22.10.2013
Nýjungar í vetrarkortum.
Með vetrarkortum í vetur fylgir Norðurkortið sem gildir á öllum skíðasvæðum á norðurlandi, ef keypt er kort í
Skarðsdalinn getur korthafi skíðað 2 daga á öllum hinum svæðunum óháð dögum s s korthafi velur þá daga sem hentar honum.
Þetta verða svokölluð klippikort..
Vetrarkortasala hefst frá og með 14 nóvember í Skarðsdalnum.
Fullorðinskort 18 ára og eldri kr 23.000.- tilboð 21.000.-
Barna/framhalds/háskólakort kr 10.000.- tilboð 8.000.
Tilboð þetta mun gilda til 18 desember.
Starfsmenn
09.09.2013
Nú er unnið við ýmsan frágang við Hálslyftu s s grafa niður öryggiskapal, setja jarðveg að undirstöðu, mála lyftuhús,
fegra allt umhverfi og fl.
Unnið er við ýmsa aðra hluti til að gera svæðið klárt fyrir veturinn og hefur verið unnið markvist að fyrirbyggjandi viðhaldi í
sumar en lyftur og tæki þurfa mikið viðhald.
Staðarhaldari
08.09.2013
Hópur krakka, þjálfara og foreldrar voru á skíðum í Skarðsdalnum um helginn við fínar aðstæður en hægt er að
skíða niður svokallaðan miðbakka á Búngusvæði.
Krakkarnir voru dregin upp á snjósleðum upp á Búngutopp og skíðuðu niður bæði innrileið og miðbakka. Veðrið var
mjög gott 10-15 siga hiti logn og blíða.
Það er frábært að sjá að skíðaáhugamenn nýti sér þessar aðstæðu en snjóalög eru með
mesta móti á þessu svæði í langan tíma.
Kveðja frá staðarhaldara.
18.05.2013
Nú höfum við lokað skíðasvæðinu þennan veturinn. Opnunardagar voru 100 og gestir inn á svæðið voru 16500 manns. Innilegar
þakkir fyrir komuna skíðagestir góðir. Sjáumst hress næsta vetur.
Starfsfólk skíðasvæðisins
18.05.2013
Opið er hjá okkur í dag frá 11:00-15:00
og er um 10 stiga hiti og glampandi sól flott verður um að gera að mæta og fá sér smá lit ;)
08.05.2013
Takið frá hvítasunnuna því þá verður opið í Skarðsdalnum. Snjórinn telst í metrum og brekkurnar eru flottar. Gerum
þetta að hvítasunnufjöri eins og páskafjörið var. Þá brostu allir hringinn yfir fegurð dalsins.
Strákarnir munu taka vel á móti ykkur. Björn, Sigurjón, Birgir og Kári mun sjá um að brekkurnar verði klárar.
04.05.2013
Þessi helgi var loka tilraun til að hafa opið nú í maí en nú höfum við lokað svæðinu þennan
veturinn.
Við starfsmenn skíðasvæðisins viljum þakka ykkur skíðagestir kærlega fyrir veturinn, hann var mjög góður. 98 daga opnun og
gestir 16500.
Sjáumst hress næsta vetur.
Starfsmenn
03.05.2013
Við munum taka stöðuna í fyrramálið kl 10:00 hvort opnað verður á morgun.
Gestir inn á svæðið í vetur voru 16500 manns sem er met aðsókn og opnunardagar voru 98. Innlit inn á heimasíðu skard.fjallabyggð.is hvern einasta dag frá 1. des til 1. maí var 205 og innhringingar í síma 878-3399
upplýsingasíman voru 114 á dag á þessum sama tíma.
Allar tölur eru upp á við.
Starfsmenn
01.05.2013
Flottur dagur að baki en rúmlega 200 manns eru búnir að koma í fjallið í dag.
Tökum stöðunna á föstudaginn hvort við getum opnað á laugardaginn 4. maí.
Það stefnir í að þessi dagur verði sá síðasti sem opið verður í Skarðsdalnum svo nú er um að gera að
mæta í dag.
Í dag verður opið frá kl 11-15. Veðrið kl 08:40 ANA 2-5m/sek, frost 5 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór og var
troðið í gær og er kominn smá nýr snjór ofaná.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
29.04.2013
Í dag verður lokað. Nýjar upplýsingar kl 09:00 á morgun 1. maí.
Opnum 1. maí kl kl 11-15. Það er von á mjög góðu veðri.
Takið þennan dag frá og mætið í Skarðsdalinn og svo fjölmennum við í 1. Maí kaffi.
Síðustu opnunardagar þetta vorið eru 4 og 5 maí
Starfsmenn