10.04.2012
Skíðasvæðið verður lokað í dag, opnum á morgun miðvikudaginn 11. apríl k 15-19.
Sannkölluð veðurblíða er framundan s s frá miðvikudeginum 11. apríl til mánudagsins 16. apríl og þetta gula er væntanlegt.
Snjór út um allt og mikið af honum. Nú er að koma Páskaveðrið.
Veðurútlit næstu dag er mjög gott svo nú er um að gera að drífa sig í fjallið.
Nýjar upplýsingar um hádegið á morgun
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
09.04.2012
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 12:45 ESE 20-28m/sek hviður 30-35m/sek, mesta hviða í dag 44.7m/sek
kl 10:14, frost 3 stig og er töluverð snjókoma og skafrenningur á svæðinu, það hefur snjóað ca 20-30 cm á
svæðinu.
Svæðið opnar aftur á miðvikudaginn 11. apríl
Starfsmenn skíðasvæðisins þakkar öllum þeim fjölda manns sem heimsótu okkur í Páskavikunni. Eigið þið góða
heimferð í dag.
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal, það gleður augað: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
08.04.2012
Gleðilega páska!!! Gleðilaga páska!!!
Kl 12:00 Veðrið hefur ekkert lagast og því verður lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 12:00 SSV 5-20m/sek, frostmark,
slyddukrapahríð.
Opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 08:00 annan í páskum
Starfsmenn
Sjógallinn dugar að ég helda ekki núna. Tökum stöðunna kl 12:00
Kl 11:30 Opnun í skoðun kl 12:00, veðrið kl 11:30 SV 6-15m/sek, hviður í 18m/sek, rigning/ slydda og um frostmark við Skíðaskálan
en 2. stiga frost við enda á T-lyftu og 20m/sek Nýjar upplýsingar kl 12:00.
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið er SSV 2-12m/sek, talsverð rigning/slydda og hiti 1 stig. Færið er
troðinn blautur snjór. Það er slydda í efrihluta á T-lyftu. Góður sjógalli væri æskilegur í dag.
Páskaeggjamót kl 13:00 fyrir 10 ára og yngri á Neðstasvæðinu.
Það er nú þetta með rigningun að sumum finnst hún góð öðrum ekki.
Engin göngubraut verður lögð í dag vegna veðurs.
Velkomin í fjallið starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Fróðleiksmoli dagsins um rigningu: http://is.wikipedia.org/wiki/Rigning
07.04.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:45 vestan gola, lítilsháttar rigning, hiti 1 stig og
þokan er að koma og fara, búið að troða allar brekkur. Allt troðið í gærkveldi og nótt þannig að brekkurnar hafa stirðnað
í ca 8 tíma.
Við hér á svæðinu mælum með því að þið skíðagestir góðir mætið snemma í fjallið
því færið versnar þegar líður á daginn og hún rigningin gæti komið þegar líður á daginn.
Öll svæðin verða opin og göngubraut tilbúinn kl 12:00 á Súlunum.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Velkomin í fjallið
Fróðleiksmoli dagsins hjólað niður Skarðsdalinn: http://www.youtube.com/watch?v=aceSaa28Tq8
06.04.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 V-gola, hiti 1 stig og smá þokusúld en það er
1 . stig frost í efri-hlutanum. Færið er troðinn blautur snjór, allar brekkur troðnar í gærkveldi og nótt, það er betra færi en var
í gær en skyggnið er þannig að þokan er að koma og fara og er skyggnið nokkuð gott inn á milli. Búngusvæðið er í
skoðun þar er blindþoka.
Göngubraut verður tilbúinn kl 13:00 upp á Súlum.
Velkomin í fjallið.
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
05.04.2012
Góðan daginn gott skíðafólk skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 ASA 2-5m/sek, hiti 2
stig, rigning og þoka með köflum. Skyggnið á svæðinu nú er þannig að það sést frá skíðaskála og að
enda á T-lyftu en það er ekkert skyggni ofan við T-lyftusvæði.
Færið er troðinn blautur snjór en færið á T-lyftusvæði er harðara en það er mýkra á Neðstasvæðinu.
Byrjum á að opna Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið. Búngusvæði er í skoðun þar er ekkert skyggni.
