27.02.2009
Opið verður í dag frá kl 13:00-20:00, veðrið er mjög gott logn, -5c° og léttskýjað og færið er mjög gott nýr
snjór á öllu svæðinu, alveg lista færi fyrir alla skíðaiðkendur, nú er um að gera að drífa sig í fjallið, brekkur
við allra hæfi, 3 lyftur keyrðar samtals lengd 2km og brekkur um 2,3 km og breiddin eftir því, gerist ekki betra, gönguspor við Hól.
Snjócrossbraut verður tilbúinn um kl 16:00 í dag tilbúinn til æfinga fyrir mótið sem fer fram á laugardaginn 28. febrúar kl 14:00.
Búast má við 1000-1500 gestum yfir helginna, ég mæli með að gestir mæti tímalega á laugardaginn og sunnudaginn, við opnum lyftur
báða daga kl 10:00 og lokum kl 16:00.
Velkomin til Siglufjarðar (Fjallabyggð) á skíði og snjósleða.
Starfsmenn
26.02.2009
Opnað verður á morgun frá kl 13-20, veðurútlit er mjög gott og færið er eins og það gerist best, nýr snjór
er á öllu svæðinu og er snjór töluvert mikill. Nánari upplýsingar um kl 10:00 í síma 878-3399 og á
heimasíðu.
Velkomin í fjallið starfsmenn
26.02.2009
Opið verður í dag frá kl 10:00-14:00 og aftur frá kl 16:00-20:00 neðsta-lyfta og t-lyfta verða opnar í fyrri opnun og allar 3 lyfturnar verða opnar
í seinni opnun.
Veðrið í fjallinu er N-gola, -5c° og heiðskírt. Gönguspor við Hól.
Velkomin í fjallið starfsmenn
25.02.2009
Við verðum að hafa lokað í dag vegna veðurs, en við opnum á morgun fimmtudaginn 26. febrúar kl 10:00-14:00 og aftur frá kl 16:00-20:00.
Nánari upplýsingar verða um kl 09:00 í síma 878-3399 og á heimasíðu
Starfsmenn
25.02.2009
Við stefnu á að opna kl 16-20 í dag, veðrið í fjallinu er NA-10-15m/sek, -6c° og töluverður skafrenningur, nýjar upplýsingar um kl
15:00 í síma 878-3399 og á heimasíðu. Veðurútlit er nokkuð gott næstu daga.
Starfsmenn
24.02.2009
Við lokum í dag vegna veðurs en opnum á morgun miðvikudaginn 25. febrúar kl 14:00-20:00 nánari upplýsingar kl 12:00 í síma 878-3399 og
heimasíðu.
Starfsmenn
24.02.2009
Opið verður frá kl 13:00-20:00, veðrið í fjallinu er NA 4-6m/sek, -3c° og töluverður éljagangur, færið er mjög gott troðinn
nýr snjór á öllu svæðinu, og hvet ég alla að drífa sig á skíði sem fyrst það gæti byrjað að hvessa
seinni partinn.
Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 13:00 en Búngu-lyftu um kl 15:30.
Velkomin í fjallið starfsmenn.
23.02.2009
Opið verður frá kl 13-17 í dag, veðrið í fjallinu er NA 5-10m/sek, -5c° og snjóél, færið er troðinn nýr snjór
ágætis færi fyrir alla.
Við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu, það er of hvasst í Búngu-lyftu.
Velkomin í fjallið starfsmenn
22.02.2009
Skíðasvæðið verður opið frá kl 11:00-17:00, veðrið er NV 4-10m/sek, -4c° og éljagangur, færið er nýr troðinn
snjór og hraðfenni undir, það er töluvert blint, góð gleraugu hjálp mikið til.
Allar 3 lyfturnar verða keyrðar
Velkomin í fjallið starfsmenn
21.02.2009
Opið í dag frá kl 10:00-16:00 færið er troðinn nýr snjór dálítið blautur, veðrið er S-gola, +4c° og
léttskýjað.
Allar 3 lyfturnar verða keyrðar.
Velkomin í fjallið starfsmenn