02.12.2012
Skíðasvæðið opnar klukkan 11:00-16:00 , veðrið kl 10:00 SA gola hiti 2 stig og léttskýjað, færið er mjög gott troðinn
þurr snjór.
Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið opið í dag.
Velkomin í fjallið starfsfólk
01.12.2012
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 08:30 SA gola, frost 3 stig og heiðskírt, færið er troðinn
nýr snjór mjög gott færi fyrir alla.
Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið verða opin í dag.
Vetrarkortasala er í fullum gangi tilboð til 15. desember.
Hjónakort kr. 30.600.- Fullorðinskort kr. 16.200.- Barnakort 6.800.- (7-18 ára) Framhald/háskólanemar kr. 6.800.- (19+) senda pantanir á egillrogg@simnet.is s. 893-5059 Reikningur 1102-26-1254 kt 640908-0680 1 og 2 bekkur í Grunnskóla
Fjallabyggðar fá fríkort.
Velkomin í fjallið í dag starfsfólk
29.11.2012
Skíðasvæðið verður opna að á laugardaginn 1. des kl 11:00, færið í Skarðsdalnum er mjög gott troðinn harðpakkaður
nýr snjór og mikið af honum. Veðurspá næstu daga er mjög góð.
Vetrarkortasala er í fullum gangi tilboð til 15. desember.
Hjónakort kr. 30.600.- Fullorðinskort kr. 16.200.- Barnakort 6.800.- (7-18 ára) Framhald/háskólanemar kr. 6.800.- (19+) senda pantanir á egillrogg@simnet.is s. 893-5059 Reikningur 1102-26-1254 kt 640908-0680 1 og 2 bekkur Grunnskóla Fjallabyggðar fá
fríkort.
Sjáumst hress á laugardaginn
Starfsfólk.
25.11.2012
Allt að koma, Hálslyftan að taka á sig mynd, búið að reisa öll möstur og drifstöð komin upp, í vikunni sem er að koma reisum
við endan uppi og unnið verður við tengingar á rafmagni og fl.
Skíðasvæðið opnar laugardaginn 1. desember það hefur snjóað töluvert hjá okkur þannig að allar brekkur eru komnar
inn.
Munið eftir tilboðum í vetrarkort til 15. desember.
Hjónakort kr. 30.600.- Fullorðinskort kr. 16.200.- Barnakort 6.800.- (7-18 ára) Framhald/háskólanemar kr. 6.800.- (19+) senda pantanir á egillrogg@simnet.is s. 893-5059 1 og 2 bekkur í Grunnskóla Fjallabyggðar fá fríkort.
Skíðasvæðið
19.11.2012
Skíðasvæði Fjallabyggðar
Siglfirsku alparnir
Tilboð á vetrarkortum til 15.Des 2012
Hjónakort
kr 30.600,-
Einstaklingskort
kr 16.200.-
Barnakort (7-18 ára)
kr 6.800.-
Framhalds/Háskólanemakort 19+
kr 6.800.-
Vetrarkort gilda frá hausti 2012 til vors 2013
Allar upplýsingar inn á skard.fjallabyggd.is og í síma 893-5059
Hægt er að panta kort í gegnum tölvupóst á egillrogg@simnet.is
Reikningur 1102-26-1254 kt 640908-0680
Skíðasvæðið
16.11.2012
Í gær fimmtudaginn 15. nóvember voru reist öll möstur í Hálslyftu og gekk það verk mjög vel þrátt fyrir mjög
erfitt veður en SV rok var á svæðinu og verður haldið áfram í næstu viku að reisa drifstöð, endastöð og við ýmsa
tengivinnu og fl. Minni ég en og aftur á að svæðið verður opnað laugardaginn 1. desember.
Tilboð á vetrarkortum mun verða auglýst í næstu viku. Snjóalög er orðin mjög góð á öllu svæðinu,
Búngusvæði þar er ca 2-3 metrar, T-lyftusvæði er um 0,70-1,20 metrar og nestasvæðið er um 0,50-1 meter, unnið verður við að moka til
í brekkum og troða næstu daga, þannig að þetta lítur allt mjög vel út.
Sjáumst hress í Skarsðdalnum í vetur
Egill Rögnvaldsson
27.10.2012
Lokið var við að steypa undirstöður fyrir Hálslyftu 26. október, unnu við það verk margir vaskir menn en að því verki komu
Bergara, Básara, Rauðkumenn og fl, í undirstöður fóru um 42 m3 af steypu. Þetta verk tókst mjög vel en einungis tók 5 daga að grafa
fyrir mótum, koma þeim fyrir og steypa, takk fyrir þetta drengir.
Allur lyftubúnaður er kominn til Sigló og bíður þess að verað setur upp þegar steypa hefur náð styrk, unnið verður við
rafbúnað og að gera lyftubúnað kláran næstu daga, en markmiðið er að reisa lyftuna í kringum 15-20. nóvember og taka lyftuna
í notkun 1.desember.
Það hefur ýmislegt verið gert til að bæta þjónustu við skíðafólk í Skarðsdalnum. Búið er að setja
upp nýtt hús á Búngusvæði með snyrtingum og pallur í kring, búið er að lagfæra og lengja Stálmastursbrekku og
lýsing hefur verið bætt á því svæði, búið er að færa Markhús og byggja pall í kringum það, sem
nýtist sem Mark-og Hálslyftuhús.
Það eru spennandi tímar framundan í Skarðsdalnum en markmiðið er að opna svæðið 1. desember og þar með nýja lyftu
Hálslyftu sem mun gjör breyta svæðinu.
Þegar þetta er skrifað er kominn nægur snjór á Búngusvæði og í efrihluta T-svæðis, þannig að þetta
lítur allt mjög vel út.
Egill Rögg
14.10.2012
Allt á fullu við byggingu á Hálslyftu sem mun tengja T-lyftusvæðið og Búngusvæðið og auðvelda allt aðgengi á
Búngusvæðið.
Búið að koma öllum mótum fyrir og unnið er að því að færa Markhúsið sem mun nýtast sem Markhús og
Hálslyftuhús, lagfæra þarf Stálmasturbrekku og bæta lýsingu á svæðinu.
Sjá frétt inn á siglo.is
http://sksiglo.is/is/news/framkvaemdir_a_skidasvaedinu/
04.09.2012
Nýtt Búngulyftu og WC hús komið á sinn stað, farið var með húsið í dag og verður vatn, frárennsli og rafmagn tengt í
þessari viku.
Allt á fullu er varð Hálslyftu sem mun tengja saman T-lyftusvæðið og Búngusvæðið.
Unnið er að gerð prófíls og teikningum og er meiningin að mæla út fyrir lyftunni og grafa fyrir lyftuspori og undirstöðum eftir
15. september.
Um leið og eitthvað er að gerast setjum við upplýsingar inn á heimasíðu, sigló.is og facebook.
Egill Rögg
04.08.2012
Framkvæmdir munu hefjast eftir verslunarmanna helgi á því að byggt verður nýtt Búngulyftuhús og í því
húsi verða snyrtingar, þannig að öll aðstaða fyrir gesti á Búngusvæðu mun batna. Síðan í framhaldinu mun verða
byggð lyfta (Hálslyfta) en nafni er komið til af því að hún mun enda upp á Siglufjarðarhálsi og verður allt aðgengi að
Búngusvæði auveldara.
Skarðskveðja
Egill Rögg