01.03.2014
Opnum eingöngu neðstu-lyftu og er gjald í hann eingöngu kr 500.-.
Það er of mikil vindur og töluverð blind á T-lyftusvæði þannig að við getum ekki opnað það svæði og eugum við
eftir mikla vinnu við troðslu.
Í dag verður opið frá kl 11-16. Veðrið kl 10:00 ANA 4-10m/sek, frostmark og alskýjað.
Færið er troðinn rakur snjór en er þurrari á T-lyftusvæði.
Velkomin í fjallið
Nú þurfa allir skíðaiðkendur í Skarðsdalnum að kaupa sér vasakort hvort sem er fyrir dagspassa eða vetrarkort. Kortið kostar 1.000 kr
og er skilagjaldið 500 kr. Vasakortin eru mjög þægileg því ekki þarf að stinga þeim í lesara, aðgangsbúnaðurinn les kortið
í vasa viðkomandi. Vasakortið er fjölnota og hægt nota ár eftir ár. ATH að hægt er að fylla á vasakort úr Bláfjöllum,
Hlíðarfjalli og öðrum þeim skíðastöðum sem eru með lesarakerfi.
28.02.2014
Nú þurfa allir skíðaiðkendur í Skarðsdalnum að kaupa sér vasakort hvort sem er fyrir dagspassa eða vetrarkort. Kortið kostar 1.000 kr og
er skilagjaldið 500 kr. Vasakortin eru mjög þægileg því ekki þarf að stinga þeim í lesara, aðgangsbúnaðurinn les kortið
í vasa viðkomandi. Vasakortið er fjölnota og hægt nota ár eftir ár. ATH að hægt er að fylla á vasakort úr Bláfjöllum,
Hlíðarfjalli og öðrum þeim skíðastöðum sem eru með lesarakerfi.
Kl 15:30 Það verður lokað í dag vegna veðurs.
Nýjar upplýsingar kl 08:00 á morgun.
Starfsmenn
Erum með opnun í skoðun í dag. Veðrið kl 10:00 ANA 15-25m/sek, frost 1 stig og alskýjað.
Það er ekki víst að við opnum í dag. Þurfum töluverðan tíma til að vinna svæði, en miðað við veðurspá
á að lægja á morgun.
Nýjar upplýsingar kl 15:00 í dag um stöðu mála.
Starfsmenn
27.02.2014
Kl 12:30 Það verður lokað í dag vegna veðurs ANA 6-14m/sek, rigning, slydda og snjókoma. Ekki góðar aðstæður til
skíðaiðkunar.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Umsjónarmaður
Erum með opnun í skoðun í dag.
Nýjar upplýsingar kl 14:00
Umsjónarmaður
26.02.2014
Lokað verður í dag vegna veðurs. Veðrið kl 14:00 ANA 6-16m/sek og töluverð úrkoma, snjór og slydda.
Nýjar upplýsingar kl 10:00 í fyrramáli
Starfsmenn
25.02.2014
KL 15:00 Það verður lokað í dag vegna veðurs
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Umsjónarmaður
Opnun er í skoðun, veðrið hefur versnað til muna ANA 10-19m/sek og töluverður skafrenningur.
Nýjar upplýsingar kl 15:00
Starfsmenn
24.02.2014
Jæja nú er þetta allt að koma, viti menn nú verður opið í dag frá kl 13-19
Færið er troðinn þurr snjór. Veðrið kl 12:00 logn, frost 6 stig og heiðskírt. Sólin kemur í heimsókn í dag.
Opnum 2 lyftur til að byrja með og vonandi getum við opnað lyftu 3.
Sjáumst hress í Skarðsdalnum
Starfsmenn
23.02.2014
Kl 10:00 Það verður lokað í dag vegna veðurs, það er NA 10-20m/sek og mikill skafrenningur og er veðurútlit ekki gott í dag.
Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun.
Það er of hvasst hjá okkur eins og er, NA 8-20m/sek og töluverður skafrenningur.
Nýjar upplýsingar kl 10:00
Starfsmenn
22.02.2014
Kl 11:30 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. NA 8-22m/sek.
Það er opið á Dalvík og Akureyri.
Nýjar upplýsingar kl 08:00
Erum með opnun í skoðun og ef við getum opnað, setjum við í gang kl 11:00.
Veðrið kl 10:10 NA 8-17m/sek. Það þarf að lægja til að við getum keyrt lyftur.
Ef að hviður fara niður fyrir 13m/sek getum við sett í gang.
Nýjar upplýsingar kl 11:00
Starfsmenn
21.02.2014
Í dag er lokað vegna hvassviðris. Veðrið kl 11:45 ANA 15-30m/sek.
Bendi ykkur skíðagestum á að skoða aðstæður á Akureyri þar er opið í dag.
Veðurspá er okkur hér á Siglufirði ekki hliðholl í dag en er betri fyrir morgundaginn.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Starfsmenn