10.06.2014
Ja nú er veturinn búinn og komið sumar en í Skarðsdalnum er hægt að skíða út um allt, nægur snjór í öllum bökkum
en lyftulínur eru sumar ekki inni en frábært utanbrautarfæri. Skarðsrennsli tókst mjög vel og verður haldið aftur, skipt í fleiri flokka og
svo höfum við fótbolta á milli aðkomumanna og heimamanna og síðan verða tónleikar eftir verðlaunasermoníu. Takið frá 16.
maí 2015 en þá verður Skarðsrennsli. Karlaflokkur, kvennaflokku, brettaflokkur kvenna og karla. Þetta verður fyrir 20 ára og eldri. Takk fyrir veturinn og
sjáumst hress næsta vetur.
23.05.2014
Það skal tekið fram að gefnu tilefni að skíðasvæðið er lokað.
Það koma fram á Bylgjunni að svæðið væri opið, mistök, hjá Bylgjunni, en við höfum lokað svæðinu þetta
vorið.
Umsjónarmaður
Egill Rögg
22.05.2014
Frábært færi er til að skíða utanbrautar í Skarðsdalnum í dag og verður næstu daga.
Endilega að nýta sér það meðan snjór eru um allt. Fá sér göngutúr og skíða niður flottar brekkur !!fullar af
snjó!!.
Egill Rögg
18.05.2014
Nú höfium við lokað skíðasvæðinu þetta vorið. Takk fyrir veturinn skíðagestir góðir og sjáumst hress næsta vetur.
Umsjónarmaður
Egill Rögg
18.05.2014
Nú höfum við lokað Skarðdalnum þetta vorið. Takk fyrir veturinn og sjáumst hress næsta haust. Opnunardagar voru 88 og gestir inn á
svæðið voru 10500.
Umsjónarmaður
Egil Rögg
05.05.2014
Frábær dagur að baki en um 90 manns komu í fjallið í dag og kepptu 25 manns í Skarðsrennsli sem var um 3km braut og voru mörg læri á
suðumarki þegar í mark var komið. Frábær endir á góðum vetri. Þakka öllu sem komu í Skarðsdalinn í vetur kærlega
fyrir að heimsækja okkur í vetur. Stefnum á að opna á morgun ef veður verður í lagi. Sjáumst hress næsta vetur.
Kl 09:00 veðrið logn, sól og hiti 5 stig. Færið er töluvert mjúkt sumarfæri.
Ath. Norðurlandskort eru fallin úr gildi.
Skráning hefst miðvikudaginn 15. maí og er mjög einföld senda tp á egillrogg@simnet.is og svo bara skrá sig á staðnum.
Veðurútlit er mjög gott fyrir laugardaginn SA gola og flott.
Skíðasvæðið verður lokað til 17. maí en þá verður opið og Skarðsrennsli fer fram kl 13:00. Grill á eftir. Gjaldi í
fjallið er kr 2.000.- fyrir fullorðna og kr 700.- fyri börn og að sjálfsögðu gilda útgefin vetrarkort í Skarðsdalnum.
Vegleg verðlaun fyrir 3 fyrstu
1. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 5 manns. (2 fullorðnir+3börn) Út að borða á Kaffi Rauðku. Morgunverður í
Aðalbakaríi
2. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 4 manns. (2 fullorðnir+2börn) Pizza á Allanum
3. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 3 manns.(2 fullorðnir+1barn) Pizza á Torginu
4. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 2 fullorðna
5. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 2 fullorðna
6. Verðlaun. Vetrarkort 2014-15 fyrir 2 fullorðna
Skarðsrennsli er 3 km braut sem byrjar í fjallaskarði (Hrólfsvallardalur) fyrir ofan Búngulyftu og niður Miðbakka og yfir T-lyftusvæðið og
til baka niður að Skíðaskála.
Vegleg verðlaun fyrir fyrstu 3, en tímataka fer fram með skeiðklukku. Bæði fyrir skíði og bretti.
Fylgist með okkur hér á heimasíðu og facebook
Umsjónarmaður skíðasvæðis
Egill Rögg
03.05.2014
Það verður opið í dag frá 10-16.
Velkomin á skíði.
Strafsmenn.
01.05.2014
Það verður lokað Föstudaginn 2 Mai. Nýjar upplýsingar Laugadaginn 3. Mai.
01.05.2014
Opið í dag frá kl 11-15. Veðrið kl 08:30 SA gola, hiti 2 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór. Allt troðið í gær og það var frost í nótt.
Flott veður og flott færi.
Ath. Norðurlandskort gilda ekki lengur.
Þá daga sem opið verður fram á vor er tekið gjald af öllum nema þeim sem eiga útgefin Vatrarkort í Skarðsdalnum. Vasakort gilda
hér og er hægt að fylla á þau.
Velkomin í siglfirsku alpana
Starfsmenn