Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 08:00 V-gola, hiti 1 stig og smá þokusúld en það er 1 . stig frost í efri-hlutanum. Færið er troðinn blautur snjór, allar brekkur troðnar í gærkveldi og nótt, það er betra færi en var í gær en skyggnið er þannig að þokan er að koma og fara og er skyggnið nokkuð gott inn á milli. Búngusvæðið er í skoðun þar er blindþoka.
Göngubraut verður tilbúinn kl 13:00 upp á Súlum.
Velkomin í fjallið.
Starfsmenn
Sjáið endilega þetta myndband af skíðasvæðinu Skarðsdal: http://hedinsfjordur.is/a-skidum-i-skidaparadis-siglfirdinga-myndband/