17.03.2018
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:40 logn, 1 stigs hiti og það er að létta til. Færið er troðinn rakur snjór en frostið í snjónum er um 1. stig.
10 skíðaleiðir klárar og Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 11:00
Velkomin í Skarðsdalinn
16.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er og verður mjög gott WSW gola, 5-6 stiga hiti og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór en það var 1-3 stiga frost í nótt og er hitastig í snjónum um frostmark.
10 skíðaleiðir klárar og Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 13:00
Dægursveifla í hitastigi er töluverð næstu dag frá 8 stiga hita og niður í 1-3 stig frost á nóttunni, en veðrið verður mjög gott, heiðskírt og hægviðri.
Velkomin á skíði
15.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott ASA 0-5m/sek, hiti 2 stig og er alskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór
10 skíðaleiðir klárar og Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur.
Veðurútlit næstu daga er mjög gott, bjart veður og hægviðri.
Velkomin í Skarðsdalinn
14.03.2018
Það verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 09:20 ANA 4-8m/sek, frost 1 stig og léttskýjað, en það gæti mögulega verið lítilsháttar éljagangur á milli kl 12-15.
Færið er troðinn þurr snjór og verða 10 skíðaleiðir klárar í dag.
Hólsgöngubraut er tilbúinn 3 km hringur.
Velkomin á skíði
13.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er ASA 2-5m/sek, frost 2 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór s s frábært veður og færi verður í dag.
10 skíðaleiðir klárar og Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur.
Velkomin á skíði
12.03.2018
Ath. Svæðið í norður við sleppingu Búngulyftu og suður í dalinn að Skarðinu er lokað vegna veikra snjóalaga.
Opið í dag frá kl 13-19, SSA gola, frost 5 stig og heiðskírt, færið er troðinn nýr snjór en það hefur snjóað 10-15cm á síðasta sólahring.
Hálslyfta og Búngulyfta opna kl 14:30
Topp veður og færi í dag, !!!TOPPUR AF ÖLLUM TOPPUM!!!
Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 15:00
Velkomin á skíði
11.03.2018
Það verður lokað í dag vegna veðurs. Erum að fá smá sendingu af snjó.
Það verður flott veður á morgun og næstu daga, nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Ath. það er opið alla daga mánudaga-föstudaga kl 13-19 og laugardaga-sunnudaga kl 10-16
10.03.2018
Opið í dag rá kl 10-16, veðrið er SSA gola, frost 5 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór, það verður flott veður og færi í dag.
7 skíðaleiðir klárar og Hólsgöngubraut tilbúin 3 km hringur.
Velkomin á skíði í dag
09.03.2018
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er ASA gola, frost 5 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór, en það hefur snjóa 10 cm í nótt.
Skíðaleiðir sem eru klárar Neðstabrekka, T-lyftbrekka, Hálslyftubrekka, Miðbakki, Búngubakki og Skarðsleið. Einnig Æfintýraleið, Hólabraut og Bobbbraut. Stórkostlegt utanbrautarfæri í efrihlutanum á svæðinu.
Flottur dagur framundan í dag og verður einnig á morgun.
Hólsgöngubraut verður tilbúin kl 14:00 3 km hringur.
Velkomin á skíði
Fjallamenn
08.03.2018
Kl 15:30 Höfum við lokað svæðinu vegna éljagangs og skafrennings.
Næstu dagar líta mjög vel út, nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun.
Kl 15:00 höfum lokað Hálslyftu og Búngulyftu skyggni er ekki gott eins og er.
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 13:30 NA 6-12m/sek, 4 stiga frost, alskýjað og éljagangur.
Færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í troðnum brekkum.
Brekkur klárar: Neðstabrekka, T-lyftubrekka, Hálslyftubrekka, Miðbakki og Búngubakki.
Bobbbraut, Æfintýraleið og Hólar klárt.
Ekki verður lögð göngubraut í dag vegna éljagangs.
Velkomin á skíði