Göngubraut verður lögð um leið og birtir til.
Velkomin í fjallið
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Starfsmenn
04.04.2012
Kl 14.00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 14.00 SV 10-18m/sek og hviður 25-30m/sek. Opnum á morgun
skírdag kl 10-16.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Starfsmenn
Veður horfur næstu daga eru mun betra.
Skíðasvæðið kl 10:00 erum við með opnun í skoðun kl 14:00, veðrið kl 10:00 SV 6-15m/sek og hviður í 25m/sek.
Nýjar upplýsingar um kl 14:00
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Fróðleiksmoli dagsins: http://sagnagrunnur.razorch.com/index.php?target=myth&id=1448
03.04.2012
Kl 14:00 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna hvassviðris. Opnum á morgun kl 13-19. Nýjar upplýsingar kl 10:00
Starfsmenn
Góðan daginn gott skíðafólk, opnun í dag er í skoðun, veðrið kl 09:00 á neðrihluta svæðisins er SV 6-12 m/sek
og hviður upp í 20 m/sek, 2 stiga frost og heiðskírt.
Á Búngusvæði kl 09:00 er vindur SV 12-15m/sek og hviður 20-25 m/sek og frost 4 stig.
Nýjar upplýsingar kl 14:00
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Fróðleiksmoli dagsins:
Siglufjarðarskarð
Hnit: 66°7′18.9″N18°59′56.4″WSiglufjarðarskarð er íslenskur fjallvegur
sem liggur á milli Siglufjarðar og Fljóta í Skagafirði. Það var
áður aðalleiðin frá Skagafirði til Siglufjarðar, allt þar til Strákagöng voru opnuð 1967.
Allt í kringum Siglufjörð eru há og brött fjöll og leiðin um Siglufjarðarskarð, sem er í 630 metra hæð yfir sjávarmáli,
var greiðfærasta leiðin úr firðinum og þó ærið erfið, bæði vegna þess hve brött hún var Siglufjarðarmegin og ekki
síður vegna snjóa og illviðra á vetrum. Eftir að þéttbýli myndaðist á Siglufirði fóru nær allir flutningar fram
sjóleiðina.
Upphaflega var fjallseggin í skarðinu svo mjó að þar mátti sitja klofvega með annan fótinn í Skagafjarðarsýslu en hinn í Eyjafjarðarsýslu. Í þessa egg hafði þó til forna verið höggvið skarð,
nægilega breitt til að unnt væri að koma klyfjahesti þar í gegn. Skarðið var svo sprengt
niður um fjórtán metra árið 1940 og í framhaldi af því var lagður akfær vegur
um skarðið árið 1946. Hann var yfirleitt aðeins fær fjóra til fimm mánuði á
ári vegna snjóþyngsla en þó var mikil samgöngubót að honum.
Sagnir voru um óvætti í skarðinu fyrr á
tíð og árið 1735 flutti Þorleifur Skaftason í Múla, sem talinn var kunna ýmislegt fyrir sér, þar messu að boði
Steins Jónssonar biskups og er sagt að honum hafi tekist að beina vondum öflum
úr skarðinu og í Afglapaskarð, þar skammt fyrir sunnan.
Ferðir um Siglufjarðarskarð lágu niðri að mestu eða öllu í mörg ár eftir að Strákagöng voru opnuð en nú er reynt
að halda veginum opnum yfir sumartímann, að minnsta kosti fyrir jeppa.
02.04.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veður og færi er frábært, veðrið kl 12:00 austan gola, frost 3
stig, heiðskírt og glaða sólskin. Færið er troðinn þurr snjór í öllum brekkum og eru allar brekkur breiðar og
góðar.
Við hér á svæðinu mælum með þessum degi að mæta í fjallið.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
01.04.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 ANA 3-7m/sek, frost 4 stig og alskýjað. Færið er troðinn
nýr snjór á T-lyftusvæði og Neðstasvæðið er mjög gott. Búngusvæðið er í skoðun, erum að brjóta
ísingu af, og skyggnið er ekkert eins og er á Bungusvæði
Svæðið lítur mjög vel út nægur snjór og breiðar og góðar brekkur.
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/
Velkomin í fjallið
Starfsmenn