Fréttir

Mánudaginn 17. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið er mjög gott austan gola, frost 6 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr nýr snjór, mjög gott færi fyrir alla. Flott veðurútlit næstu 3 daga. Það verður opið alla daga fram að 10. mars, virkadaga frá kl 13-19 og um helgar 10-16 Á Búngusvæði er troðinn Miðbakki 50x950 metrar, Neðrihluti Búngubakka er troðin en ekki efrihluti. Unnið er að viðgerð á spili svo að við getum troðið Búngubakka. Velkomin í fjallið

Sunudaginn 16. febrúar opið kl 10-16

Í dag er opið frá kl 10-16. Veðrið ANA 3-5m/sek, frost 6-8 stig og er alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór. Búngusvæðið er troðið Miðbakki 50 metra breiður þessi bakki er ætlaður fyrir almenning og neðrihluti af Búngubakka og niður að Hálslyftu verða brautir Efrihluti Búngubakka er ekki troðinn. Flott utanbrautarfæri innan við Búngusvæði. Flott veður og flott færi Velkomin í fjallið

Enginn titill

Laugardaginn 15. febrúar opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið er NA 3-9m/sek, frost 5 stig, éljagangur, alskýjað og er töluverð ísing á svæðinu. Færið er troðinn þurr snjór Búngulyfta opnar ekki í dag vegna ísingar. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Föstudaginn 14. febrúar opið kl 15-19

Opnum á morgun kl 10-16. Það er óvíst hvort við opnum Búngulyftuna á morgun vegna mikillar ísingar. Við strákarnir reynum allt til þess að opnað allar lyftur á morgun. Veðurútlit er mjög  gott fyrir helginna. Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 16:30 N 5-9m/sek, frost 4 stig og er lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn þurr snjór Erum að stefna á að opna 3 lyftur, 2 lyftur eru klárar og sú 3 verður vonandi klár kl 16:00 Velkomin í fjallið Starfsmenn

Fimmtudaginn 13. febrúar opnun í skoðun

Kl 16:00 Það verðru lokað í dag vegna veðurs ANA 10-18m/sek og er töluverð slydduhríð. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Góðan daginn gott fólk, erum með opnun í skoðun. Það er töluverð vinna að koma brekkum inn enda hefur snjóða töluvert í brekkurnar og veðrið er ekki gengið alveg niður en samkvæmt veðurspá á þetta allt að lagast. Nýjar upplýsingar kl 16:00 í dag. Ath. símsvari er ekki virkur 878-3399 Umsjónarmaður

Miðvikudaginn 12. febrúar lokað vegna veðurs

Í dag er lokað vegna veðurs. Það er afleitt veður ANA 10-20m/sek, hviður 25-30m/sek mikil slydda og snjókoma. Miðað við veðurspá næstu dag er útlitið mjög gott og má reikna með að opið verði næstu daga. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Starfsmenn

Þriðjudaginn 11. febrúar lokað

Kl 14:00 það verður lokað í dag vegna aðstæðna veðrið er ANA 5-10m/sek og er töluverður skafrenningur og mikil blinda. Veðurspá er ekki okkur hliðholl þegar líður á daginn og reyndar ekki fyrir morgundaginn en veðrið á að fara að lagast á fimmtudaginn og helgin lítur vel út. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Starfsmenn Erum með opnun í skoðun. Veðrið kl 11:30 ANA 6-11m/sek, frost 2 stig og er skafrenningur á svæðinu. Tökum stöðunna kl 14:00 hvort við opnum í dag. Umsjónarmaður

Mánudaginn 10. febrúar opið kl 15-19

Það verður opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 15:0 ANA 4-9m/sek, frost 2 stig og éljagangur. Núna kl 16:30 erum við eingöngu með Neðstu-lyftu í gangi. T-lyfta er biluð eins og er. Troðinn þurr snjór. Velkomin í fjallið Starsfmenn  

Sunudaginn 9. febrúar opið kl 12-16

Kl 11:00 Það verður opið í dag frá kl 12-16. Veðrið er ANA 4-8m/sek, frost 2 stig, lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn þurr snjór. Opnum neðstu-lyftu og erum að vinna að því að opna T-lyftu, þar er mikil vinna við mokstur og troðslu eftir. Erum með opnun í skoðun kl 12:00. Veðrið kl 09:00 ANA 3-10m/sek, frost 2 stig og smá éljagangur. Það er töluverð vinna eftir á svæðinu til að gera brekkur og lyftur klárar. Stefnum á að opna 2 lyftur kl 12:00 Nýjar upplýsingar kl 11:00 Starfsmenn