Fréttir

Enginn titill

Mánudaginn 14. apríl opið 13-19

Opið næstu daga mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl 13-19 og skírdag-annan í páskum kl 10-16. Páskatilboð skírdag-annan í páskum. Fullorðnir kr 12.000.- Börn kr 3.000.- Vasakort kr 1.000.- skilagjald kr 500.- Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 17:00 SA gola, hiti 3 stig og lítilsháttar úrkoma. Færið er troðinn þurr snjór. Allar lyftur opnar.  Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km hringur. Velkomin á skíði Starfsmenn

Sunnudaginn 13. apríl opið 10-16

Opið næstu daga mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl 13-19 og skírdag-annan í páskum kl 10-16. Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 09:50 logn, frost 1 stig, léttskýjað og sú gula er að sýna sig. Færið er troðinn þurr snjór, flott færi fyrir alla. Utanbrautarfæri er ágætt það hefur snjóað ca 10-20cm og eru gilin með aðeins meira af nýjum snjó. Göngubraut á Hólssvæði ca 3 km hringur. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Laugardaginn 12. apríl opið 10-16

Skoðið nýtt myndband hér til hægri á síðunni. Aðstæður í Skarðsdalnum eru frábærar. Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 10:00 austan 5-10m/sek, frost 2 stig og alskýjað. Það hefur lægt töluvert síðan kl 06:00 í morgun. Færið er troðinn þur snjór. Flott færi fyrir alla. Veðruspá dagsins:  Strandir og Norðurland vestra Norðaustan 10-15 m/s og snjókoma fram eftir morgni, en síðan norðan 8-13 og él. Hægari í kvöld, en norðan 3-8 og stöku él á morgun. Hiti kringum frostmark. Spá gerð: 12.04.2014 06:35. Gildir til: 13.04.2014 18:00. Nú þurfa allir skíðaiðkendur í Skarðsdalnum að kaupa sér vasakort hvort sem er fyrir dagspassa eða vetrarkort. Kortið kostar 1.000 kr og er skilagjaldið 500 kr. Vasakortin eru mjög þægileg því ekki þarf að stinga þeim í lesara, aðgangsbúnaðurinn les kortið í vasa viðkomandi. Vasakortið er fjölnota og hægt að nota ár eftir ár. ATH að hægt er að fylla á vasakort úr Bláfjöllum, Hlíðarfjalli og öllum öðrum skíðasvæðum sem eru með skidatakerfi. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 11. apríl opið kl 13-19

Skoðið nýtt myndband eftir Gulla Stebba hér til hægri á síðunni. Aðstæður í Skarðsdalnum eru frábærar. Nú þurfa allir skíðaiðkendur í Skarðsdalnum að kaupa sér vasakort hvort sem er fyrir dagspassa eða vetrarkort. Kortið kostar 1.000 kr og er skilagjaldið 500 kr. Vasakortin eru mjög þægileg því ekki þarf að stinga þeim í lesara, aðgangsbúnaðurinn les kortið í vasa viðkomandi. Vasakortið er fjölnota og hægt að nota ár eftir ár. ATH að hægt er að fylla á vasakort úr Bláfjöllum, Hlíðarfjalli og öllum öðrum skíðasvæðum sem eru með skidatakerfi. Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið 16:15 ASA 2-8m/sek, frost 2 stig og alskýjað. Brekkur eru troðnar nýr snjór og harðfenni í bland. Göngubraut á Hólssvæði eftir troðara með spori. Velkomin í Skarðsdalin Starfsmenn 

Fimmtudaginn 10. apríl opið kl 14-19

Nú þurfa allir skíðaiðkendur í Skarðsdalnum að kaupa sér vasakort hvort sem er fyrir dagspassa eða vetrarkort. Kortið kostar 1.000 kr og er skilagjaldið 500 kr. Vasakortin eru mjög þægileg því ekki þarf að stinga þeim í lesara, aðgangsbúnaðurinn les kortið í vasa viðkomandi. Vasakortið er fjölnota og hægt að nota ár eftir ár. ATH að hægt er að fylla á vasakort úr Bláfjöllum, Hlíðarfjalli og öllum öðrum skíðasvæðum sem eru með skidatakerfi. Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 12:00 logn, frost 3 stig, en það er að birta til hjá okkur. Færið er troðinn þurr snjór. Skoðið nýtt myndband eftir Gulla Stebba hér til hægri á síðunni. Aðstæður í Skarðsdalnum eru frábærar. Velkomin í fjallið Starsfmenn

Miðvikudaginn 9. apríl opið kl 14-19

Skoðið nýtt myndband eftir Gulla Stebba hér til hægri á síðunni. Aðstæður í Skarðsdalnum eru frábærar. Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 14:30 logn, 4 stiga hiti og heiðskírt Glæsilegt veður í dag. Færið er troðinn blautur snjór. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Þriðjudaginn 8. apríl lokað

Skoðið nýtt myndband eftir Gulla Stebba hér til hægri á síðunni. Aðstæður í Skarðsdalnum eru frábærar. Það verður lokað í dag. Opnum aftur á morgun 9. apríl kl 14:00 Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00. Nú styttist í Fjallafjörið um Páskana. Opið verður alla daga frá 9. apríl-21. apríl. Verðum með Palla, Leikjabraut, Bobbbraut og fl og svo að sjálfsögðu góða skapið. Umsjónarmaður

Mánudaginn 7. apríl opið 15-19

Neðsta-lyfta opnar kl 13:00. Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 09:30 logn, hiti 4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn blautur snjór. Frábært utanbrautarfæri. Skoðið þetta flotta myndband sem Gunnlaugur Guðleifsson tók. http://vimeo.com/90800580 Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Sunnudaginn 6. apríl opið 10-16

Í dag verður opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:00 S-gola, 5 stiga hiti, léttskýjað og sólin að brjótast í gegn. Færið er troðinn vorsnjór. Tróðum Neðstasvæðið og Hálslyftubakka í gærkveldi, annað er troðið nú í morgun. Það mun verða mjúkt færi í dag, en ágætis færi fyrir utanbrautarskíðun. Skarðsdalurinn er búinn að vera aldeilis flottur síðustu 12 daga logn, sól og snjór í mörgum metrum. Utanbrautar- færi eins og það gerist bezt. Fallið frá efstu brekkum og niður að skála er 500 metrar. Skoðið þetta vidio http://vimeo.com/90800580 Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn