18.01.2015
Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið vestan gola, frost 5-6 stig og heiðskírt. Færið er troðinn púðursnjór. Flott færi og
veður í dag. Púðurskíðun á Hálslyftusvæði.
Snjór um víða veröld fer fram í dag og hefst kl 13-16. Nú mæta allir í fjallið með börunum. Kakó og með því
fyrir alla. Frítt í lyftur og búnaður fyrir börn að 17 ára.
Leikjabraut, Bobbbraut, Hólabraut og fl og fl.
Velkomin í fjallið
17.01.2015
Opið verður í dag frá kl 12-16. Veðrið kl 11:45 A 3-6m/sek, frost 4 stig og lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn
púðursnjór.
Það hefur bætt á ca 25-35cm af snjó.
Það tekur töluverðan tíma að vinna brekkurnar og moka veginn að skíðasvæðinu þannig að við seinkum opnun til kl 12:00
Minni á morgun sunnudaginn 18. janúar en sá dagur er helgaður börnum um alla heim, allir á skíði, þotur,
sleða og bara hvað sem er. "allt gert fyrir börnin" Foreldrar, ömmur og afar kvattir til að koma með börnin í fjallið, það verður mikið
húllum hæ í Skarðsdalnum þar sem allt snýst um að börnin fái að njóta sýn. Kakó og með því fyrir alla
í boði skíðasvæðisins og Skíðasambandsins Allar upplýsingar inn á þessari heimasíðu
http://world-snow-day.com/en/WSD/Locate#
Vekomin í fjallið
16.01.2015
Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 13:30 austan gola, 3 stiga frost og alskýjað. Færið er troðinn púður snjór. Flott færi
fyrir alla.
Velkomin í fjallið í dag
Starsfmenn
Minni á næsta sunnudag 18. janúar en sá dagur er helgaður börnum um alla heim, allir á skíði, þotur, sleða og bara hvað sem er.
"allt gert fyrir börnin" Foreldrar, ömmur og afar kvattir til að koma með börnin í fjallið, það verður mikið húllum hæ í
Skarðsdalnum þar sem allt snýst um að börnin fái að njóta sýn. Kakó og með því fyrir alla í boði
skíðasvæðisins og Skíðasambandsins
Allar upplýsingar inn á þessari heimasíðu
http://world-snow-day.com/en/WSD/Locate#
15.01.2015
KL 14:30 Það verður lokað vegna veðurs í dag. Nýjar upplýsingar á morgun kl 11:00.
Nýjar upplýsingar um kl 14:00. Veðrið kl 09:30 NA 10-25m/sek og töluverður skafrenningur.
Starfsmenn
14.01.2015
Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl18:00 NA 2-5m/sek, frost 4 stig og alskýjað. Á að lægja þegar líður á daginn.
Færið er troðinn þurr snjór. Það er dálítið af nýjum snjó á svæðnu.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
13.01.2015
Það vantar skíðakennara á Skíðavæðið bæði fyrir bretti og skíði.
Lokað í dag en opnum á morgun kl 16:00
Minni á næsta sunnudag 18. janúar en sá dagur er helgaður börnum um alla heim, allir á skíði, þotur, sleða og bara hvað sem
er. "allt gert fyrir börnin" Foreldrar, ömmur og afar kvattir til að koma með börnin í fjallið, það verður mikið húllum hæ í
Skarðsdalnum þar sem allt snýst um að börnin fái að njóta sýn. Kakó og með því fyrir alla í boði
skíðasvæðisins.
Allar upplýsingar inn á þessari heimasíðu
http://world-snow-day.com/en/WSD/Locate#
Starfsmenn
12.01.2015
Kl 13:30 Það verður lokað í dag það er farið að hvessa töluvert NA 13-20m/sek.
Opið í dag frá kl 16-19. Veðrið kl 11:00 NA 4-12m/sek, frost 2 stig og alskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór.
Velkomin í fjallið
11.01.2015
Opið í dag frá kl 11-16 í því bezta færi sem hefur verið á þessum vetri, WSW gola, frost 5-7 stig og heiðskírt. Troðinn
þurr snjór. Þetta verður flottur dagur.
Alparnir á Siglufirði hafa aldrei verið betri en einmitt nú, brekkurnar eins og silki. Brekkur upp á tvo kílómetra að lengd.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
10.01.2015
Hálslyftan komin í gang og svo kemur Búngulyftan þegar við höfum fundið nægan snjó til að moka í lyftusporið tekur
næstu 2-3 daga.
Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 10:00 vestan 4-8m/sek, frost 5-6 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór. Flott veður og færi.
Opnum 2 lyftur til að byrja með og setjum Hálslyftu í gang um leið og hún er tilbúinn sem gæti verið á milli 11 og 12. Búið
að gera við lyftunna og erum við að hengja höldin á hana.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
09.01.2015
Það verður flottur dagur á morgun, opnum kl 11-16.
Opið í dag frá kl 14-19. Veðrið er S 2-8m/sek, frost 3 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi fyrir
alla það er nýr snjór á svæðinu.
Eins og staðan er núna opnum við tvær lyftur í dag. Unnið er að viðgerð á Hálslyftu og er verið að færa til mikinn
snjó til að koma Búngulyftu inn, en það var enginn snjór í lyftusporinu, það er blessað hvassviðrið sem hefur verið að gera
okkur þetta erfitt.
Vonandi getum við sett Hálslyftuna í ganga um helginna.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn