27.03.2014
Opið í dag frá kl 14-19. Vestan gola, hiti 2 stig og alskýjað. Færið er troðinn rakur snjór en snjórinn er þurrari eftir
því sem ofar kemur.
Erum að púsla saman Hálslyftu og vonandi getum við keyrt hana í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
26.03.2014
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 14:50 austan gola, 11 stiga hiti og léttskýjað.
Færið er troðinn rakur snjór en er þurr fyrir ofan miðja T-lyftu. Búngulyfta fer vonandi í gang kl 16:00 í dag.
Nú eru frábærir dagar framundan í Skarðsdalnum logn, sól og blíða eins og veðurspár ná.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
25.03.2014
Kl 15:00 Það er lokað í dag vegna hvassviðris.
Nýjar upplýsingar í fyrramáli kl 10:00
Umsjónarmaður
Lokað eins og er vegna hvassviðris. Veðrið kl 13:00 SV 10-20m/sek, hiti 1 stig.
Nýjar upplýsingar kl 15:00
Umsjónarmaður
24.03.2014
Fjallafjör alla Páskavikunna allt miðað við fjölskylduna. Leikjabraut, Páskaeggjabraut, Fjölskylduþrautabraut, Barnagæsla, Lifandi
tónlist, Fjallaskíðamót á Tröllaskaga og fl og fl.
Sumarrennsli í Skarðsdalnum 17 og 18 maí þar sem boðið verður upp á keppni frá Siglufjarðarskarði og niður að
Skíðaskála 4 keppa í einu. Létt grill á eftir.
Þeir 4 sem sýna beztu tilþrifin fá að launum vetrakort 2014-15 í Skarðsdalinn.
Þessi keppni er fyrir alla.
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er mjög gott SA gola, 3 stiga hiti og alskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór. Mjög gott utanbrautarfæri.
Allir framhaldsskólanema 18 ára og eldri í Fjallabyggð fá aðgang í lyftur á barnagjaldi kr 700,- meðan skólahald liggur
niðri.
Erum að vinna við að koma Búngusvæði í gang en ekki er víst að það gangi í dag.
Velkomin í fjallið
Starsfmenn
23.03.2014
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 10:45 SSW gola, frost 5 stig og dálítil él. Veðurútlit fyrir daginn er mjög gott, það
á að birta til.
Færið er troðinn þurr snjór. Opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu. Vonandi getum við gert allar lyftur klárar í vikunni.
Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
22.03.2014
Í dag verður lokað vegna mikillar vinnu á svæðinu. Það þarf að vinna í ca 10 tíma til að koma tveimur neðrisvæðunum
í gott horf og svo þurfum við að byrja á því að moka snjó útúr troðurum.
Stefnum á að opna á morgun sunnudaginn 23. mars kl 10-16
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Umsjónarmaður
21.03.2014
Kl 18:00 Erum að stefna á það að byrja vinnu í fjallinu í fyrramálið eða þegar veðrið gengur niður og er mikil vinna
við mokstur og troðslu framundan og er ekki alveg ljóst nú hvort við getum opnað á morgun.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00
Í dag verður lokað vegna veðurs, en er NA leiðindi 15-25m/sek, frost 3 stig og mikill skafrenningur.
Það verð nýjar upplýsingar inn á heimasíðu, facebook og 878-3388 kl 17:00 í dag um næstu skref hjá okkur, en samkvæmt
veðurspá á þetta leiðinda veður að ganga niður í nótt og er veðurspá fyrir helginna góð. Vonandi tekst okkur að vinna
svæðið um leið og veður lægir þannig að við verðum klárir á morgun.
Umsjónarmaður
20.03.2014
Lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 10:30 NA 20-30m/sek. Mesta hviða þennan sólahringinn var kl 04:21 í nótt 49.2m/sek. En það á
að draga smá saman úr þessari veðurhæð og lítur helgin ágætlega út.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Starfsmenn
19.03.2014
Kl 17:45 höfum við lokað T-lyftu vegna hvassviðris veðrið er NA 8-15m/sek og meira í hviðum.
Ja nú lítur það vel út gott veður og mikið púður.
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 15:00 austan 2-10m/sek, frost 2 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn nýr snjór en það er töluvert mjúkt. Það hefur snjóað ca 1 meter og er mikið púður um allt
fjall.
Göngubraut á Hólssvæði ca 2,5 km hringur.
Velkomin á skíði í dag.
Starfsmenn
18.03.2014
Það verður lokað í dag. Stefnum á að opna á morgun.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Starfsmenn