16.03.2011
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 10:00 vestan 4-10m/sek, frost 6 stig og léttskýjað, færið
er unnið harðfenni í bland við nýjan snjó, Neðstasvæðið opnar kl 14:00 og T-lyftusvæðið kl 15:00. Skíðamaður
góður nú er um að gera að drífa sig í fjallið og vera vel klæddur, það er kalt. Veðurspá er nokkuð góð
næstu daga hjá okkur.
Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is http://www.textavarp.is/544
Velkomin í fjallið starfsfólk
15.03.2011
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 14:30 SV 6-18m/sek, frost 5 stig, skafrenningur og alskýjað,
svæðið opnar á morgun kl 14:00, nýjar upplýsingar kl 12:00 á morgun, veðurspá er nokkuð góð fyrir morgundaginn, sjáumst
hress.
Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is http://www.textavarp.is/544
Starfsfólk
14.03.2011
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, því miður en þetta kemur aftur, veðrið kl 12:30 NNA 20-25m/sek og hafa
hviður farið uppí 40-43m/sek sem er ofsaveður, hiti um 4 stig, stefnum á að opna á morgun kl 14:00, nýjar upplýsingar kl 12:00 á
morgun, endilega að skoða http://siglfirdingur.is þar er umfjöllun og flottar myndir af skíðasvæðinu Skarðsdal laugardaginn 12. mars.
Sjáumst hress
Starfsfólk.
13.03.2011
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs veðrið kl 11:30 austan 5-15m/sek, hviður í 20-24m/sek, frost 6. stig og er
töluverður skafrenningur á svæðinu, veðurspá er okkur ekki hagstæð í dag.
Skiptihelgi í Hlíðarfjalli, Dalvík og á Siglufirði: Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli, Dalvík og Siglufirði geta skíðað á svæðunum um helgina þar sem fyrsta skiptihelgin verður að veruleika.
Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta verður fyrsta
skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.
Starfsfólk
12.03.2011
Nú er lokið frábærum skíðadegi gott skíðafólk, á svæðið í dag komu 355 manns, bæði veður og
færi var eins og það gerist bezt, á morgun opnum við kl 10 og það verður ýmislegt um að vera á svæðinu, byrjandakennsla kl 13-15,
fjallakakó hjá Skíðafélaginu síðan er æfing hjá hundabjörgunarsveitinni í Þvergilinu rétt fyrir ofan
T-lyftuna kl 15.00 en eins við vitum er mjög gott að hafa björgunarmenn til taks þegar á reynir, sjáumst hress á morgun, það borgar sig
að taka daginn snemma á morgun.
Í fjallið núna eru um 350 manns við bestu aðstæður, frábært veður og frábært færi.
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:30 vestan 2-4m/sek, frost 8 stig og heiðskírt, færið er
troðin nýr snjór og er mjög gott færi í öllum brekkum, Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið opna kl 10:00 en
Búngusvæðið opnar kl 12:00.
Skiptihelgi í Hlíðarfjalli, Dalvík og á Siglufirði: Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli, Dalvík og Siglufirði geta skíðað á svæðunum um helgina þar sem fyrsta skiptihelgin verður að veruleika.
Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta verður fyrsta
skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.
Verðum með byrjandakennslu fyrir börn í 1-2 bekk grunnskóla föstudaginn 11/3 kl 17-19, laugardaginn 12/3 kl 13-15, sunnudaginn 13/3 kl 13-15, tökum 4
krakka á hverjum klst og er verð per klst 1.000.- skráning í síma 467-1806/893-5059 Skíðasvæðið Skarðsdal.
Starfsfólk
11.03.2011
Veðurspá fyrir helginna er mjög góð.
Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 15:15 N 10-18m/sek og hviður 20m/sek, frost 9 stig, vindkæling 22. stiga frost
og smá skafrenningur. Skíðasvæðið opnar á morgun kl 10, nýjar upplýsingar kl 08:30 í fyrramálið. Minni á
byrjandakennsluna á morgun kl 13-15.
Skiptihelgi í Hlíðarfjalli, Dalvík og á Siglufirði: Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í
Hlíðarfjalli, Dalvík og Siglufirði geta skíðað á svæðunum um helgina þar sem fyrsta skiptihelgin verður að veruleika.
Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta verður fyrsta
skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.
Verðum með byrjandakennslu fyrir börn í 1-2 bekk grunnskóla föstudaginn 11/3 kl 17-19, laugardaginn 12/3 kl 13-15, sunnudaginn 13/3 kl 13-15, tökum 4
krakka á hverjum klst og er verð per klst 1.000.- skráning í síma 467-1806/893-5059 Skíðasvæðið Skarðsdal.
Starfsfólk
10.03.2011

Skíðasvæðið verður lokað í dag vegna veðurs, veðrið kl 13:00 ANA 15-25m/sek, hviður upp í 30m/sek, frost 11 stig og
snjóél, svona til upplýsinga er vindkæling um 23. gráðu frost, nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00.
Verðum með byrjandakennslu fyrir börn í 1-2 bekk grunnskóla föstudaginn 11/3 kl 17-19, laugardaginn 12/3 kl 13-15, sunnudaginn 13/3 kl 13-15, tökum 4
krakka á hverjum klst og er verð per klst 1.000.- skráning í síma 467-1806/893-5059 Skíðasvæðið Skarðsdal.
Starfsfólk
09.03.2011
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið kl 15:00 austan gola, 9 stiga frost, smá éljagangur en léttir
mjög vel til á milli, færið er troðinn nýr snjór mjög gott færi fyrir alla, Neðstasvæðið opnar kl 13:00 og T-lyftusvæði
opnar kl 15:00.
Staða á svæðum.
Neðstasvæði: Brekka meðfram lyftu, vegur að Rjúpnabakka og Rjúpnabakki.
T-lyftusvæði: Brekka meðfram lyftu, Stálmastursbakki, vegur að Þvergili og Þvergil, Hólabraut, Bobbbraut og pallar.
Verðum með byrjendakennslu fyrir börn í 1-2 bekk grunnskóla föstudaginn 11/3 kl 17-19, laugardaginn 12/3 kl 13-15, sunnudaginn 13/3 kl 13-15, tökum 4
krakka á hverjum klst og er verð per klst 1.000.- skráning í síma 467-1806/893-5059 Skíðasvæðið Skarðsdal.
Velkomin í fjallið starfsfólk
08.03.2011
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-19, verðið kl 14:00 NV gola, frost 5 stig og alskýjað, færið er troðinn
nýr snjór, það hefur snjóað ca 5-10cm á svæðinu, Neðstasvæðið og T-lyftusvæði vera opin í dag.
Veðurspá dagsins er NA 10-18m/sek og snjókoma þegar líður á daginn.
Velkomin í fjallið
Starfsfólk
07.03.2011
Skíðasvæðið verður opið frá kl 14:00-19:00, veðrið kl 12:00 SV 5-12m/sek, frost 3 stig, léttskýjað og smá
skafrenningur, færið er troðinn nýr snjór í bland við harðfenni og er mjög hart sumstaðar í brekkunum, það hefur skafið
aðeins í brekkurnar. Svæðið er búið að vera opið í 70 daga frá 1. nóvember og eru gestir um 7. þúsund og en er eftir 7-8
vikur af tímabilinu fram á vorið, en svæðið lokar 2. maí.
Upplýsingar eru ávallt uppfærðar inn á mbl.is og textavarp.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/skidasvaedi.html og textavarp.is http://www.textavarp.is/544
Velkomin í fjallið
Starfsmenn