16.02.2015
Opið í dag frá kl 15-19, veðrið kl 16:00 SSV 1-5m/sek, frost 6 stig og lítilsháttar éljagangur.
Færið er troðinn þurr snjór það koma aðeins nýr snjór ofan á harðfenni seinnipartinn í gær, það sker
mjög vel í brekkurnar. Nýr snjór í öllum brekkum.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn.
15.02.2015
Opið í dag frá kl 12-16. Veðrið kl 13:00 ASA 2-8m/sek, hiti 3 stig og nú er farið að slydda hjá okkur.
Færið er troðinn rakur snjór og heldur mjög vel. Erum með það í skoðun að opna Hálslyftu.
Stefnum á að opna kl 12 Nýjar upplýsingar kl 11:00
Veðrið kl 10:15 S 3-18m/sek og hiti 5 stig.
Starfsmenn
14.02.2015
Opið í dag frá kl 10-16. Veðrið kl 13:45 ASA 1-6m/sek, hiti 8 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.
Flott færi og veður í Skarðsdalnum í dag.
Velkomin í fjallið
13.02.2015
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 15:15 er austan 4-12m/sek, frost 4 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, mjög
gott færi er í fjallinu í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
12.02.2015
!!Nýr snjór yfir öllu!!
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið Kl 11:40 er SSV 2-13m/sek, frost 8 stig, smá skafrenningur. Færið er troðinn púðursnjór, það
snjóaði ca 25 cm í nótt. Flott færi í dag.
Veðurútlit næstu dag er mjög gott SA áttir sem er það bezta hér í Skarðsdalnum.
Minni ykkur á að hafa með ykkur vasakortin, hægt er að fylla á öll kort, einnig eru þau til sölu á staðnum á kr 1.000.- en bendi
á gjaldskrá hér á heimasíðuni.
Með göngubraut á Hólssvæði er í athugun en það fór allur snjór á lálendi.
Ps það er verið að taka upp myndina Ófærð hér á svæðinu og bið ég okkur öll að taka tillit til þess,
þau verða að til kl 18:00 í dag. Geta orðið tafir á að komast að Skíðaskála.
Umsjónarmaður
11.02.2015
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er VSV 1-4m/sek, frost 8 stig og léttskýjað. Færið er unnið harðfenni.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
10.02.2015
Ath. það verður opið alla virka daga í febrúar frá kl 13-19 og um helgar frá kl 10-16
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Það kemur nýr dagur á morgun með betra veður, veðurkortin sýna það.
Nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.
09.02.2015
Kl 15:15 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris SW 4-10 m/sek en hviður eru 20-25m/sek. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00.
Erum með opnun í skoðun kl 16:00. Það er möguleiki að það lægi seinnipartinn þá mögulega opið frá kl 16-20. Nýjar
upplýsingar um kl 15:00
Starfsmenn
08.02.2015
Ja veðrið getur verið erfitt en mesta hviða sem hefur mælst nú í vetur var á föstudaginn 6. febrúar SW 50.4m/sek kl 16:50 svo stuttu
síðar voru einungis 3m/sek. Það getur hvesst í Skarðsdalnum en svo er svakalega gott á milli eins og verður í næstu viku. Sjáumst
hress.
Í dag verður lokað vegan hvssviðris. Á svæðinu kl 08:45 er SW 2-10m/sek og hviður eru 20-25m/sek og verður svo í dag miðað við öll
veður kort, því miður, það er einnig mikill hiti á svæðinu 6-8 stig. Þetta fer að lagast í næstu viku.
Starfsmenn
07.02.2015
Kl 11:30 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, SW 2-10m/sek en hviður eru 15-25m/sek. Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00
Lokað eins og er. Nýjar upplýsingar kl 12:00. Veðrið kl 09:00 SW 5-12m/sek en 20-25m/sek í hviðum. Keyrum ekki lyftur í þessu hvassviðri.