02.02.2014
KL 11:00 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Veðrið er ENE 12-20m/sek, frost 2 stig og töluverður skafrenningur á
svæðinu.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 13:00
Lokað eins og er vegna hvassviðris.
Veðrið kl 07:00 ENE 15-20m/sek, frost 2 stig.
Tökum stöðuna kl 11:00 og verða nýjar upplýsingar settar inn þá.
Starfsmenn
01.02.2014
Kl 10:30 Það verður lokað í dag vegna hvassviðris og er veðurspá okkur ekki hliðholl í dag.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Kl 06:30 Það er lokað eins og er.
Það er mikið hvassviðri á svæðinu NA 20-30m/sek.
Tökum stöðuna kl 12:00
Starfsmenn
31.01.2014
Í dag verður opið frá kl 15-19.
Veðrið kl 13:00 austan 2-8m/sek, hiti 3 stig og léttskýjað.
4 troðnar brekkur og er þurr snjór á svæðinu
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
30.01.2014
Í dag verður opið frá kl 15-19. Veðrið kl 13:00 austan gola, hiti 3 stig og heiðskírt.
Færið er mjög gott troðinn þurr snjór. Púður á Búngusvæði.
Frábært veðru og enn betra færi
Velkomin í fjallið
29.01.2014
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 11:00 SSV gola, frost 3 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór. Það er frábært færi sennilega það bezta á vetrinum og svo er töluvert púður
á Hálslyftu og Búngusvæði.
Veðurútlit er mjög gott í dag bjart og fallegt veður og þetta gula mun sjást hér um hádegið enda
voru hér sólarlumur laugardaginn 11. janúar þegar þetta gula var hér í dalnum.
En við vorum fyrstir með sólina hér í firðinu, bara svo það sé á hreinu.
Velkomin í fjallið
28.01.2014
Þetta er það sem koma skal í Skarðsdalinn Sunkid er fremsta fyrirtæki í heimi með búnað til að þjóna yngstu
skíðaiðkendunum og reyndar allri fjölskylduni.
Skoðið þessa heimasíðu. þetta er draumurinn http://www.sunkidworld.com/
27.01.2014
Opnum aftur á miðvikudaginn 29. janúar
Í dag verður opið frá kl 16-19. Veðrið kl 10:00 ANA 5-12m/sek, hiti 1 stig og léttskýjað.
Færið er troðinn rakur snjór á neðstasvæði en þurr snjór í efrihluta svæðisins.
Veðurspá dagsins:
Strandir og Norðurland vestra Norðaustan 5-10 og dálítil él eða slydduél. Frost 0 til 4 stig en um frostmark við sjóinn. Spá gerð:
27.01.2014 06:22. Gildir til: 28.01.2014 18:00.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
26.01.2014
Flottur dagur að baki, rúmlega 200 manns komu í fjallið í dag. Opnum á morgun kl 16:00
Í dag er opið frá kl 10-16. Veðrið kl 10:30 sunnan gola, frost 1 stig, heiðskírt og þetta gula mun sjást á Búngusvæði.
Færið er unnið harðfenni en það sker vel í fyrir alla. Búið að troða neðstubrekku, t-lyftubrekku, stálmasturbakka
,búngubakka, miðbakka og innrileið samtals 250.000m2.
!!Utan við troðnar brautir er mikið harðfenni og hálka, farið varlega!!
Velkomin í fjallið
25.01.2014
Kl 15:30 Flottur dagur í dag. Fjöldi manns hefur komið í fjallið í dag, um 350 manns.
Flott veðurútlit er fyrir morgundaginn svo nú er um að gera að mæta í fjallið. Þetta gula mun sjást í fjallinu á morgun.
Opnum kl 10 í fyrramáli.
Í dag verður opið frá kl 10-16.
Veðrið kl 11:30 SA gola, hiti 2 stig og heiðskírt.
Færið er unnið harðfenni, það hefur snjóað aðeins þannig að færið er mjög gott fyrir alla.
Ath. skíðagestir góðir endilega að skíða í troðnum brautum, utan við troðið er mjög erfitt færi vegna mikils
harðfennis og hálku.
Velkomin í fjallið
24.01.2014
Í dag er lokað vegna veðurs, Veðrið kl 13:00 8-15m/sek og hviður í 18-20m/sek og töluverður skafrenningur. Miðað við veðurspá
á þetta veður að ganga niður með kvöldinu og veðrið um helginna lítur mjög vel út.
Veðurspá í dag og á morgun.
Austan og norðaustan 10-15 með slyddu eða snjókomu. Dregur úr vindi í kvöld, austan 3-8 og úrkomulítið
í nótt og á morgun en stöku él annað kvöld. Hiti um frostmark í dag, en annars frost 0 til 5 stig. Spá gerð: 24.01.2014 12:19. Gildir til:
26.01.2014 00:00.
Opnum á morgun kl 10:00
Nýjar upplýsingar kl 08:00 í fyrramáli.