22.04.2014
Opið í dag frá kl 13-16. Veðrið er bongó-blíða og bara gleði. Vestan-gola, hiti 5 stig, heiðskírt og sú gula er í
aðalhlutverki.
Færið er mjúkur snjór og nokkuð harðfenni er í erfihlutanum en það mun mýkjast þegar líður á daginn.
S s frábært veður og frábært færi
Hér er áætluð voropnun í Skarðsdalnum og nú er að fjölmenna í dalinn góða.
Opið í dag 22. apríl kl 13-16. Lokað á miðvikudaginn 23. apríl. Opið á sumardaginn fyrsta 24. apríl og um næstu helgi 26-27.
apríl. Opið 1. maí og 3 og 4 maí og síðustu opnunardagar verða 17 og 18. maí.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
21.04.2014
Opið á morgun 22. apríl kl 13-16.
Lokað á miðvikudaginn 23. apríl.
Opið á sumardaginn fyrsta 24. apríl og um næstu helgi 26-27. apríl.
Opið 1. maí og 3 og 4 maí og síðustu opnunardagar verða 17 og 18. maí.
Umsjónarmaður
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 S-gola, frostmark, léttlskýjað og sólin farinn að sýna sig í Skarðsdalnum.
Færið er troðinn þurr snjór en það er harðfenni undir. Sama góða færið og hefur verið síðustu daga. Opnum allar lyftur en
við bendum á að það er töluvert harðfenni á Búngusvæði.
Göngubraut á Hólssvæði
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
20.04.2014
Páskadagur opið frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 SSW 2-8m/sek, hiti 1 stig, alskýjað og lítilsháttar éljagangur.
Færið er troðinn þurr snjór ofaná harðfenni. Páskaeggjabraut fyrir 10 ára og yngri á Neðstasvæði kl 13:00. Það
getur orðið fjölmenni á svæðinu í dag og hjálpumst að til að Páskaeggjabrautin gangi vel og hliðrum til fyrir börnunum.
Opnum 3 lyftur til að byrja með, það er of hvasst á Búngusvæðið.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði kl 12:00 ca 3 km hringur.
Tökum tillit til hvors annar á bílastæðum, miðasölu og við lyftur.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
19.04.2014
Kl 18:00 Flottur dagur að baki en krefjandi. En um 1200 manns komu í Skarðsdalinn á skíði eða bara nutu útiverunar. Við starfsmenn reyndum eins
og við gátum til að þjónusta ykkur en ég veit að þetta var erfitt á ýmsan hátt, bílastæði, miðasala og miklar
biðraðir í lyftum og vil ég þakka ykkur skíðagestum góðum fyrir tillitsemina sem þið sýndu okkur starfsfólkinu.
Sjáumst hress á morgun, opnum kl 10-16.
Umsjónarmaður Egill Rögnvaldsson
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 09:00 WSW 2-8m/sek, frost 1 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn nýr snjór og er harðfenni undir. Sama góða færið og var á skírdag.
KL 10:00 verðum við búnir að troða Neðstasvæðið og T-lyftusvæði en þegar við erum að opna erum við en að troða
efrisvæðin tvö. Ekki hægt að byrja að troða vegan roks kl 05:00 í morgun. Annar snjótroðarinn er bilaður.
Göngubraut á Hólssvæði ca 5 km hringur tilbúinn kl 13:00
Velkomin á skíði í dag.
Starfsmenn
18.04.2014
KL 12:00 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris,SW 1-6m/sek og hviður 20-25m/sek og þessu fylgir töluverður skafrenningur.
Þeir sem vilja nýta sér brekkurnar til að ganga og skíða er velkomið að gera það, brekkurnar eru sléttar og fínar.
Þetta kemur allt á morgun
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Umsjónarmaður
Kl 10:00 Of hvasst eins og er SSW 5-20m/sek og töluverður skafrenningur fylgir þessum vindi. Nýjar upplýsingar kl 12:00. Ef vind lægir getum við
opnað með stuttum fyrirvara.
Getum ekki opnað kl 10:00 vegna hvassviðris. Veðrið kl 08:00 SW 4-24m/sek.
Nýjar upplýsingar kl 10:00
Umsjónarmaður
17.04.2014
Frábær dagur að baki en um 800 manns komu í fjallið í dag, takk kærlega fyrir að velja Skarðsdalinn. Sjáumst hress næstu daga.
Nýjar upplýsingar kl 08:00 í fyrramáli.
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 08:30 logn, frost 3 stig, léttskýjað og sú gula er að brjótast í gegn.
Færið er unnið harðfenni en það snjóaði aðeins í brekkurnar, mjög gott færi fyrir alla.
Opnum allar lyftur. Það eru 2 leikjabrautir, við Neðstu-lyftu og á T-lyftusvæði. leikvöllur fyrir þau yngstu er við
Skíðaskálan. Hólar og pallur á T-lyftusvæði.
Göngubraut á Hólssvæði tilbúinn kl 11:00
Velkomin á skíði
Starfsmenn
16.04.2014
Í dag verður opið frá kl 14-19. Veðrið kl 11:00 SSW 2-8m/sek, frost 2 stig, alskýjað, lítilsháttar éljagangur.
Færið er troðið harðfenni í bland við nýjan snjó.
Opnum 2 lyftur til að byrja með og er líklegt að við opnum allar lyftur þegar líður á daginn. Skyggnið er ekki gott í efrihlutanum eins
og er.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði ca 3 km hringur.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
15.04.2014
Opið næstu daga mánudag, þriðjudag og miðvikudag kl 13-19 og skírdag-annan í páskum kl 10-16. Páskatilboð skírdag-annan
í páskum. Fullorðnir kr 12.000.- Börn kr 3.000.- Vasakort kr 1.000.- skilagjald kr 500.-
Kl 14:50 Opið í dag til kl 19:00. veðrið kl 16:30 austan gola, hiti 2 stig og alskýjað.
Færið er troðinn blautur snjór.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæði ca 3 km hringur.
Velkomin í fjalli
Starfsmenn
Lokað eins og er vegna hvassviðris. Kl 08:30 SW 1-21m/sek
Nýjar upplýsingar kl 15:00
Umsjónarmaður