Fréttir

4.mars

opið i dag kl 15 til 19 færið er troðinn nýr snjór gerist ekki betra 

Þriðjudaginn 3. mars lokað

Lokað verður í dag en opnum á morgun kl 15:00. Nýjar upplýsingar kl 13:00 á morgun. Starfsmenn

Enginn titill

Mánudaginn 2. mars opið kl 15-19

Opið í dag frá kl 15-19. Veðrið kl 11:00 NA gola, frost 6 stig og éljagangur.  Færið er troðinn nýr snjór það hefur snjóað ca 20-30 cm á síðasta sólahring. Ja nú er púður um allt. Velkomin í fjallið Starfsmenn

Sunnudaginn 1. mars opið kl 11-16

Opið í dag frá kl 11-16, veðrið kl 09:00 ANA gola, frost 6 stig, éljagangur og er skyggnið stundum 300-500 metrar en birtir af og til . Færið er troðinn nýr snjór það hefur bætt aðeins á snjóalög ca 20-30 cm, þannig að færið er töluvert mjúkt. !Mjúkt að detta! Velkomin í Skarðsdalinn Starfsmenn

Laugardaginn 28. febrúar opið kl 11-16

Opið verður í dag frá kl 11-16. Veðrið kl 11:00 ANA gola, frost 5 stig og er að birta til í dalnum. Færið er troðinn nýr snjór og er mjúkt færi í efrihlutanum.  Velkomin í fjallið  Starfsmenn

Föstudaginn 27. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 16:00 ANA 2-8m/sek, frost 2 stig og éljagangur. Færið er troðinn nýr snjór þannig að færið er mjög gott fyrir alla og er reyndar meiriháttar bretta færi. Hólabraut, Bobbbraut og æfintýraleið fyrir þau yngstu á Neðstasvæðinu. Nú er hægt að renna sér niður frá skíðaskálanum ca 2 km leið að Hólsbrú. Engin göngubraut lögð í dag. Velkomin á skíði í dag

Enginn titill

Enginn titill

Fimmtudaginn 26. febrúar opið kl 13-19

Opið í dag frá kl 13-19. Veðrið kl 10:00 logn, frost 4 stig, heiðskírt og sólin komin á loft. Færið er troðinn þurr snjór. Takið daginn snemma gæti farið að hvessa þegar líður á daginn. Velkomin í fjallið Starfsmenn