Fréttir

Laugardaginn 5. janúar opið kl 10-16

Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 14:30 WSW gola, hiti 5 stig og heiðskírt. Færið er troðinn þurr og rakur snjór í bland. Það á að kólna þegar líður á daginn og er veðurspá næstu daga mjög góð hægt kólnandi veður. Sjáið þetta flotta myndband. http://www.youtube.com/watch?v=nOy9KCvfukA Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn  

Föstudaginn 4. janúar opið kl 14-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá  kl 14-19, veðrið kl 16:00 WNW 3-6m/sek, hiti 10 stig og hálfskýjað, færið er troðinn rakur snjór. Velkomin í fjallið starfsmenn  

Fimmtudaginn 3. janúar opið kl 15-19

Í dag fimmtudaginn 3. janúar verður opið frá kl15-19, veðrið kl 16:30 W gola, hiti 2 stig og heiðskírt, færið er troðinn rakur snjór en er þurrari á T-lyftusvæði. Velkomin í fjallið Starfsmenn Sjáið þetta flotta myndband. http://www.youtube.com/watch?v=nOy9KCvfukA

Miðvikudaginn 2. janúar lokað í dag.

Kl 15:15 Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna mikilar vinnu við troðslu og það er verið að hreinsa veginn. Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Starfsmenn.  Erum með opnun í skoðun, það hefur snjóað töluvert og er mikil vinna við að moka veginn og töluverð vinna við að troða brekkur og berja ísingu af lyftu. Nýjar upplýsingar um kl 15:00 Starfsmenn  

Gamlársdagur lokað

Í dag gamlársdag verður lokað vegna veðurs. Opnum aftur 2. janúar kl 14:00 Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla starfsfólk. Sjáið þetta flotta myndband. http://www.youtube.com/watch?v=nOy9KCvfukA

Sunnudaginn 30. desember lokað vegna veðurs

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 11:00 N 14-24m/sek, frost 4 stig, éljagangur og töluverður skafrenningur. Sjáið þetta flotta myndband. http://www.youtube.com/watch?v=nOy9KCvfukA Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00 Veðurspá í dag og á morgun: Norðan 15-23 m/s og snjókoma, en 13-20 seinnipartinn. Norðan 10-18 eftir hádegi á morgun og éljagangur. Hægari annað kvöld og úrkomuminna. Frost 1 til 6 stig. Spá gerð: 30.12.2012 10:54. Gildir til: 01.01.2013 00:00. Starfsmenn   

Laugardaginn 29. desember lokað vegna veðurs.

Í dag verður skíðasvæðið lokað vegna veðurs. Veðrið kl 10:50 ANA 17-27m/sek, frost 1 stig og töluverð úrkoma. Nýjar upplýsingar á morgun kl 11:00 Starfsmenn  

Föstudaginn 28. desember opið kl 14-19

Kl 00:41 voru 40,2 m/sek Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 14-19, veðrið kl 13:00 WSW 0-3m/sek,  0 stig og heiðskírt. Færið er troðinn nýr snjór. Frábært veður og flott færi. Stefnum á að opna allar lyftur í dag en það verður ekki mikið troðið á Búngusvæði,  þar verður púðurskíðun. Velkomin í fjallið starfsmenn    

Fimmtudaginn 27. desember opið kl 14-19

Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:00 SA gola, frost 4 stig og smá él, það á að létta til upp úr hádeginu, færið er troðinn nýr snjór og mikið af honum púðursnjór um allt fjall. Stefnum á að opna tvær lyftur í dag, það hefur snjóað töluvert hjá okkur og er mikil vinna við mokstur og troðslu framundan. Sjáið þetta myndband http://tv.sksiglo.is/?file=XblRwoaUJ-c Gleðileg jól og velkomin í fjallið Starfsmenn    

Annar í jólum 26. desember lokað vegna hvassviðris

Jæja en og aftur verðum við að hafa skíðasvæðið lokað vegna veðurs. Kl 09:30 er NA 10-18m/sek, frost 8 stig og töluverður skafrenningur. Við stefnum á að opna á morgun kl 14:00 Starfsmenn