02.01.2016
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla
Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 11:30 SSA 1-6m/sek, frost 1 stig og heiðskírt, færið er unnið harðfenni.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
31.12.2015
Í dag verður lokað. það er of hvasst. Veðurspáin er sunnan 10-18 í dag.
Gleðilegt ár og takk fyrir það gamla
Sjáumst hress á laugardaginn 2. janúar
30.12.2015
Í dag verður lokað en opnum á morgun Gamlársdag kl 11-14. Lokað verður á Nýársdag.
Veðurútlit er mjög gott næstu daga hér fyrir norðan, helgin 2-3 jan lítur mjög vel út.
Sjáumst hress
Fjallamenn
29.12.2015
Opið í dag frá kl 14:30-19. Veðrið kl 14:30 SA gola, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, það hefur aðeins snjóað ca 5-10cm.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
28.12.2015
Kl 12:45 Seinkum opnun til kl 14 vegna vinds.
Opið frá kl 14-18 í dag. Veðrið kl 14:00 er SA gola, hiti 6 stig og léttskýjað. Færið er troðinn rakur snjór en það heldur nokkuð vel í 800 metra hæð er hiti 4 stig. Miðað við veðurspá á að kólna þegar líður á daginn.
Erum að vinna á Búngusvæði (fjórða lyftan) og vonandi kemst það í gang í dag eða síðasta lagi á morgun.
Göngubraut er á Hólssvæði.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
27.12.2015
Í dag verður opið frá kl 11-16. Veðrið kl 09:00 er sunnan gola, frost 1 stig og heiðskírt en það gæti byrjað að hvessa þegar líður á daginn. Færið er troðinn þurr snjór.
Erum að vinna Búngusvæðið og vonandi getum við opnað það á morgun.
Nú er hægt að renna sér niður með skíðaveginum, en farið varlega.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði ca 2 km hringur
Velkomin í fjallið
26.12.2015
Gleðilega hátíð það verður opið í dag frá kl 12-16. Veðrið kl 10:00 er sunnan gola, frost 3-4 stig og heiðskírt, færið er troðinn nýr snjór og er færið töluvert mjúkt. Þessu seinkar öllu hjá okkur vegna aðstæðna það er töluverður mokstur á svæðinu og vonandi getum við sett tvær lyftur í gang í dag, einnig seinkar snjómokstri til okkar.
Fylgist með okkur á vefmyndavélinni.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
23.12.2015
Nú tökum við okkur smá jólafrí og opnum á annan í jólum laugardaginn 26. desember.
Gleðileg skíðajól og sjáumst hress
Fjallastrákarnir
22.12.2015
Opið í dag frá kl 14-18. Veðrið er mjög gott SSW gola, frost 1 stig og léttskýjað. Færið er troðunn þurr snjór. Flott færi og flott veður.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
21.12.2015
Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið er mjög gott, austan 2-7m/sek, frost 2 stig og léttskýjað. Færið er troðinn þurr snjór en það hefur bætt aðeins í brekkurnar svo að færið er töluvert mjúkt.
Erum að stefna á að opna Hálslyftu á morgun og vonandi getum við opnað Búngusvæðið á milli hátíða. Það hefur því miður lítið fest snjó í efrihlutanum vegna vinds og höfum við þurft að moka mikið í efrihlutanum, en það hefur verið mun auðveldara að koma inn tveimur neðstu-svæðunum.
Opið yfir jólin
26. des 11-16, 27. des 11-16, 28. des 13-18, 29. des 13-18, 30. des 13-18, 31. des 11-14 og 2. jan 11-16.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn