26.12.2017
Gleðilega hátíð
Kl 15:00 er lokað
Opið í dag frá kl 12-16. veðrið kl 10:45 ANA 8-15m/sek, frost 4 stig og er lítilsháttar éljagangur og skafrenningur. Færið er troðinn þurr snjór, það bætir á snjóinn hægt og býtandi þannig að það er orðið silkifæri.
Byrjum á að opna Neðstu-lyftuna en erum með það í skoðun að opna T-lyftu en þar er töluvert blint.
Velkomin í fjallið
25.12.2017
Gleðileg jól
Opið í dag frá kl 12-16, veðrið er NA 2-6m/sek, 7 stiga frost og lítilsháttar éljagangur. Færið er troðinn þurr snjór.
ATH. skíðið í troðnum brautum.
Mögulega verður T-lyftan opnuð aðeins síðar en kl 12:00
Opið næstu daga
26. des opið kl 12-16
27-30. des opið kl 12-17
31. des opið kl 11-16
2. jan opið kl 12-18
24.12.2017
Gleðileg skíðajól og hafið það gott um jólin.
Jólagjöfin til ykkar er að við opnum skíðasvæðið á morgun jóladag kl 12-16
Sjáumst hress um jólin
22.12.2017
Það verður lokað í dag vegna aðstæðna, kl 14:00 er 3 stiga hiti og brekkur á nokkrum stöðum farnar að láta á sjá eftir SW rokið, mjög stutt niður á grjót.
Það jákvæða er að nú mun snjóa hjá okkur næstu daga heilu sköflunum miðað við veðurspá.
Opnum næst þriðjudaginn 26. des á annan í jólum
Sjáumst hress í Skarðsdalnum
21.12.2017
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris. Veðrið kl 14:15 SW 8-15 m/sek og hviður 20-25 m/sek og verður það svo í dag.
Nýjar upplýsingar á morgun kl kl 10:00
20.12.2017
Það verður lokað í dag, en það jákvæða við daginn í dag að það er éljagangur og verður svo í dag.
Nýjar upplýsingar kl 10: 00 á morgun
Starfsmenn
18.12.2017
Lokað verður í dag mánudaginn 18. des og á morgun þriðjudaginn 19. des.
Það gengur mikill hiti yfir núna ca 6-8 stiga hiti og fylgir töluverður vindur af SW, en það frystir aftur á morgun.
Nýjar upplýsingar á miðvikudaginn 20. des kl 10:00
Nú fer hver að verða síðastur að kaupa kortin á þessu verði
Minni á tilboð sem gildir til 24 des á vetrarkortum
Fullorðins kr 22.500.-
Börn 9-17ára kr 9.000.-
Háskóla og framhaldsnemar kr 13.500.-
Kortin eru til sölu í Aðalbakaríinu og einnig er hægt að leggja inn á 348-26-1254 kt 640908-0680 og senda kvittun í tp á skard@simnet.is
17.12.2017
Það er lokað í dag vegna hvassviðris kl 08:30 SW 8-20m/sek og verður þessi vindur í dag hér í dalnum góða.
16.12.2017
Opið í dag frá kl 11-16, veðrið er mjög gott SA gola, frost 7 stig og léttskýjað, færið er troðinn þurr snjór og er mjög gott færi í troðnum brekkum.
Æfintýraleið og skíðaleið er frá T-lyftusvæðið og út í Þvergil.
Það er ljómandi færi til að fara á fjöll í dag.
Flottur dagur framundan í dag.
Velkomin í Skarðsdalinn
15.12.2017
Opið í dag frá kl 16-19, veðrið kl 10:00 er WSW 0-3 m/sek, frost 6 stig og éljagangur og verður svipað veður til kl 15:00 í dag en þá minkar éljagangurinn. Færið er troðinn nýr þurr snjór og er gaman að fá hvíta gullið, dásamlegt.
Það verður flott veður og færi í dag.
Seinkum aðeins opnun í dag og leyfum hvíta gullinu að koma og troðum aðeins seina í dag.
Velkomin í fjallið