, opnum aftur á morgun miðvikudaginn 27. febrúar kl 15-19
Nýjar upplýsingar kl 12:00
Starfsmenn skíðasvæðisins
25.02.2013
Í dag mánudaginn 25. febrúar verður lokað vegan aðstæðna. Nú kl 12:00 er mikill hiti og rigning þannig að við náum ekki
að vinna brekkurnar, okkur vantar frost sem kemur á miðvikudaginn.
Veðrið kl 10:00 SSW 2-13m/sek og 18 m/sek í hviðum, lítilsháttar rigning og hiti 10 stig.
Ný myndbönd komin inn hér til hægri á síðunni, endilega að skoða.
En og aftur langar okkur starfsmönnum skíðasvæðisins að þakka þeim fjölmörgu sem hafa heimsótt skíðasvæðið
á síðustu 7 dögum en gestir inn á svæðið á þessum dögum eru 2 þúsund. Svona til gamans eru gestir inn á
svæðið frá 1. des og til 24. feb komnir í 7 þúsund.
Velkomin aftur
Starfsmenn