Nú er lokið frábærum skíðadegi gott skíðafólk, á svæðið í dag komu 355 manns, bæði veður og færi var eins og það gerist bezt, á morgun opnum við kl 10 og það verður ýmislegt um að vera á svæðinu, byrjandakennsla kl 13-15, fjallakakó hjá Skíðafélaginu síðan er æfing hjá hundabjörgunarsveitinni í Þvergilinu rétt fyrir ofan T-lyftuna kl 15.00 en eins við vitum er mjög gott að hafa björgunarmenn til taks þegar á reynir, sjáumst hress á morgun, það borgar sig að taka daginn snemma á morgun.
Í fjallið núna eru um 350 manns við bestu aðstæður, frábært veður og frábært færi.
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veðrið kl 09:30 vestan 2-4m/sek, frost 8 stig og heiðskírt, færið er troðin nýr snjór og er mjög gott færi í öllum brekkum, Neðstasvæðið og T-lyftusvæðið opna kl 10:00 en Búngusvæðið opnar kl 12:00.
Skiptihelgi í Hlíðarfjalli, Dalvík og á Siglufirði: Þeir sem eiga vetrarkort á skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli, Dalvík og Siglufirði geta skíðað á svæðunum um helgina þar sem fyrsta skiptihelgin verður að veruleika. Vetrarkortshafar framvísa vetrarkortum sínum í afgreiðslu hvers skíðasvæðis og fá þar helgarpassa. Þetta verður fyrsta skiptihelgin af þremur sem boðið verður uppá í vetur.
Verðum með byrjandakennslu fyrir börn í 1-2 bekk grunnskóla föstudaginn 11/3 kl 17-19, laugardaginn 12/3 kl 13-15, sunnudaginn 13/3 kl 13-15, tökum 4 krakka á hverjum klst og er verð per klst 1.000.- skráning í síma 467-1806/893-5059 Skíðasvæðið Skarðsdal.
Starfsfólk