Fréttir

Opið á morgun og það verður opið til 14 maí

Opnum á  morgun kl 14 19 og það verður opið næstu daga

Sunnudaginn 23. apríl opið/open 11-16

Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 12:30 er WNW 3-7m/sek, frost 6 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og eru 5 skíðaleiðir klárar. Velkomin í Skarðsdalinn

Laugardaginn 22. apríl opið /open 11-16

Opið í dag frá kl 11-16 Veðrið kl 11:30 er vestan 2-6m/sek, frost 1 stig og er lítilsháttar éljagangur og það er að birta til í dalnum. Færið er troðinn þurr snjór og eru 6 skíðaleiðir klárar. Velkomin í skarðsdalinn  

Föstudaginn 21. apríl opið/open 13-18

Opið í dag frá kl 13-18. Veðrið er mjög gott, austan gola, frost 2 stig, léttskýjað og sólin að koma í dalinn. Færið er troðinn þurr snjór en það hefur snjóað 10-20sm á síðast sólahring. 6 skíðaleiðir klárar !!Frábær dagur framundan með púðursnjór og dásamlegu veðri.!! Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Sumardaginn fyrsta 20. apríl opið/open 12-16

Gleðilegt sumar Opið í dag frá kl 12:00-16:00 Veðrið kl 12:00 er NV gola, frost 1 stig og er éljagangur. Veðurspá stóðst upp á punkt og prik Færið er troðinn þurr snjór og er mikið af hvíta gullinu. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Miðvikudaginn 19. apríl lokað/closed

Það verður lokað í dag, en opnum á morgun sumardaginn fyrsta kl 11:00 Opnun næstu daga: Sumardaginn fyrsta 20.apríl kl 11-16 Föstudaginn 21. apríl           kl 13-19 Laugardaginn 22. apríl         kl 11-16 Sunnudaginn 23. apríl         kl 11-16 Mánudaginn 24. apríl              Lokað Þriðjudaginn 25. apríl              Lokað Miðvikudaginn 26. apríl        kl 14-19 Fimmtudaginn 27. apríl       kl 14-19 Föstudaginn     28. apríl       kl 13-18 Laugardaginn  29. apríl        kl 11-16 Sunnudaginn  30. apríl        kl  11-16 Laugardaginn    6. maí         kl  11-16 Sunnudaginn    7. maí         kl  11-16 Föstudaginn     12. maí        kl 13-18 Laugardaginn   13. maí        kl 10-16 Sunnudaginn    14. maí       kl 10-16 síðasti dagur þennan veturinn       

Þriðjudaginn 18. apríl opið/open 13:30-19:00

Komið þið öll sæl og takk fyrir mætinguna í dymbilvikunni, takk fyrir okkur. Opið í dag frá kl 13:30 -19:00. Veðrið kl 09:00 er vestan 3-8m/sek, hiti 3 stig og er léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og eru  6 skíðaleiðir klárar. Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Annar í páskum 17. apríl opið/open 10-16

Opnum á morgun kl 14:00 Opið í dag frá kl 10-16 Veðrið kl 13:30 logn, frost 3 stig og sú gula komin í dalinn Færið er þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar. Hér verður veðurblíða í dag SA gola Nú mæta allir í dalinn góða í dag og enda flotta páska hér á Sigló. Í dymbilviku hefur verið góð mæting í fjallið en um 3000 manns hafa mætt, takk takk fyrir komuna gestir góðir Svæðið verður opið til 1. maí bara minna ykkur á og svo er opið 12-14 maí en þá höldum við skíðahátíð. Velkomin Skarðsdalinn Starfsmenn

Páskadagur 16. apríl opið/open 10-16

Gleðilega páskahátíð Opið í dag frá kl 10-16. Nýjasta veðurspá gerir ráð fyrir að það birti til og vonandi gengur það eftir.  Veðrið kl 11:30 WNW gola, frost 2 stig og það er að birta til. Færið er troðinn þurr snjór, mjög gott færi. Pákaeggjabraut fyrir 12 ára og yngri fer fram kl 14:00 á neðstasvæðinu Æfintýraleið, Bobbbraut og fl og fl Skarðsprinsinn verður spriklæddur í dag Velkomin í Skarðsdalinn

Laugardaginn 15. apríl opið/open 10-17

Opið í dag frá kl 10-17. Veðrið kl 15:30 WNW 2-4m/sek, frost 4 stig og alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór og eru 8 skíðaleiðir klárar. Skíðagönguleið er klár upp á Súlur hér frá skíðaskálnum Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn