Kl 15:30 Flottur dagur í dag. Fjöldi manns hefur komið í fjallið í dag, um 350 manns.
Flott veðurútlit er fyrir morgundaginn svo nú er um að gera að mæta í fjallið. Þetta gula mun sjást í fjallinu á morgun. Opnum kl 10 í fyrramáli.
Veðrið kl 11:30 SA gola, hiti 2 stig og heiðskírt.
Færið er unnið harðfenni, það hefur snjóað aðeins þannig að færið er mjög gott fyrir alla.
Ath. skíðagestir góðir endilega að skíða í troðnum brautum, utan við troðið er mjög erfitt færi vegna mikils harðfennis og hálku.
Velkomin í fjallið