17.12.2018
Nú eru 3 lyftur klárar og sú 4 kemur inn í þessari viku. Það er verið að vinna við að moka til og troða Búngusvæðið, lyftuspor tilbúið.
14.12.2018
Opnum í dag 2 lyftur og er veðrið SSV 3-7m/sek, hiti 2 stig, en fer kólnandi og það mun lægja um og eftir hádegið.
Opnum 3 lyftur á morgun. Búngulyftusvæðið verður tilbúið í næstu viku.
12.12.2018
Erum að koma inn lyftusporum á Hálslyftu og Búngsvæðum og stefnum á að keyra allar lyftur um næstu helgi.
Það hefur hitnað hér á svæðinu, það var hér 12 stig í gær en nú er lofthitinn 6 stig og fer lækkandi. Erum að hlífa neðstasvæðinu.
Snjóalög eru þannig á neðstasvæðinu er ca 15-40 cm, T-lyftusvæði er 40-70cm, Hálslyftusvæði er 40-100cm og á Búngusvæði er 100-200cm,
þannig að það lítur bara nokkuð vel út í byrjun vetrar. Velkomin á Sigló
10.12.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er WNW 1-4m/sek, frost 1 stig en alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og verða opnar 2 lyftur. Nú er verið að koma efrihlutanum í gang
09.12.2018
Flott veður og flott færi í dag sunnudaginn 9. desember og koma nú allir á skíði
Kaffi, kakó og fínerí
05.12.2018
Opnum skíðasvæðið laugardaginn 8 desember frá kl 11 til 16.
Opnum 2 lyftur
04.12.2018
Erum að moka inn neðstu-brekkuna og vonandi getum við opnað á næstu dögum.
30.11.2018
Það verður lokað um helgina vegna þessa að það vantar snjó á neðstasvæðinu
27.11.2018
Skíðasvæðið verður opnað 1. des, það er komin góður grunnur eins og myndin sínir