28.01.2018
Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 15:15 vestan gola , frost 1-2 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór, flott veður og færi í dag. Fyrsti sólardagur er í dag og mun sú gula skína á toppa fjallanna............
6 brekkur klárar og æfintýraleið, hólabrautir og fl og fl
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 3 km.
!!Að gefnu tilefni er bent á að öll umferð snjósleða og annara tækja er með öllu óheimil á skíðasvæðinu!!
27.01.2018
Opið í dag frá kl 11-16. Veðrið er mjög gott sunnan gola, frost 0-2 stig og er léttskýjað.
Færið er troðinn þurr snjór og eru 6 brekkur klárar, gott færi fyrir alla, aðeins mjúkt.
Æfintýraleið og hólabraut við skíðaskálan.
Göngubraut á Hólssvæði tilbúin 2,5 km hringur.
Velkomin á skíði
26.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 13:15 er mjög gott logn, frost 1-4 stig og alskýjað. Færið er troðinn harðpakkaður snjór. Drauma færi.
Flott færi að skíða utanbrautar á Búngusvæði.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 2,5 km hringur
Velkomin á skíði.
25.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er logn, frost 6 stig og léttskýjað og verður veðrið svona næstu 5 daga. Færið er troðinn nýr snjór og er færið mjúkt og gott fyrir alla.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði kl 15:00
Velkomin á skíði í dag.
23.01.2018
Vindhviða nú í dag kl 18:53 42m/sek
það verður lokað í dag þriðjudaginn 23. janúar og miðvikudaginn 24. janúar vegna veðurs. það verður NA hvassviðri og éljagangur þessa tvö daga.
Nýjar upplýsingar á fimmtudaginn 25. janúar kl 10:00
Veðurútlit frá fimmtudegi - sunnudags er mjög gott í þessari viku.
22.01.2018
Það er opið í dag frá kl 14-19. Veðrið kl. 10 er mjög gott, -2° hiti, vindur 3-7m/sek og léttskýjað.
Uppfært kl. 14:30: Svæði lokað vegna veðurs
21.01.2018
Það er opið hjá okkur í dag frá kl 11-16. Það er glæsilegt veður, -5° hiti, 2-5m/sek WNW vindur og fullt af nýjum snjó.
World Snow Day er í dag og við bjóðum því börnum 16 ára og yngri frítt í lyfturnar og leigu á búnaði, auk þess sem við bjóðum börnunum upp á frítt kakó og súkkulaðistykki.
Einnig er göngubraut opin á Hóli.
Velkomin í fjallið!
20.01.2018
Það verður lokað í dag vegna veðurs.
Nýjar upplýsingar á morgun
19.01.2018
Það verður lokað í dag. Kl 10:00 er mjög blint á svæðinu og verður svo í dag.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 09:00
18.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er mjög gott SSW gola, frost 5-6 stig, léttskýjað og mun birta til en meira þegar líður á daginn.
Færið er draumur troðinn harðpakkaður nýr snjór. Æfintýraleið, Bobbbraut, Hólar og fl og fl.
Göngubraut troðin á Hólssvæði 2,5 km
Velkomin í Skarðsdalinn