08.01.2015
Lokað í dag vegna hvassviðris
Veðrið kl 10:00 SSW 4-25m/sek, frost 1 stig og töluverður skafrenningur.
Takið frá næstu 3 daga, veðurútlit er mjög gott SA átt og frost eins og það gerist bezt
Nýjar upplýsingar kl 14:00
Starfsmenn
07.01.2015
Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 12:00 sunnan 2-8m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað.
Færið er unnið harðfenni, hitastig í snjónum er -1.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
06.01.2015
Í dag verður lokað en opnum aftur á morgun. Erum að vinna að því að koma inn Hálslyftusvæði og Búngulyftusvæði,
það þarf að færa til mikið af snjó.
Starfsmenn
05.01.2015
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið er ASA 2-5m/sek, hiti 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
04.01.2015
Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 10:15 austan 4-8m/sek, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.
Nú er um að gera að taka daginn snemma.
Ath skíðið í troðnum brautum það er mjög stutt víða niður á grjót í ótroðnu.
Það er alltaf gaman að velta fyrir sér tölum. Nú fyrstu 2 dagana sem opið hefur verið í Skarðsdalunum eru gestir
um 300 manns og íbúar í Fjallabyggð um 2200 manns. Í Bláfjöllin hafa komið um 7 þúsund manns flest á einum degi sem er
auðvitað glæsilegt en á stór-Reykjarvíkursvæðinu búa um 220 þúsund manns. 150 manns í Skarðsdalnum og 7-8
þúsund í Bláfjöllum á daga. Tölur eru alltaf skemmtilegar.
Sjáumst hress
Starfsmenn
03.01.2015
Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 08:40 SSW 3-10m/sek, frost 2 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór.
Erum að vinna við að koma inn efri svæðunum báðum.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
02.01.2015
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla.
Frábært veður og frábært færi.
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl 16:20 er austan gola, frost 7 stig og heiðskírt. Færið er troðinn púðursnjór það
hefur snjóað ca 25-30 cm í brekkurnar.
Á árinu 2014 var opið í 84 daga og gestir 10500 en á árinu 2013 var opið í 103 daga og gestir 17000. Veðurfara var einstaklega erfitt
á árinu 2014 sem skýrir þennan mun að töluverðu leyti. Veturinn 2015 verður bara betri.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
31.12.2014
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla sjáumst hress 2. janúar
KL 10:30 Lokað í dag vegna hvassviðris SW 4-20m/sek og 6 stiga hiti.
Opið í dag frá kl 11-14. Veðrið kl 09:15 sunnan gola, hiti 4 stig.
S s sumar veður. Færið er blautur snjór.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
30.12.2014
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið WSW 4-10m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað. Samkvæmt veðurspá á að lægja þegar
líður á daginn. Færið er troðinn þur snjór.
Opnun næstu daga
Þriðjudaginn 30. desmber opið kl 14-18
Gamlársdagur 31. desmber opið kl 11-14
Nýársdagur 1. janúar lokað
Föstudaginn 2. janúar opið kl 14-19
Laugardaginn 3. janúar opið kl 11-16
Sunnudaginn 4. Janúar opið kl 11-16
Starfsmenn
29.12.2014
Lokað í dag vegna hvassviðris og mikils hita. Veðrið kl 10:30 SW 5-20m/sek og hiti 12 stig.
Þetta lítur mun betur út á morgun og gamlársdag.
Starfsmenn