22.02.2016
Kl 13:30 Það verður opið í dag frá kl 15-19, veðrið er mjög gott WNW gola, frost 3 stig og það er að létta til. Færið er troðinn þurr snjór en það hefur snjóað í brekkurnar ca 30-60 cm um helgina þannig að færið er mjög mjúkt. Hálslyfta opnar á milli 16-17.
Ath. það verður lögð göngubraut frá og með miðvikudeginum 24. febrúar á Hólssvæðinu ca 3 km hringur.
Það gengur hægt að troða í dag, það þarf mikið að moka til á svæðinu og mokstur á veginum er töluverð vinna. Nánari upplýsingar koma inn kl 14:00. Veðrið kl 12:00 vestan gola, frost 4 stig en alskýjað.
Það góða við stöðuna er að veðurútlit er bara gott út vikunna.
Svæðisstjóri
21.02.2016
Lokað í dag vegna hvassviðris, veðrið kl 08:30 N 10-20 m/sek og töluverður skafrenningur. Miðað við veðurspá gengur veðrið ekki niður fyrr en seinnipartinn og er veðurútlit mjög gott næstu daga.
Skíðakennsla fyrir byrjendur verður næstu helgi frá kl 13-16 báða daga og er kent í 1/2 tíma lotum og er verð per lotu kr 2.000.-
Panta tíma með því að senda tp á skard@simnet.is
Sjáumst hress
Svæðisstjóri
20.02.2016
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris veðrið kl 08:45 NA 15-19m/sek og hviður 23-26m/sek og þá er bara eitt í stöðunni að fara í sund, síðan í bakaríið og enda daginn á því að slaka á fyrir átökin í fjallinu á morgun.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
Svæðisstjóri
19.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott SSA gola, um frostmark við skíðaskálan (200m) en 3. stiga frost við sleppingu á Búngulyftu (650m) og það er léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór og eru troðnar 5 skíðaleiðir.
Veðurspá dagsins er sunna átt 2-7m/sek og lítilsháttar éljagangur af og til, þannig að það verður gott veður í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
18.02.2016
Opið í dag frá kl 13-20, veðrið kl 13:00 er mjög gott sunnan gola, frost 2 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór og er púðursnjór í dalnum ca 10-25cm.
Velkomin í fjallið
Starfsmenn
17.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 10:00 SSW 2-6m/sek og heiðskírt. Það verður hægviðri framan af degi og svo snýst í norðanátt í kvöld. Færið er troðinn þurr snjór það hefur snjóað ca 10-20 sm.
Opið á morgun fimmtudaginn 18. feb frá kl 13-20.
Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn
16.02.2016
Í dag verður lokað en opnum á morgun kl 13:00-19:00 og það verður opið á fimmtudaginn 18. feb kl 13-20
Nýjar upplýsingar kl 10:00
Svæðisstjóri
15.02.2016
Opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 15:00 ASA gola, 4. hiti í við skíðaskálan (200m) en 1. stiga hiti við sleppingu á Búngulyftu (650m) og léttskýjað. Færið er troðunn þurr snjór.
Það verður SA átt í dag en útlit með morgundaginn er ekki gott SV rok en frá miðvikudegi til föstudags lítur veðrið betur út.
Göngubraut tilbúin í Hólsdalnum.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
14.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 10:00 er mjög gott norðan gola, frost 4-7 stig og er að birta til í dalnum. Færið er troðinn þurr snjór. Búið að troða 7 skíðaleiðir.
Flott veður og færi í dag
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði ca 3 km hringur.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn
13.02.2016
Opið í dag frá kl 10-16, veðrið er ASA 2-6m/sek, frost 3-6 stig og léttskýjað. Það verður flott veður í dag. Færið er troðinn þurr snjór en það snjóaði aðeins í nótt og er færið mjög gott.
Göngubraut tilbúin í Hólsdalnum kl 12:00
Ath. vindmælir er bilaður.
Velkomin á skíði í dag
Starfsmenn