06.02.2013
Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 15:10 vestan gola, frost 2 stig og léttskýjað. Færið er troðinn
þurr snjór, það er ca 5-10 cm nýr snjór ofan á harðfenni. Flott færi og flott veður.
Búngu-lyfta er stopp eftir óveðrið sem gekk hér yfir um daginn en vonandi kemst hún í lag á morgun.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
05.02.2013
Í dag þriðjudaginn 5. febrúar er lokað. Opnum á morgun miðvikudaginn 6. febrúar kl 15:00.
Veðurstöð komin í lag.
Nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun.
Starfsmenn
Stefnum á að gera göngubraut á Hólssvæði þegar skíðasvæðið er opið.
04.02.2013
Hlustið á þetta:http://tv.sksiglo.is/?file=VP6xHczSnMg#!
Siglufjörður er staðurinn!!!!!!
Í dag verður lokað vegna hvassviðris og er reyndar ekki gott skyggni.
Opnum aftur á miðvikudaginn kl 15:00. Veðurspá frá miðvikudegi til sunnudags er mjög góð fyrir okkar svæði.
Þakka öllum þeim sem heimsóttu okkur nú um helgin en um 800 manns komu á skíðasvæðið.
Stefnum á að gera göngubraut á Hólssvæði þegar skíðasvæðið er opið.
Ath. Sjálfvirkur vindmælir sýnir ekki réttan vindstyrk, unnið er að viðgerð.
Sjáumst hress
Starfsmenn
03.02.2013
Kl 11:40 er skollin á blíða SV 2-6m/sek, frost 1 stig og sólin að sýna sig.
Í dag verður opið frá kl 11-16. Veðrið kl 10:00 SV 4-11m/sek, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór.
Veðurspá dagsins: Minnkandi suðvestanátt og léttir til. Norðaustan 8-13 og snjókoma í kvöld. Frost 0 til 6 stig, en hiti kringum frostmark
á morgun.
Göngubraut tilbúin kl 13:00 á Hólssvæði.
Snjóbrettahátíðin Snákurinn á Siglufirði:
Í dag sunnudaginn, fer fram "Old school boardercross" hraðakeppni, þar sem fjórir keppa í einu, sá fljótasti vinnur.
Velkomin í fjallið.
Starfsmenn
02.02.2013
Frábærum degi lokið í fjallið komu 450 manns.
Í dag laugardaginn 2. febrúar verður skíðasvæðið opið frá kl 10-16. Veðrið kl 07:40 austan gola, hiti 3 stig og
léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, það er nýr snjór í giljum og öllum troðnum brautum.
Snjóbrettahátíðin Snákurinn á Siglufirði:
Í dag, laugardag um kl. 13, er "Slopestyle" keppni á Skíðasvæðinu í Skarðsdal, þar er keppt á stökkpöllum og handriðum
sem komið hefur verið upp í fjallinu fyrir þessa hátíð. Pylsupartí, tónlist og skemmtilegheit. Um kvöldið spilar og syngur MC Gauti
á Allanum.
Á morgun, sunnudag, verður svo "Old school boardercross" hraðakeppni, þar sem fjórir keppa í einu, sá fljótasti vinnur.
Velkomin í Skarðsdalinn starfsfólk
01.02.2013
Bjartur og fallegur dagur í dag.
Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 14-19. Veðrið kl 13:00 WSW gola, frost 5 stig og heiðskírt. Færið er troðinn
þurr snjór. Flott veður og flott færi.
Það verður mikið um að vera um helginna:
Brettasýning kl 21:00 í kvöld við Síldaminjasafnið (Opið í dag 14-19)
Brettasýning í fjallinu laugardaginn 2. febrúar kl 13.00 á neðstsvæðinu. (Opið kl 10-16)
Brettakeppni í fjallinu á sunnudaginn 3. febrúar kl 13:00 neðstasvæðinu. (Opið kl 10-16)
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
31.01.2013
Í dag verður skíðasvæðið opið frá kl 16-20. Veðrið kl 12:00 SA gola, frost 4-5 stig og heiðskírt. Færið er
troðinn nýr snjór, flott færi fyrir alla.
Vellkomin í fjallið
Starfsmenn
30.01.2013
Kl 14:00 Það verður lokað í dag vegna aðstæðna, tæki og tól eru illa frosin föst. Hér hefur verið snarvitlaust veður
í 3 daga. Nú hefði verið gott að vera með aðstöðu til að geyma troðara inn.
Jæja nú eru hlutirnir að gerast og veðrið að ganga niður. Veðrið kl 12:00 ANA 10-17m/sek þannig að enn er of hvasst. Erum með opnun
í skoðun í dag. Það er verið að moka veginn og unnið er að koma svæðinu í gang eftir þetta aftaka veður sem hefur ekki farið
fram hjá neinum. En það hefur komið töluverður snjór í gil og lautir en rifið allan snjó í hlíðum, hann hefur allur fokið
í burtu í þessu mikla stormi og er sennilega kominn inn á hálendið.
Stefnum á að opna kl 16:00 Nýjar upplýsingar um kl 15:00
Starfsmenn
29.01.2013
Skíðasvæðið er lokað í dag vegan veðurs. Veðið kl 12:00 ANA 15-20m/sel og 25-30m/sek í hviðum.
Þessu leiðinda veðri er að slota og framundan eru bjartir og góðir dagar.
Brettahátíð er framundan 1-3 febrúar, það verður sýning í bænum og brettalistir/keppni í Skarðsdalnum 4. brauta keppni,
pallar og fl.
Tökum stöðuna um hádegisbilið á morgun.
Starfsmenn
28.01.2013
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs. Veðrið kl 12:00 ANA 10-18m/sek og 25-30m/sek í hviðum, frost 1 stig og slydda.
Það verður leiðinda veður til miðvikudags í þessari viku en þá fer þetta að lagast og þá kemur austan og suðaustan
áttin aftur með allri sinni dýrð.
Takið frá næstu helgi það verður mikið fjör í Skarðsdalnum.
Starfsmenn