25.03.2017
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, SW 5-15m/sek og hviður 20-25m/sek og verður svona veður í dag. Á morgun verður komin sunnanátt og opnum við kl 10:00
Nýjar upplýsingar kl 08:00 á morgun
Starfsmenn
24.03.2017
Það verður lokað í dag vegna hvassviðri SW 10-20 m/sek og hviður 20-40m/sek.
Veðurútlit um helgina er þannig að á morgun laugardaginn verður SW stormur og lokað en sunnan átt á sunnudaginn og opið frá kl 10-16
Svona getur verið mikill harði á vindinum kl 05:19 í morgun var hviða 44,7m/sek í 300 metar hæð í dalnum góða.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00
Umsjónarmaður
23.03.2017
Það verður lokað í dag vegna vinds kl 13:00 er SSW 2-5m/sek og hviður eru 20m/sek , 7 stiga hiti og það er vaxandi vindur þegar líður á daginn.
Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun
Starfsmenn
22.03.2017
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 08:00 austan gola, frost 4 stig og lítilháttar éljagangur og mun birta til uppúr hádeginu. Færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað í nótt ca 5-10 sm. Færið er flott fyrir alla.
!!Það eru veik snjóalög fyrir utan mertar skíðaleiðir í 650-850 metra hæð ath. það þegar þið gangið á fjöll.!!
Nánari upplýsingar inn á þessari síðu veðurstofunar http://www.vedur.is/#syn=snjoflod
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
21.03.2017
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:00 austan gola, frost 2 stig og léttskýjað og mun sú gula koma í dalinn í dag. Færið er troðinn þurr snjór. 8 skíðaleiðir klárar.
!!Það eru veik snjóalög fyrir utan mertar skíðaleiðir ath. það þegar þið gangið á fjöll.!!
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
20.03.2017
Opið í dag frá 14-19
Veðrið er kl 15:00 austan 3-5m/sek, frost 2 stig og sú gula er að koma í dalinn. Færið er troðinn nýr snjór, það hefur snjóað ca 10-20 sm á síðasta sólahring.
Veðurspá í dag og næstu dag er mjög góð. http://www.vedur.is/vedur/spar/stadaspar/nordurland_vestra/#group=114&station=3752
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
19.03.2017
Það verður opið í dag frá kl 10-16
Veðrið kl 10:30 vestan gola, frost 4 stig og lítilsháttar éljagangur, færið er troðinn nýr snjór það hefur snjóað 10-15 sm í nótt, takið daginn snemma það bætir í vind þegar líður á daginn. 5 skíðaleiðir klárar í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
18.03.2017
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 14:30 logn, frost 1 stig og er léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og er púður snjór nokkuð góður á svæðinu. 8 skíðaleiðir eru klárar.
!!Það eru veik snjóalög fyrir utan mertar skíðaleiðir ath. það þegar þið gangið á fjöll.!!
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
17.03.2017
Opið í dag frá kl 13-19
Veðrið kl 11:15 ASA gola, 8 stiga frost og er éljagangur og verður éljagangur til kl 13:00 af og til, en það birtir til þegar líður á daginn.
Færið er troðinn nýr snjór og er mjúkt færi en það hefur snjóað á síðast sólahring um 25 sm og fögnum við því.
Það eru troðnar skíðaleiðir við Neðstu-lyftu, T-lyftu, Hálslyftu og Búngubakki er ekki troðinn nema frá krika.
!!!Ath. það eru veik snjóalög í 700 metra hæð svo farið varlega fyrir þá sem ætla að ganga til fjalla.!!!
Velkomin í Skarðsdalinn
16.03.2017
Það verður lokað í dag veðrið kl 10:00 NA 10-15 og er éljagangur og fögnum við því og opnum á morgun í nýjum snjó og góðu veðri kl 13-19.
Sjáumst hress
Starfsmenn