07.03.2010
Skíðasvæðið er lokað í dag vegna veðurs, við opnum á morgun mánudaginn 8. mars kl 13-18, nýjar upplýsingar kl 11:00 á
morgun á heimasíðu og í síma 878-3399.
Veðrið kl 11:00 SV 13-18m/sek og hviður upp í 35-38m/sek
Starfsmenn
06.03.2010
Skíðasvæðið er lokað í dag vegan veðurs, við opnum á morgun kl 10-16, nýjar upplýsingar kl 09:00.
Veðrið á svæðinu kl 11:30 í dag WSW 8-12m/sek og hviður upp í 20-22m/sek, 0 gráða, slydduél og snjóél á
svæðinu, en veðurspá er mun betri fyrir morgundaginn.
Starfsmenn
05.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 15-18, eingöngu Neðsta-lyfta, veðrið kl 15:00 SSV 6-10m/sek og meira í hviðum,
færið blautur snjór.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæðinu.
Við stefnum á að opna á morgun kl 10, nánari upplýsingar um kl 09:00 á morgun
Starfsmenn
05.03.2010
Við erum með opnun í athugun kl 15:00, nánari upplýsingar um kl 14:30.
Veðrið kl 13:45 SSA 7-12m/sek og fer upp í 18-25m/sek í hviðum.
Göngubraut tilbúinn á Hólssvæðinu
Ps veðurspá fyrir helginna er ekki gott SV hvassviðri sem er ekki gott hér á svæðinu.
Starfsfólk.
04.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 14-19, veðrið kl 11:00 V 6-10m/sek og 10-15m/sek í hviðum, frost 1 stig,
éljagangur og alskýjað, færið er troðinn þurr snjór, göngubraut tilbúinn á Hólssvæðinu, við keyrum
eingöngu Neðstu-lyftu vegna veðurs. það er of hvasst á efrisvæðum.
Velkomin á skíði starfsfólk.
03.03.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 13-19, veðrið er mjög gott SV- gola, hiti um 3 stig og heiðskírt, færið er
einning mjög gott nýr troðinn snjór á öllu svæðinu, allar lyftur verða í gangi, göngubraut er klár á
Hólssvæði.
Ps við ætlum að vera með kennslu fyrir þá sem vilja og lána skíðabúnað.
Ath. það eru veitingar seldar á öllum dögum sem opið er og nú er um að gera að drífa sig í bíltúr upp
í fjall og fá sér kaffibolla eða eitthvað annað.
Velkomin á skíði starfsmenn
02.03.2010
Skíðasvæðið opnar aftur á morgun 3. mars kl 13-19, nú er að skella á vetrarfrí hjá Grunnskólanum á Siglufirði
frá miðvikudegi -föstudags, að því tilefni ætlum við á skíðasvæðinu að bjóða upp á kennslu fyrir
ykkur krakkar miðvikudaginn 3. mars og fimmtudaginn 4. mars frá kl 13:00-15:00. Ath við lánum ykkur búnað.
Færið í fjallinu er frábært nýr snjór yfir öllu, svæðið er búið að vera opið í 56 daga frá 5.
desember og gestir eru komnir yfir 4. þúsund og eru miklar fyrirspurnir fram yfir páska.
Ath. það eru veitingar seldar á öllum dögum sem opið er og nú er um að gera að drífa sig í bíltúr upp
í fjall og fá sér kaffibolla eða eitthvað annað.
Sjáumst hress í fjallinu
01.03.2010
Skíðasvæðið er opið í dag frá kl 13-18, veður og færi er frábært S-gola, frost 5 stig og heiðskírt, færið er
troðinn nýr snjór og allar brekkur klárar, allar lyftur verða í gangi, göngubraut á Hólssvæði
Velkomin á skíði starfsfólk
28.02.2010
Skíðasvæðið verður opið í dag frá kl 10-16, veður N-gola, frost 2 stig, og léttskýjað, færið troðinn
þurr snjór frábært færi fyrir alla, allar lyftur keyrðar, við setjum í gang Neðstu-lyftu og T-lyftu kl 10:00 en Búngu-lyftan fer
í gang 11:30.
Það er göngubraut klár á Hólsvæðinu svo nú er um að ger að drífa sig út og á skíði og njóta
dagsins.
Starfsfólk
27.02.2010
Skíðasvæðið opnar í dag kl 12-17, veðri kl 08:30 NA 5-7m/sek, frost 3 stig, smá éljagangur og alskýjað. færið er troðinn
nýr snjór það hefur snjóað töluvert hjá okkur við opnum Neðstu-lyftu og T-lyftu í dag, Búngu-lyftan er biluð.
Ps Við setjum Neðstu-lyftu og T-lyftu í gang kl 10:00 á morgun Sunnudaginn 28. febrúar og Búngu-lyftu kl 11:30
Velkomin í fjallið starfsmenn