06.02.2018
Það verður lokaðí dag, nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
Ath. á skíðasvæðið vantar skíðakennara
05.02.2018
Lokað í dag vegna hvassviðris.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 10:00
04.02.2018
Skarðsdalurinn mun taka vel á móti ykkur í vetur.
!!!!Allt til alls!!!! Veitingahús, sundlaugar, hótel, gistiheimili á heimsmælikvarða.
Velkomin í Fjallabyggð
04.02.2018
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris, sunnan rok og 10 stig hiti.
13 stiga hiti er vestan við Strákagöng kl 08:00.
Svona er Ísland í dag.
Þegar þessum degi sleppir verður flott veður hjá okkur, frost næstu 8-9 daga.
03.02.2018
Það verður lokað í dag vegna hvassviðris SW 8-15m/sek og hviður 18-25m/sek og fylgir þessu töluverður skafrenningur. Verður þetta veður svona í allan dag.
Nýjar upplýsingar á morgun kl 08:00
02.02.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 14:40 SA gola, hiti 3 stig og alskýjað, en það kólnar og léttir til og verður orðið heiðskírt kl 16:00. Færið er troðinn rakur snjór. 5 brekkur klárar.
Göngubraut er tilbúin á Hólssvæði 3 km hringur
Velkomin á skíði í dag
01.02.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið er WSW gola, frost 5 stig en alskýjað. Færið er troðinn þurr snjór, en það hefur snjóað 15-20 sm á síðasta sólahring þannig að færið er rennilegt og mjúkt.
Göngubraut verður tilbúin kl 14:00 á Hólssvæði 3 km hringur.
Velkomin á skíði í dag.
31.01.2018
Lokað í dag, opnum á morgun kl 14:00. Nú erum við að taka á móti snjó til brúks næstu daga.
Nýjar upplýsingar kl 10:00 á morgun.
30.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 17:00 austan gola, frost 3 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór, það verður flott veður og færi í dalnum í dag.
Göngubraut tilbúin á Hólssvæði 3 km
Velkomin á skíði
29.01.2018
Opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 17:00 WSW 5-12m/sek, frost 1-3 stig og heiðskírt.
Færið er troðinn þurr snjór. Flott veður og færi í dag.
Ath. það verður opið á morgun þriðjudaginn 30. janúar en lokað á miðvikudaginn 31. janúar en þá ætlum við að taka á móti nýjum snjó. Og svo opnum við á fimmtudaginn 1. febrúar á glænýja fönnina.
Göngubraut er tilbúin á Hólssvæði 3 km.
Velkomin á skíði í dag