09.12.2017
Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 08:00 sunnan gola, frost 3-5 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór.
Það sem er opið í dag er Neðstabrekka og æfintýraleið og T-lyftubrekka og skíðaleið út í Þvergil.
Ath. það er mjög lítill snjór á neðstasvæðnu, farið varlega.
Minni á skíðakennsluna, panta tíma í skard@simnet.is eða hringja í 467-1806
Velkomin í Skarðsdalinn
08.12.2017
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er VSV 0-5m/sek, frost 6 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór og er mjög gott færi í troðnum brekkum.
Farið varlega í ótroðnu. Það lítur mjög vel út með veður næstu daga, frost og nýr snjór.
Minni á vetrakortasöluna og skíðakennslu
Velkomin í fjallið
Fjallamenn
07.12.2017
það verður lokað í dag, erum að vinna í því að moka inn T-lyftusvæðið og Neðstasvæðið.
Stefnum á að opna á morgun föstudaginn 8. des kl 14:00
Sjáumst hress
04.12.2017
Tilboð vetrarkorta 2017-18 10% afsláttur til jóla
Tilboð gildir frá 04.des til 24.des
Kort fullorðins 18 ára og eldri 23.500.- í stað 25.000.-
Kort framhaldsskólanema 13.500.- í stað 15.000.-
Kort háskólanema 13.500.- í stað 15.000.-
Kort barna 9-17 ára 9.000.- í stað 10.000.-
Börn að 8 ára og yngri eru gjaldfrjáls (1-2 bekkur Grunnskóla)
Ath. Þetta tilboð gildir til 24.des en eftir það hækkar gjaldið.
Kortin fást í Aðalbakaríinu, einnig er hægt að leggja inn á 348-26-1254 kt 640908-0680 og senda kvittun í tp skard@simnet.is
Það er að snjóa hjá okkur og það kemur meiri snjór í vikunni, það þarf mjög lítinn snjó í viðbót, opnum um leið og hægt er.
Sjáumst hress í Skarðsdalnum
03.12.2017
Það verður lokað í dag við höfum ekki snjó til að moka inn neðstu-brekkuna eins og við ætluðum að gera. SV rokið hefur leikið okkur illa.
Við fögnum á Torginu þegar kveikt verður á jólatrénu kl 16:00 og svo piparkökur og kakó í Bakaríinu og Torginu, bara gleði framundan í dag.
02.12.2017
Það verður lokað í dag, það er of hvasst og verður SV 10-20 m/sek í dag.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
01.12.2017
Það verður lokað í dag, það er of mikill hiti +7,6 í fjallinu og hvasst.
Staðan verður tekin í fyrramálið kl 08:00
Veðurstöð er komin í lag
Minni á forsölu vetrarkorta til 3. des og skíðakennsluna
Starfsmenn
29.11.2017
Skíðakennsla í vetur hefst á föstudaginn 1. desember og er alla daga sem opið er.
Skráning er skard@simnet.is. Kennsla fer fram virka daga frá kl 16-19 og um helgar frá kl 13-16
Hver tími er 30 mín og kostar kr 2.000.- og þeir sem þurfa skíðabúnað þá er hann til staðar.
Kennari er Kristín Guðmundsdóttir
29.11.2017
Forsala vetrarkorta er í fullum gangi til 3 desember.
Kort fullorðins kr 18.000.- í stað kr 25.000.-
Kort barna 9-17 ára kr 7.000.- í stað kr 10.000.-
Kort framhalds-háskólanema kr 11.000.- í stað kr 15.000.-
Til sölu í Aðalbakaríinu og einnig er hægt að kaupa þau með því að leggja inn á
348-26-1254 kt 640908-0680 og senda kvittun í tp skard@simnet.is
27.11.2017
Það var flottur dagur hér í Skarðsdalnum í gær
Næsta opnum við 1. desember og svo áfram til 15. maí
Sjáumst hress